Tíminn - 31.10.1989, Side 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 31. október 1989
Hafnfirdingar
vigja sundlaug
Hafnfirðingar tóku í notkun nýja
og glæsilega útisundlaug sl.laugar-
dag. Suðurbæjarlaug, en svo nefnist
nýja laugin, er í raun þrjár sam-
tengdar sundlaugar, auk fjölbreyttr-
ar aðstöðu ti! útivistar og íþrótta á
stóru útisvæði við laugarnar, auk
margvíslegrar aðstöðu í sundlaugar-
húsinu sjálfu.
Fyrsta skóflustungan að lauginni
var tekin haustið 1984 og er kostnað-
ur við framkvæmdirnar kominn í
tæpar 170 milljónir króna, en með
fullbúinni innisundlaug, sem ljúka á
næsta vor verður heildarkostnaður-
inn um 190 milljónir.
Útisundlaugin nýja er 12 x 25
metrar og fullbúin fyrir aðþjóðak-
eppnir. Þar er einnig að finna barna-
laug, samtengda stóru lauginni, með
vatnsrennibraut, og stórum
vatnssvepp. Innisundlaugin sem á
eftir að ljúka verður tengd úti-
laugunum með sérstakri rennu.
Sundlaugarhúsið er á tveim
hæðum, samtals 1040 fermetrar. Þar
er búningsaðstaða fyrir um 400 gesti,
auk útibúningsklefa. Þrírheitirpott-
ar og 250 metra upphituð hlaupab-
raut eru á svæðinu.
Arkitekt laugarinnar er Sigurþór
Aðalsteinsson. -ABÓ
Fallþungi dilka meiri en í fyrra:
Saudfjárslátrun
lokið á Akureyri
í síðustu viku lauk sauðfjárslátrun
hjá sláturhúsi KEA á Akureyri. Alls
var slátrað 43.246 fjár, þar af 39.305
dilkum. Meðal fallþungi dilka reynd-
ist 15,8 kg. sem er 0,6 kg meiri en á
síðasta ári. Að sögn Óla Valdimars-
sonar sláturhússtjóra fór óvenju lítið
í úrvalsflokkinn eða 1,6%, en í fyrra
var hlutfalið 3,7%. 31.000 dilkar
fóru hins vegar í l.flokk, sem er
mjög gott hlutfall. í fituflokkana
fóru um 7,75%, sem er ívið meira en
í fyrra en þá voru 7,10% fclld vegna
fitu. Gífurleg eftirspurn var eftir
slátrum og má segja að þau hafi selst
upp ásamt 4000 síátrum sem fengin
voru frá Húsavík til að anna eftir-
spurn. í ár var öllu sauðfé á Eyja-
fjarðarsvæðinu, allt frá Ólafsfirði og
inn í Eyjafjarðarbotna, slátrað á
Akureyri. Engin sauðfjárslátrun var
á Dalvík líkt og undanfarin ár og
fluttu bændur í Ólafsfirði og Ár-
skógshreppi sláturfé sitt til Akureyr-
ar. Sláturfé á Eyjafjarðarsvæðinu
fækkaði um 7.500 kindur milli ára og
munar þar mestu að ekkert sauðfé
var í Svarfaðadal síðast liðið ár
vegna riðuniðurskurðar, en nokkrir
bændur í Svarfaðadal hafa nú fengið
fé að nýju. Þrátt fyrir það er búist
við að sauðfé muni fækka á Eyja-
fjarðarsvæðinu þar sem bændur eru
í auknum mæli að skipta fullvirðis-
rétti sínum yfir í mjólk.
HÍA, Akureyri
Starfslaunum Rikisútvarpsins til handa höfundum útvarps- og sjónvarpsefnis hefur verið úthlutað. Starfslaunin
eru veitt í allt að sex mánuði og fer árleg úthlutun fram á haustdögum. Að þessu sinni eru starfslaunaþegar tveir,
þeir Þórarinn B. Erlingsson, kvikmyndagerðarmaður og Þorsteinn Marelsson, rithöfundur. Þórarinn mun vinna
að gerð barnaefnis fyrir Sjónvarpið en Þorsteinn ætlar að skrifa útvarpsleikrit.
A myndinni eru Þórarinn B. Erlingsson, Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri og Þorsteinn Marelsson.
