Tíminn - 30.12.1979, Page 27
Sunnudagur 30. desember 1979
27
Skútan Pólaris, sem fór hina
mestu svaöilför vestur aö
Lancastersundi aö 100. lengdar-
gráöu. Annar áhafnarmeölima
var ungur íslendingur Tómas
Tómasson, 23 ára.
Tveir nýir flokkar buöu fram
við Alþingiskosningarnar, Hinn
fiokkurinn og Sólskinsflokkurinn.
Hér eru fulltrúar þeirra mættir
viö Stjórnarráöið til þess að
kveöa niður veröbólgudráuginn.
t tilefni af barnaári sáu börn
um allan útvarpsflutning þann
22 . nóvember. Þótti börnunum
takast vel i þessu vandasama
hlutverki, en helst vöföust
leiðarar dagblaöanna fyrir þeim,
— sem kennski er ekki aö undra!
„Mér er ofarlega f huga aö standa
viö þau orö okkar aö ram-
sóknarmönnum megi treysta,”
sagöi Steingrimur Hermannsson,
þegar Tfminn heimsótti þau frú
Eddu Guðmundsdóttur, daginn
eftir kosningasigurinn.
Desember
Kosningar til Alþingis fóru
fram dagana 2. og 3. desember.
Kjörsókn varö strax góö og betri
en menn væntu, og alls kusu um
89% i Reykjavík og annars staðar
á landinu fór kjörsókn varla
nokkurs staöar undir 80%.
Framsóknarflokkurinn var
hinn óumdeildi sigurvegari i
þessum kosningum, hlaut 17 þing-
menn, en Sjálfstæöisflokkurinn,
sem flestir væntu að hlyti veru-
lega fylgisaukningu, hlaut aöeins
21 mann. Alþýöuflokkur fékk 10
menn og Alþýðubandalag 11. L-
listi i Suöurlandskjördæmi fékk
einn mann kjörinn, en listi Sól-
ness nyröra kom ekki manni aö.
Miðvikudaginn 6. desember
hlaut Steingrimur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins,
umboð til stjórnarmyndunartil-
raunar. Lýsti Steingrimur yfir
vilja sinum til aö reyna myndun
stjórnar sjömu flokka og áöur og
hófust viðræðufundir þann 7. des-
ember.
Laugardaginn 8. desember
drukknuöu tvö ungmenni i höfn-
inni i Þorlákshöfn, þegar bifreið
sem þau voru i fór fram af
bryggju. Sex voru i bilnum og
tókst hinum að komast út úr biln-
um i sjónum, en ung stúlka braust
á land og tókst að sækja hjálp.
13% verðhækkun varð á áfengi
og tóbaki þann 10. desember og
fór þá vanalegur sigarettupakki i
905krónur, en islenskt brennivin i
kr. 8000.
Rauði Kross Islands efndi til
kosningagetraunar sem mikil
þátttaka var i. Tvær réttar
lausnir bárust, og var einn hús-
varða Alþingis annar hinna get-
spöku.
Yfirfasteignamatsnefnd hækk-
aði fasteignamat i landinu hinn 1.
desember. Var hækkunin um 55-
60% i Reykjavik en um 50% úti á
landi.
Alþingi var sett þann 12.
desember. Var Jón Helgason
kjörinn forseti sameinaðs þings.
Með kosningunni til efri deildar
var gert út af við möguleika á
myndun viðreisnarstjórnar, þar
sem Framsóknarflokkur og
Alþýöubandalag sameinuðust um
lista, sem varð til þess að Sjálf-
stæöisflokkur fékk 7 menn i deild-
ina en Alþýðuflokkur 3.
Óvenjulegt flugslys varð á Mos-
fellsheiði þann 18. desember
þegar tvær flugvélar fórust þar
sama daginn, en björgunarþyrla
af Keflavikurflugvelli hrapaði til
jarðar, eftir að hafa tekiö um
borð slasað fólk úr Cessnavél,
sem hrapað hafði i heiðinni fyrr
um daginn. Allir komust lifs af
en meira og minna slasaöir.
Frambjóöendur stjórnmála-
flokkanna spöruöu sér ekkert
ómak I kosningabaráttunni og
heimsóttu fjölda vinnustaða. Hér
er Markús Einarsson kominn upp
á lyftara hjá BYKO.
Þessir tveir háhyrningar voru
fluttir flugleiðis til Þýskalands
aðfaranótt þess 11. desember.
Ýmsir hafa haft horn i siðu þessa
útflutnings og var þessi timi val-
inn til flutningsins, til þess að
sniðganga hugsanlegar mót-
mælaaðgeröir á erlendri grund.
280 blárefir komu flugleiðis til
Akureyrar frá Skotlandi þann 12.
desember.
Milljónatjón varð á Akureyri
þann 20. desember, þegar plötur
fuku af húsum og bilar fuku til i
ofviðri.
Ekki tókst tilraun Steingrims
Hermannssonar til myndunar
vinstri stjórnar i fyrstu lotu og
skilaði hann forseta umboði sinu
föstudaginn 21. desember.
Atta hestar brunnu inni i Kópa-
vogi aðfaranótt jóladags. Eldsupp
tök voru talin stafa af rafmagns-
bilun.
Talsvert snjóaði fyrir hátiðarn-
ar og voru hvit jól viöast um land
og var veður afar fagurt og kyrrt i
höfuðborginni á aðfangadag.
Forseti Islands fól Geir Hall-
grimssyni að reyna myndun
stjórnar þann 27. desember, en
mesta gáta i Iandi þegar nær árs-
lokum dregur er sú, hvaða stjórn
kunni að taka við völdum. Eru
margir vantrúaðir á að meiri-
hlutastjórn fáist fram og ræddir
ýmsir möguleikar á minnihluta-
stjórnum.
Alþingismenn ganga úr kirkju til
þinghúss þegar Alþingi var sett
hinn 12. desember sl.
Bandarlska þyrlan, sem fórst á
Mosfellsheiði þann 18. desember.
Með henni voru þrlr slasaðir far-
þegar úr Cessna vélinni.