Tíminn - 10.05.1986, Blaðsíða 12
Hérna mætti fjarlægja ruslið
Heilagigarðurinní
Álftamýrarskóla
Hér mætti bæta við öskutunnu
Hérna væri snyrtilegra ef ruslið
væri tekið
Snyrtilegur garður og fallegt hús
12 Tíminn
Laugardagur 10. maí 1986
Laugardagur 10. maí 1986
Tíminn T3
Viðtal við Níels Árna Lund, ritstjóra Tímans.
Hvenær var Tíminn stofnaður?
Fyrsta tölublað Tímans kom út
17. mars 1917, og verður Tíminn
því 70 ára á næsta ári. Þeirra
tímamóta verður minnst í blaðinu
þegar þar að kemur.
Hver var fyrsti ritstjóri?
Þeir voru tveir, Guðbrandur
Magnússon og Tryggvi Þórhalls-
son.
Hvað koma út mörg blöð á viku?
Því er ekki hægt að svara ná-
kvæmlega. Aðalblaðið kemur út 5
sinnum í viku en auk þess kemur
út helgarblað um hverja helgi. Þá
er alltaf töluvert um að gefin séu út
aukablöð svo segja má að út komi
í hverri viku 6 til 7 blöð.
Hvað eru margir áskrifendur að
Tímanum?
Blaðið er gefið út í 14 þúsund
eintökum á hverjum degi. Af því
fer um 10 þúsund til áskrifenda en
afgangurinn í lausasölu. Áskrif-
endum fer nú fjölgandi og er
ætlunin að auka upplag blaðsins á
næstunni.
Hvað eru margir blaðamenn?
Blaðamennirnir eru 13 en auk
þeirra skrifa í blaðið ritstjórar og
fréttastjórar. Þannig eru það 17
menn sem skrifa í blaðið daglega
auk annarra sem senda greinar eða
eru fengnir til að skrifa um sérstök
málefni.
Hver er tilgangurinn með útgáfu
blaðsins?
Tíminn er gefinn út af Fram-
sóknarflokknum og Framsóknar-
félögunum í Reykjavík. Því er
ætlað að koma stefnu Framsóknar-
flokksins á framfæri og gera grein
fyrir þeim málefnum sem hann
berst fyrir.
Þá er Tímanum að sjálfsögðu
ætlað að vera gott fréttablað sem
skýri frá atburðum sem eru að
gerast og vera vettvangur skoðana-
skipta fyrir alla landsmenn.
Hvert er framtíðarmarkmið ykkar?
Markmið okkar er að gera Tím-
ann enn öflugri en hann er í dag.
Fjölga á síðum blaðsins og fá enn
fleiri kaupendur. Þannig verður'
Tíminn öflugt mótvægi við önnur
pólitísk dagblöð sem gefin eru út
af öðrum stjórnmálaflokkum. Ég
tel það sé hættulegt að eitt dagblað
fái að ráða eins miklu í fréttaflutn-
ingi eins og t.d. Morgunblaðið
gerirnú. Ætlunin eraðTíminn geti
breytt því.
GOn FRÉTTABLAÐ
Nokkrar smellnar gátur!
1. Hvaö er það sem guö
gefur okkur 2var sinnum
en viö þurfum að kaupa í
3ja skiptið?
2. Hver er það sem getur
flautað og tannburstað
sig um leið?
3. Hvort er réttara að segja
geitafjöður í hatt eða á
hátt?
■JUQBfj
geiu i>j>|e me Jnjieo '£
•je>)S|ej geuj me uies jiecj z
jeujnuuai ’f
Gátur og skrýtlur
1. Hvaða mánuður hefur 27
daga?
2. Ég er bæði yngstur og
elstur í heiminum?
3. Af hverju fljúga fuglarnir
suður?
4. Mamma: Hvernig gastu
verið svona ókurteis að
segja að hún Gunna væri
vitlaus. Biddu hana strax
afsökunar.
Strákur: Fyrirgefðu
Gunna. Mér þykirleiðilegt
hvað þú ert vitlaus.
e6ue6 qb }6ue| oas je QBd '0
uujujji z
J!llV ' U
■JOAS
Guðrún
Skrýtlur og gátur.
1. Hvað kémur alltaf á vet-
urna en fer á sumrin?
2. Hver er það sem er með
munn en engar tennur?
3. Hver fær örugglega ekki
tannpínu?
Mamma, hvað er langt til
Ameríku? Þegiðu drengurog
haltu áfram að synda.
Ósköp er hann bróðir þinn
lítill! Já, hann er líka hálf-
bróðir minn.
•e|iue6 bujujv '£
e|uje6 eiuiuv 'Z
joíus ' l.
:joas
Blaðamennirnir ungu úr Álftamýrarskóla ásamt Níels Áma Lund, rítstjóra Tímans. Frá vinstri era Lúðvík
Þráinsson 12 ára, Þórunn Ingileif Gísladóttir 10 ára, Hafþór Árnason 12 ára, og Guðrún Hansdóttir 10 ára.
Tímamynd: Sverrír.
TÍMINN Á AÐ VERA
Byggingasaga
Múlahverfisins
Sesselja Þórðardóttir hjá borgar-
verkfræðingi tók saman þetta ágrip
af byggingarsögu hverfsins :
(Hverfi, sem afmarkast af
Kringlumýrarbraut, Suðurlands-
braut, Grensásvegi og Miklubraut.)
Háaleitishverfi var skipulagt af
Gunnari Ólafssyni, arkitekt, þáver-
andi skipulagsstjóra Reykjavíkur-
borgar.