Skagafjörður:
samþykkt
Á laugardag samþykktu íbúar í
Hofs-, Fells-, og Hofsóshreppi í
almennri atkvæðagreiðslu að sam-
eina þessa hreppa. Var sameiningin
samþykkt með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða i öllum hreppunum.
í hinum nýja hreppi, sem enn
hefur ekki hlotið nafn, búa samtals
um 450 manns, en í Fellshreppu búa
um 50 manns, í Hofsóshreppi um
250 manns, og í Hofshreppi um 160
manns.
Úrvinnsla rekstrar- og efnahagsreikninga útgerðarinnar 1988 benda til að:
Afkomumunur milli svæða er enginn
Enginn marktækur munur mæl-
ist á afkomu ísfisktogara milli
norður- og suðursvæðis, ef tekið er
mið af vergum hagnaði togaranna.
Árin tvö á undan þ.e. 1986 og 1987
var greinilegur afkomumunur,
norðantogurunum í vil. Þetta kem-
ur fram í Útgerð og afkoma 1988,
sem hagdeild Fiskifélags íslands
hefur tekið saman.
Þannig mældist vergur hagnaður
minni aflamarkstogara norður-
svæðis nokkuð lakari en árið áður,
en vergur hagnaður þeirra nam,
þ.e. fyrir afskriftir og fjármagns-
kostnað, um 19,7% árið 1988, á
móti 22,6% árið áður. Afkoma
minni aflamarkstogara á suður-
svæði batnaði hins vegar og var
vergur hagnaður þeirra 20,8% á
árinu, á móti 18,4% árið áður.
Þetta sýnir að nú er svo komið að
enginn marktækur munur er á milli
svæða. Skýringin á þessu kann ef
til vill að liggja í auknum sölum
suðursvæðistogara á fiskmörkuð-
um sem gefa hærra verð; hagstæð-
ara karfaverð sem minnkar tekju-
mun, en hlutur suðursvæðistogara
er stór í karfaveiðum.
Vergur hagnaður minni sókn-
armarkstogara var minni en afla-
markstogara. Þannig sýndu 91,7%
norðursvæðistogara 18,6% hagnað
fyrir afskriftir og fjármagnskostn-
að, sem er svipað og árið áður, en
90% suðursvæðistogara um 18,5%
hagnað, en vergur hagnaður þeirra
var ívið lægri árið áður, eða 15,4%.
Sóknarmarkstogarar sýna nú svip-
aða afkomu á norður og suður-
svæði, þegar gengið er út frá verg-
um hagnaði.
Á norðursvæði mældist vergur
hagnaður stærri aflamarkstogara
að meðaltali 15% á árinu 1988 en
var 16% árið áður. Vergur hagnað-
ur stærri aflamarkstogarar á suður-
svæði nam um 21,1% á árinu, en
var að meðaltali 18,4% árið á
undan.
Hjá bátum án sérveiða voru 10
til 20 brl. bátar á aflamarki á
suðursvæði með bestu afkomuna
eða 15% vergan hagnað, en hins
vegar var lökust afkoman 51 til 110
brl. skipa á sóknarmarki á norður-
svæði, eða 5,5% tap fyrir afskriftir
og fjármagnskostnað.
Vergur hagnaður loðnubáta var
mun hærri á árinu 1988 en árið á
undan. Þannig sýndu 201 til 500
brl. bátar á norðursvæði um 23% í
hagnað fyrir afskriftir og fjár-
magnskostnað, en árið áður nam
hann um 17% að meðaltali. Þarna
kemur einkum til hærra verð á
afurðum. Hagnaður sömu báta-
stærðar á suðursvæði nam að með-
altali 21,7%.
f Útgerð og afkoma 1988 kemur
fram að á tímabilinu 1985 til 1988
hefur þróun launa, olíukostnaðar
og viðhalds sem hlutfall heildar-
tekna orðið eftirfarandi. Hlutur
olíu hefur lækkað mikið undanfar-
in ár. Á árinu 1988 nam meðalolíu-
kostnaður minni togara um 8,9%
tekna en um 22,2% árið 1985.
Launakostnaður nam um 36,2%
tekna hjá minni togurum, en um
31,9% árið 1985. Viðhald nam um
11,3% tekna hjá minni togurum
árið 1985 en 9,9% árið 1988. Hjá
stærri togurum nam viðhaldið
7,5% árið 1985 en 9,7% árið 1988.
