Tíminn - 04.06.1987, Síða 11
Tíminn 11
Fimmtudagur 4. júní 1987
fllílllilllllllllfflllllllflll ÍÞRÓTTIR
NBA körfuboltinn, úrslit:
Yfirburðasigur Lakers
- komust mest í 23 stiga mun en lokatölur
uröu 126-113
Sund:
Unglingalandsliðið á
alþjóðlegt félagamót
Reutcr
Leikmenn Boston Celtics voru
eins og gamalmenni f samanburði
við sprækt og óþreytt lið Los
Angeles Lakers i fyrsta leik liðanna
í úrslitum NBA-deildarinnar í
körfuknattleik. Leikurinn fórfram
á heimavelli Lakers - Forum - og
sigruðu heimamcnn örugglega með
126 stigum gegn 113. Staðan að
loknum tveimur fjórðungum var
69-54 Lakers í hag.
Hraðinn var eins og oft áður
aðalsmerki Lakersliðsins og hann
ásamt vel skipulögðum sóknum
var meira en vængbrotið Celticslið-
ið réði við. Celtics hafa þurft að
spila tvisvar sjö leiki, unnu síðast
Detroit Pistons 4-3 á sunnudaginn.
Mikið er uni meiðsl í liði þeirra,
m.a. ganga Robert Parish og Kevin
McHalc ekki heilir til skógar og
munar um minna. Lakersliðið hef-
ur fengið 8 daga hvíld, þeir voru
ekki lengi að vinna Seattle Supers-
onics 4-0 og að auki eru allir þeirra
menn heilir. Það er ekki að undra
að flestir spái Lakers titlinum í ár.
Tækist Bostonliðinu að sigra yrði
það í fyrsta sinn síðan árið 1969
sem sama liðið ynni meistaratitil-
inn tvö ár í röð. Celtics léku það
cinmitt fyrir tæpum 20 árunt.
Pað var James Worthy sem var
fremstur í flokki leikmanna Lakers
að þessu sinni, hann skoraði 33
stig, mörg hver eftir sendingar frá
Ervin ‘-Magic“ Johnson leikstjórn-
anda Lakersliðsins. Magic gerði 29
stig. Hann átti 13stoðsendingarog
Worthy 10. Fjórir aðrir leikmanna
Lakers skoruðu yfir 10 stig.
Larry Bird var stigahæstur í
Celticsliðinu með 32 stig og var að
venju potturinn og pannan í sókn-
arleik þeirra.
K.C. Jones þjálfari Celtics var
spurður eftir leikinn hvort frekari
meiðsla hefði orðið vart í liði hans
eftir þennan leik. Ekki vildi hann
meina það; „það eina sem særðist
í þessum leik voru tilfinningar
okkar“ sagði Jones og var að
vonum daufur í dálkinn.
Fyrstu sex skot Celtics mistókust
og Lakers komust í 9-0 í upphafi
leiks. Þeir komust í 21 stig átta
mín. fyrir lok fyrri hálfleiks. Celtics
náðu að klóra í bakkann og munur-
inn að loknum tveimur fjórðungum
var 15 stig. Munurinn fór niður í 12
stig t' 3. fjórðungi eftir að Danny
Ainge hitti úr þremur þriggja stiga
skotum í röð. Worthy svaraði með
fjórum stigum og Lakers leiddu
101-85 í lok þess þriðja. Lokatölur
urðu svo 126-113 en sex mínútum
fyrir leikslok höfðu Lakers 23 stiga
forskot.
Lakers höfðu einnig yfirburði í
fráköstunum. 47 á móti 32.
Annar leikurinn í úrslitakeppni
liðanna tveggja verður í Forum
aðfaranótt föstudags en síðan flytja
liðin sig yfir í Boston Garden þar
sem næstu tveir leikir verða. Lak-
ers hafa aðeins einu sinni sigrað
Celtics í níu úrslitakeppnum þess-
ara liða en allt bendir til að nú
verði breyting þar á. -HÁ
James Worthy skoraði 33 stig og
átti 10 stoðsendingar í liði LA
Lakers.
Unglingalandsliðið í sundi keppir
um helgina á 6. alþjóðlega bikarmót-
inu í sundi í Bremerhaven. Mótið er
aldursflokkamót og keppa félög víða
úr Evrópu á því með unglingalið.
Sænska félagið SC Kristjansand
hefur tvívegis unnið farandbikarinn
sem keppt er um á mótinu og verður
eign félagsins vinni það stigakeppn-
ina í þriðja sinn.