Götunöfn innan hverfisins voru
samþykkt í byggingarnefnd 1958. Þá
var starfandi svokölluð nafnanefnd,
sem gerði tillögur að götunöfnum í
Reykjavík. Þessi nefnd var skipuð
Háskólaritara og einum prófessor
viðH.Í.
Á árum seinni heimsstyrjaldarinn-
ar reis „braggahverfi", Múlakampur.
á svæði, sem náði frá Suðurlands-
braut og teygði sig úpp að núverandi
götustæði Ármúla og Síðumúla.
(Nokkur hús voru byggð á þessu
svæði án leyfi byggingaryfirvalda,
sem flest hafa verið rifin).
Ofannefnt hverfi byggðist að
mestu. upp á árunum 1960-1965,
nema iðnaðar- og verzlunarhúsin,
sem sum hver eru enn í smíðum,
þ.e. við Suðurlandsbraut, Ármúla
og Síðumúla.
Flest elstu iðnaðarhúsin í hverfinu
voru byggð í áföngum á allmörgum
árum.
íbúðarhúsin í hverfinu eru flest
samþykkt á árunum 1960-1964.
Skrásetning lóða við Suðurlands-
braut, sem liggja að þessu hverfi eru
frá nr. 2-34.
Fyrsta samþykkt við Suðurlands-
braut á þessum kafla götunnar er nr.
28, símstöð, samþ. 1955, þá var
Suðurlandsbraut 2,. sem þá var iðn-
aðar- og verzlunarhús, 1. áfangi
samþ. 1957, en árið 1970 er sam-
þykkt Hótel í þeirri byggingu, þ.e.
Hótel Esja.
Elstu samþykktir byggingarleyfa
við Ármúla og Síðumúla eru frá
árinu 1955, þ.e. Ármúli 27, 36 og 42
og Síðumúli 17, 25 og 35. Grens-
ásvegur 8,1. áfangi og Grensásvegur
12 var samþykkt 1955. Fellsmúli
24-26 (Hreyfilshúsið) var samþ.
1959.
HVERHD
Það er skemmtilegt og gott að búa í því
en kannski of mikið af 5-6 ára krökkum! En
hinum megin við götuna eru margir krakkar
á öllum aldri en ég þekki þá voðalega lítið,
Ágætt að labba í skólann en ég á langt í
hann miðað við þá sem eiga heima í
Álftamýrinni og Safamýrinni. Ég er í fjórða
bekk og heiti Ingileif!
GATAN
MÍN
Ég á heima í Fellsmúlanum, en í hverfinu
eru 3 götur í viðbót þær heita Safamýri,
Álftamýri og Háaleitisbraut. í hverfinu er
einn skóli sem heitir Álftamýrarskóli, í
honum eru flestir krakkarnir sem eiga
heima í götunum fjórum. í bekknum mínum
eru 28 krakkar, mér finnst mjög gott að eiga
heima í þessu hverfi og ég vil hvergi annars
staðar eiga heima.
Guðrún 10 ára.
Böm í Alftamýrar-
skóla kynna
Múlahverfi
Gamall herskálakampur
verður að fallegu hverfi
Grunnskólanemendur ;
Reykjavíkur nútímans yrðu
vafalaust undrandi ef þeir gætu
skroppið svo sem þrjátíu og
fimm til fjörutíu ár aftur í tím-
ann og litið yfir það svæði sem
nú er Háaleitis- og Múlahverfi.
Þar sem nú eru reisuleg hús,
fallegir garðar og snyrtilegt um-
hverfi, stóðu á þessum tíma
lágreistir braggar og hús sem
virtust hafa verið byggð skipu-
lagslaust á víð og dreif.
Kortið hér að aftan er af því
svæði sem nú er Múlahverfið.
Brotnu línurnar á kortinu sýna
hvar núverandi götur liggja, sú
bogna neðst á kortinu er Síðu-
múlinn. Lesendurgeta, með því
að skoða kortið, reynt að hverfa
40 ár aftur í tímann og ímynda
sér hvernig umhorfs var þá.
AMtaimrarskoli nunnist 200 ara afmælis Reykjavíkurborgar um þessa
helgi með ýmsum hætti, þar á meðal sýningu í skólanum þar sem
nemendur skólans sýna verkefni sem þau hafa unnið um Reykjavíkurborg.
10-12 ára nemendur fengu það verkefni að gera Múlahverfinu skil og
Tíminn fékk heimsókn frá fjórum hressum krökkum sem vildu vinna
verkefni um blaðaútgáfu í hverfinu og völdu Tímann sem vettvahg.
Tíminn ákvað þá að slá tvær flugur í einu höggi, og nota tækifærið til
að kynna Múlahverfið aðeins fyrir lesendum blaðsins, um leið og
krakkarnir kynntu sér blaðaútgáfuna. Það sem birtist hér á síðunum er
að mestu leyti unnið af börnunum, eða að beiðni þeirra, og tengist
Múlahverfinu, byggingarsögunni, mannlífinu umhverfinu, og daglegri
umgengni.
k ettir q-, göti'm
(f rululd)
195S 1960
1365 19-0 1975
1?SC
l?gl 1 ??C 1 C-c?
Hverfl 4.1
Alftsmýrl
Araúll
Fellsmúll
KAftlflltlabraut
Hialeltlav. (Sogra.bl.)
Saftaýrl
Seljalandavegur
SlOunúll
Sltel fan
Stanaýrl
Sr.ntala:
1.278 1.234 1.038 863 8C9
3 10 7 5 5
463
729
628
516
49S
773
4
490
742
3
490
: ? ? 4
741
5
477
1.709 1.948 1.690 1.477 1.451 1.410 1.401 1.397
107
20
915
15
943 830
2
. 4
715
726
725
673 670
189
107
115 4.433 '1.3G9 4.226 3.603 3.520 3.429 3.346 3.325
MITT