Jafnframt kemur fram að veiðar-
færi virðast vera nokkuð stöðug
eða milli 5 til 6% af tekjum minni
og stærri togara. Hjá bátum hefur
hlutur Iauna af heildartekjum
lækkað, en á skattlausa árinu 1987
var veruleg aukning launahlutar af
heildartekjum. -ABÓ
Eurocard á íslandi með nýjung í greiðslukortaviðskiptum:
Aðildarfyrirtæki
í beinu sambandi
Eurocard á ísland hefur tekið í
notkun hugbúnað, svokallaðan Eu-
rotengil, sem gerir aðildarfyrirtækj-
um Eurocard á íslandi kleift að
komast í beint tölvusamband við
móðurtölvu Eurocard.
Teppabúðin er fyrsta aðildarfyr-
irtækið til að taka þessa nýjung í
notkun og jafnframt fyrsta fyrirtækið
á íslandi sem tekur upp tölvusam-
band við greiðslukortafyrirtæki.
Eurotengilinn er hugbúnaður til
notkunar á IBM samhæfðum PC og
PS tölvubúnaði. Honum er ætlað að
gera afgreiðslu Eurokredit samninga1
mun fljótvirkari, bæði fyrir starfs-
menn fyrirtækja og viðskiptayini,
auk þess ætlaður til að minnka líkur
á misnotkun kortanna. Til viðbótar
auðveldar búnaðurinn uppgjör í lok
dags og gefur jafnframt möguleika á
að auðvelda uppgjör í lok hvers
úttektartímabils.
Hugbúnaðurinn er látinn aðildar-
fyrirtækjum Eurocard í té, þeim að
kostnaðarlausu. -ABÓ
Kristjana Valdimarsdóttir situr við tölvuna, en hjá henni standa Gunnar
Bæringsson, Eurocard, og Jón Kjartansson hjá Teppabúðinni.
Tímamynd Árni Bjarna
Mýkri rakstur
Raksturinn er helgasta stund
hvers dags í vitund allra réttskeggj-
aðra karlmanna. Frá Gillette mun
hinu kafloðna kyni brátt bætast nýr
bagall til helgihaldsins þar sem er
hin byltingarkennda Sensor-rakvél.
I fréttatilkynningu frá Glóbus, um-
boðsaðila Gillette hérlendis, hafa
hinir færustu aðilar, beggja vegna
Atlantsála, árum saman starfað að
hönnun hinnar nýju vélar og þurfti
víst nýjan tækjakost til. Þá hefur
fyrirtækið þegar fengið skráð 18
einkaleyfi út á rakstrarvél þessa og
fleiri munu í vændum.
Gillette Sensor er búin tveimur
blöðum, þeim mjóstu í mannkyns-
sögunni og hvílir hvort um sig á
sérstökum fjöðrum. Fyrir vikið
nema blöðin allar hugsanlegar mis-
fellur á yfirborði húðarinnar. Þar við
bætist að þau munu vera hin beitt-
ustu er enn hafa við kjamma komið
og hert sérstaklega með króm- og
hvítagullshúð. Veltibúnaður blað-
anna er nú næmari en áður þekktist
og eykur það skurðgetuna. Legu
blaðanna hefur einnig verið nýskip-
að frá fyrri framleiðslu; hið fremra
liggur nú nær húðvörninni en áður
hefur tíðkast og eiga skeggbroddarn-
ir, að þessu og fleiru samanlögðu,
sér engrar viðreisnar von. Ekki má
heldur gleyma að hausinn á Sensor
þessum mun vera sá alminnsti er
þekkst hefur í raksturs minnum. Að
sögn umboðsmanna gefur þessi til-
högun bætta stýringu tólsins og
tryggir „betri skoðun skeggsins er
skera þarf.“
Þess má loks geta að til að tryggja
gæðaeftirlit við tilurð hinnar nýju
rakvélar lét Gillette hanna sérstakt
leysi- og myndbandskerfi er notað er
á tuttugu stigum framleiðslunnar.
Leiðrétting
Nafn höfundar 75 ára minningar
Hafsteins Björnssonar miðils misrit-
aðist, en það á að vera Helgi Vigfús-
son en ekki Sigfússon. Er hlutaðeig-
andi beðinn velvirðingar á þessum
mistökum.