íslenska unglingalandsliðið er
þannig skipað:
Alda Viktorsdóttir (’72) f A
Arnar R. Birgisson (71) KR
Birna Björnsdóttir (73) Óðni
Björg Jónsdóttir (73) UMFN
Brynja Arnardóttir (72) UMFN
Franska bikarkeppnin:
Bordeaux
og Marseille
í úrslitaleik
Reuter
Bordeaux og Marseille keppa
til úrslita í franska bikarnum í
knattspyrnu. Bordcaux vann
Ales í undanúrslitum, samanlögð
úrslit 2-2 en Bordeaux komst
áfram á mörkum skoruðum á
útivelli. Það vann Marseille
Reims 7-1 samanlagt.
Marscille lék einnig til úrslita í
bikarnum í fyrra en tapaði. Bor-
deaux hefur tryggt sér sigur í
deildinni í ár.
Davíð Jónsson (71) Ægi
Elín Sigurðardóttir (72) ÍA
Elísabet Kristjánsdóttir (72)
Umf. Selfoss
Eyleifur Jóhannesson (71) ÍA
Jón Valur Jónsson (71)
UMS Borgarfjarðar
Karl Pájmason (72) Ægi
Kristjana þorvaldsdóttir (72) ÍA
Kristján B. Árnason (71) Vestra
Lóa Birgisdóttir (72) Ægi
Sigríður Dögg Auðunsdóttir (72)
UMS Borgarfjarðar
Sindri Valdimarsson (71) Ægi
Svavar Þór Guðmundsson (71)
Óðni
Ævar Örn Jónsson (72) UMFN
Þjálfarar eru Auðunn Eiríksson
frá SH og Hafliði Halldórsson frá
Ægi. Fararstjóri er Wolfgang Sahr
frá KR.
Sunddeild Umf. Bolungarvíkur
tekur einnig þátt í þessari keppni
með lósundmenn. Keppt Verður í50
m laug.
Unglingameistaramót
í frjálsum íþróttum
Unglingameistaramót íslands 18-
20 ára í frjálsum íþróttum fer fram á
frjálsíþróttavellinum í Laugardal
laugardaginn 6. júní 1987 kl. 11.00.
Keppt verður í eftirtöldum grein-
um: 100 m, 400 m, 4x100 m,
langstökk, hástökk, kúla, kringla,
spjót bæði kyn, 110 m grind 1500 m,
5000 m þrístökk karlar, 100 m grind,
3000 m konur.
Skráningar berist á skrifstofu FRÍ
eða til Sigurðar Erlingssonar á lög-
legum keppnisspjöldum fyrir kl.
20.00 fimmtudaginn 4. júní.
Viljum kaupa
Viljum kaupa Traust skreiðarpressu. Upplýsingar
hjá Lúðvík í síma 96-43200.
t
Eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir og mágur
Gísli Sighvatsson
Birkihvammi 13, Kópavogi
sem lést miðvikudaginn 27. maí, verður jarðsunginn frá Langholts-
kirkju í Reykjavík föstudaginn 5. júní kl. 13.30.
Ólöf Helga Þór
Gunnar Sveinn
Elín Ágústsdóttir Sighvatur Bjarnason
Kristín Sighvatsd. Lynch Charies Lynch
Bjarni Sighvatsson Aurora Friðriksdóttir
Viktor Sighvatsson
Ásgeir Sighvatsson
Elín Sighvatsdóttir
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar og móður okkar
Guðbjargar Björnsdóttur
Dagsbrún, Eskifiröl
Sveinn Sörensen
Björn Grétar Sveinsson
Guðni Magnús Sveinsson
Skúli Unnar Sveinsson.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
Eggert Ó. Sigurðsson
Smáratúni, Fljótshlíð
lést á sjúkrahúsi Suðurlands þann 31. maí. Jarðarförin fer fram að
Breiðabólsstað í Fljótshlíð laugardaginn 6. júní kl. 14.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
f
í
Ertu að byggja upp
líkamann?
Við leitum að
blaðberum til
starfa víðsvegar
um borgina.
Melabraut
Skólabraut Aragata
Unnarbraut Oddagata
Háskólahverfi
Eskihlíð ------------
Mjóahlíð Tjarnargata
____________________ Suðurgata
Skerjafjörður
Sóleyjargata
Laufásvegur frá 48
Bergstaðastræti frá 54
Fjólugata
Haföu samband.
Tíniinn
•SIDUMULA 1b
S686300