Tíminn - 10.05.1986, Síða 11
Laugardagur 10. maí 1986
Tíminn 11
lllllllHllllllllllll ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllliillllllllllllllllllllllllill
Dalglish valinn
framkvæmdastj. ársins
Kenny Dalglish, leikmaður og
framkvæmdastjóri Liverpool var
valinn framkvæmdastjóri ársins í
Englandi fyrir þetta keppnistímabil.
Dalglish er níundi framkvæmda-
stjóri Liverpool til að hreppa þessi
verðlaun á 14 árum.
Lakers áf ram
Pétur Guðmundsson og L. A. Lak-
ers tóku stórt skref í átt að úrslita-
leikjunum í NBA körfuknattleikn-
um í fyrrinótt er þeir sigruðu Dallas
Mavericks 120-107 í sjöttu viðureign
liðanna. Lakers eru þar með búnir
að vinna fjóra leiki gegn Dallas og
mæta Rockets í úrslitaviðureignun-
um í Vesturdeildinni. Rockets unnu
Denver 126-122 eftir tvöfalda fram-
lengingu. Pétur lék ágætlega með
Lakers og gerði 8 stig í leiknum.
f Austurdeildinni eru Milwaukee
og Fíladelfía að kljást um það hvort
liðið mætir Boston Celtics í úrslita-
viðureignunum í þeirri deild. Bucks
unnu 76ers í fyrrinótt með 113
stigum gegn 108 og eru 3-2 yfir í
viðureigninni. Þurfa því aðeins að
vinna einn leik enn til að mæta
Boston.
Meistarakeppnin
Einn af stóru leikjunum í knatt-
spyrnunni í sumar verður strax á
morgun, sunnudag, á Kópavogs-
velli. Þá leika íslandsmeistarar Vals
og bikarmeistarar Fram í meistara-
keppni KSÍ. Leikurinn hefst kl.
19.00 og má búast við hörkuviður-
eign. Framarar urðu á fimmtudaginn
Reykjavíkurmeistarar annað árið í
röð og þeir sigruðu reyndar í meist-
arakeppninni í fyrra. Er greinilegt
að þeir verða illviðráðanlegir í
sumar. Valsmenn hafa verið
óheppnir með meiðsl það sem af er
vori en víst er að þeir leggja sig alla
fram á morgun.
Gæði sem hægt er að treysta §f§§| Steyr-Daimler-Puch AG
Búvélar frá Boða - Boði hf. - Betri þjónusta
NM í blaki í Digranesi:
Urslitin í dag
- Finnar og Svíar sterkastir - íslendingum gengur illa -
Blak í gæðaflokki - Verður spennandi í dag
Norðurlandamótið í blaki er nú í
fullum gangi í íþróttahúsinu Digra-
nesi í Kópavogi. Mótinu lýkur í dag
með úrslitaleikjum um sæti á mót-
inu. Úrslitaleikurinn sjálfur hefst í
dag kl. 17.00. Þar spila að öllum
líkindum Finnar og Svíar en úrslit í
undanúrslitaleikjunum voru ekki
kunn er blaðið fór í prentun í
gærkvöldi.
Mótið hófst á fimmtudaginn með
leik íslendinga og Norðmanna. Er
skemmst frá því að segja að Norð-
menn höfðu algera yfirburði í leikn-
um og unnu 3-0. Enduðu hrinurnar
15-2, 15-7 og 15-5. Það munar mjög
miklu í þessari keppni hversu fs-
lendingarnir eru mun minni en kepp-
endur hinna Norðurlandaþjóðanna.
Þannig áttu íslensku piltarnir í erfið-
leikum með að koma upp góðri
hávörn gegn Norðmönnunum.
Skellir þeirra norsku voru þar að
auki svo gríðarlegir að engum vörn-
um var við komið er hávörnin klikk-
aði.
Strax á eftir þessum leik spiluðu
Finnar, sem eru sigurstranglegastir á
mótinu, og Færeyingar. Var þar um
ójafna viðureign að ræða og sigruðu
Finnarnir 3-0 og enduðu hrinurnar
15-3, 15-4 og 15-4.
Síðasti leikurinn á fimmtudaginn
var viðureign Svía og Norðmanna
og var það hörkuviðureign þrátt
fyrir að Svíar hafi unnið 3-0. Hefði
verið sanngjamt að Norðmenn ynnu
eina hrinu. Lokatölur í hrinunum
voru 15-11, 15-11 og 15-9.
1 gær byrjaði keppni með leik
Færeyinga og Dana í riðli 2 en
leikið er í tveimur riðlum og eru
Finnar einnig í riðli 2 en í riðli 1 eru
Svíar, Norðmenn og íslendingar.
Færeyingar voru vel vakandi á móti
Dönum en máttu þó sætta sig við tap
15-10, 15-7 og 15-4.
Strax á eftir spiluðu Svíar og
íslendingar og var um algjöra ein-
stefnu að ræða í þeim leik. Svíar
unnu 3-0 og fóru hrinurnar illa eða
15-2, 15-1 og 15-1. Þarf ekki að
fjölyrða meira um þann leik.
Finnar og Danir spiluðu síðan
hörkublakleik sem endaði með 3-0
sigri Finnanna 15-7,15-7,15-7. Dan-
ir veittu öfluga mótspyrnu í fyrstu
hrinunum en síðasta hrinan var
formsatriði þrátt fyrir úrslit hennar.
Síðasti leikurinn í gærdag var á
milli fslendinga og Færeyinga og var
það einskonar upphitunarleikur fyrir
leikinn um 5.-6. sætið í dag. Er
skemmst frá því að segja að leikur-
inn var spennandi og jafn. Færeying-
ar reyndust þó sterkari er á reyndi
og unnu 3-2. Þeir unnu fyrstu tvær
hrinurnar 15-3 og 15-11 en íslending-
ar unnu næstu tvær 15-8 og 15-5.
Síðan komst landinn í 10-2 í fimmtu
hrinu en þá sögðu Færeyingar stopp
og skoruðu restina af stigunum og
unnu 15-10.
Framarar tryggðu sér Reykjavfluirmeistaratitilinn í knattspyrnu á fimmtu-
dagskvöldið er þeir sigruðu KR-inga 3-1 í framlengdum úrslitaleik. Staðan að
loknum venjulegum leiktíma var 1-1 og hafði leikurinn þá veríð í jámum.
Friðrík Fríðríksson varði mjög vel í marki Fram en KR-ingar ógnuðu og
Framarar fengu líka sín færi er ekki nýttust. Vendipunkturinn í leiknumvar
hins vegar sá að KR-ingar misstu mann útaf undir lok leiksins og urðu að spila
10 eftir það. Þá var ekki spuming um úrslitin því Framarar kunnu að nýta sér
liðsmuninn.
Pétur Ormslev skoraði fyrír Fram í byrjun Ieiksins en Júlíus Þorfinnsson
jafnaði fyrír hlé. í framlengingunni skoraði Pétur aftur og Guðmundur
Torfason bætti þríðja markinu við í lokin.
Framarar voru Reykjavíkurmeistarar fyrir en hjá KR-ingum var þetta fyrsti
möguleiki á titli í nokkur ár. Liðið verður þó sterkt í sumar svo og Framarar.
Á mynd Péturs tekur Guðmundur Steinsson við bikarnum úr hendi 'Júlíusar
Hafstein.
UEFA bannar
enska áfram
UEFA, Knattspyrnusamband Evr-
ópu, samþykkti á fundi sínum
í gær að aflétta ekki banni því sem
verið hefur í gildi varðandi þátttöku
enskra félagsliða í Evrópukeppnun-
um í knattspyrnu. Það er því íjóst að
ensk lið fá ekki að taka þátt í
Evrópukeppnunum þremur á næsta
vetri. Þá er enn í gildi þriggja ára
viðbótarbann á Liverpool vegna
hörmunganna í Belgíu í fyrra.
UEFA áskilur sér rétt til að endur-
skoða afstöðu sína að ári liðnu.
Fulltrúar UEFA hafa farið í vetur til
Englands og fylgst með leikjum og
hegðun áhorfenda og voru greinilega
ekki ánægðir. Þess ber að geta að
bann þetta hefur engin áhrif á skosk,
írsk eða welsk lið.
Tvö töp i Hollandi
fslendingar og Hollendingar léku
landsleik í körfuknattleik í gær og
var leikurinn liður í undirbúningi
liðanna fyrir B-Evrópukeppnina
sem fram fer í Belgíu um næstu
helgi. Hollendingar sigruðu í gær
98-80 (56-47). Birgir skoraði 22 stig
og Torfi 12. í fyrradag töpuðu ís-
lendingar naumt fyrir Hollendingum
87-94. Þá gerði Valur 34 stig og var
óstöðvandi.
STEHRfflM
KAPLAHRAUNI 18
220 HAFNARFIRÐI:
S-91.651800
Kraftmikill og sterkur traktor.
Rúmgott og hljóðeinangrað luxushús.
Fjórhjóladrif.
Framöxull með litlum beygjuradíus.
Geysilega öflugt vökvakerfi og kraftmikið aflúrtak,
gerir þyngsta verk létt.
91% af traktorum sem smíðaðir hafa verið síðan
1947 eru enn í vinnu.
Traktorar frá 48 hp- 260 hp DIN.
Fjárfesting sem borgar sig.
• •
Sterkur - Oruggur - Þægilegur
★ Eyðslugrönn diselvél með túrbínu
★ STEYR 8070-70 HP. SAE.
★ STEYR 8090-90 HP. SAE.
★ Sérsmíðaðar til að hæfa hverju verki sem er.
★ 2ja ára ábyrgð. Óháð vinnustundafjölda.
★ Pottþétt þjónusta.
STEUR