Tíminn - 15.10.1991, Side 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 15. október 1991
Fækkun bankastarfsmanna ekki minni í Búnaðarbanka en sameiningarbönkum:
Bankastarfsmönnum hefur
fækkað um 180 frá 1988
Starfsmenn (stöðugildi) viðskiptabankanna þriggja voru
2.518 í lok síðasta árs. Þeim hafði þá fækkað um 182,
eða tæp 7%, frá því sem þeir urðu flestir, 2.700 tveim ár-
um áður, samkvæmt skýrslu bankaeftirlits Seðlabankans.
Það virðist hins vegar síður en svo einhlít skýring að
þetta sýni þá hagræðingu, sem bankamir hafa náð með
sameiningum síðustu ára og fækkun afgreiðslustaða úr
135 niður í 130.
Sú athyglisverða staðreynd kemur
t.d. í Ijós, að starfsmönnum Búnað-
arbankans hefúr síður en svo fækk-
að minna en öðrum.
í þessum eina banka, sem engum
hefur sameinast, fækkaði starfs-
mönnum um 49, eða rúmlega 9%,
milli 1987 og 1990. Hlutfall starfs-
manna og innlána virðist heldur
hvergi hagstæðara en í Búnaðar-
bankanum, en hins vegar óhag-
stæðast í íslandsbanka. Hlutfall
innlána og starfsmanna, og fjöldi
þeirra, skiptist þannig um síðustu
áramót:
Innlán og starfsmenn bankanna:
Starfsmenn: Innlán:
% %
Landsbanki 1.236 49,1 46,3
íslandsbanki 796 31,6 27,5
Búnaðarbanki 486 19,3 26,2
2.518 100% 100%
Framangreindar tölur eiga við um
viðskiptabankana eina. Starfsmenn
sparisjóða voru 424 um síðustu
áramót, eða 14,4% af heildarfjölda
starfsmanna sem voru 2.942 talsins
í lok síðasta árs. Sparisjóðimir
varðveittu þá einnig 17,1% heildar-
innlána banka og sparisjóða, og
höfðu þá aukið þann hlut sinn úr
16,3% árið áður.
Búnaðarbankinn jók einnig hlut
sinn umtalsvert á s.I. ári, eða úr
20% upp í 21,7% heildarinnlána
banka og sparisjóða (eða úr 23,9%
upp í 26,2% innlána viðskiptabank-
anna). - HEI
Landssamband verslunarmanna segir framfærslu-
byrði heimilanna þyngda verulega í fjárlagafrumvarpi:
Auknar álögur
á almenning
„Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir lækkun heildarútgjalda ríkissjóðs.
Þarna er aðeins um að ræða leik að tölum og orðum, þegnum landsins er
ætlað að greiða þessa lækkun og gott betur. Nú heita skattamir „þjónustu-
gjöld“ og þeir, sem nýta „þjónustuna“, skulu greiða fyrir.“ Þetta er úr
ályktun sem samþykkt var samhljóða á fundi framkvæmdastjómar Lands-
sambands íslenskra verslunarmanna, sem telur um 15.000 félagsmenn.
Hópurinn meö kennara sínum, Sigrúnu Stefánsdóttur.
Hagnýt fjölmiðlun Háskólans:
Fyrstu nemar útskrifaðir
Stjómin lýsir þar undmn á ýmsum
þeim fyrirætlunum, sem sjá má í
Frumvarpi til fjárlaga 1992. Þar sé
vegið að grundvallaratriðum ís-
lenska velferðarkerfisins. Skorar
stjómin því á ríkisstjómina og
stjómarflokkana að endurskoöa
frumvarpið.
„í heild felur frumvarpið í sér aukn-
ar álögur sem einkum snúa að al-
menningi," segir í ályktuninni. Ein
af undirstöðum hins svokallaða vel-
íslandsklukkan
út í Danmörku
Danska bókaforlagið Cicero hefur
sent frá sér nýja útgáfu af stórverki
Halldórs Laxness, „íslandsklukk-
an“. Bókin hefur ekki fengist í Dan-
mörku um árabil.
„íslandsklukkan" er fyrsta bók Hall-
dórs sem Cicero gefur út. Fram til
þessa hefur Gyldendal-forlagið gefið
út bækur hans í Danmörku. Vaka-
Helgafell hefur gert framtíðarsamn-
ing við Cicero, sem framvegis mun
gefa út verk Halldórs. Unnið er að út-
gáfu „Vefarans mikla frá Kasmír" og
sögunnar „Ungfrúin góða og húsið“.
Cicero stefnir að því að gefa öll verk
skáldsins í Danmörku.
Þetta er þriðja útgáfa „íslandsklukk-
unnar“ á dönsku. Jakob Benedikts-
son þýddi. Dómar danskra blaða hafa
verið mjög lofsamlegir. -aá.
Sameinuðu þjóðirnar:
80% barna
bólusett
„Á fjömtíu ára afmæli Sameinuðu
þjóðanna 1985 ákváðu þjóðarleið-
togar heims að efla til muna bólu-
setningar barna, þannig að í árslok
1990 hefðu 80% allra barna heims-
ins verið bólusett gegn hinum ýmsu
smitsjúkdómum sem herja á börn.
Við athöfn í aðalstöðvum Samein-
uðu þjóðanna í New York 8. október
sl. á vegum Alþjóða heilbrigðisstofn-
unarinnar og Barnahjálpar Samein-
uðu þjóðanna var tilkynnt, að mark-
miði þessu hefði verið náð,“ segir í
fréttatilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu.
-aá.
ferðarkerfis hafi falist í góðri heil-
brigðisþjónustu. í stefnu núverandi
ríkisstjómar felist hins vegar gróf að-
för að heilbrigðiskerfinu, sem valdi
mismunun þegnanna.
Stjóm LÍV segir sömuleiðis Ijóst að
framfærslubyrði heimilanna muni
þyngjast vemlega, verði frumvarpið
óbreytt að lögum. Minni niður-
greiðslur landbúnaðarvara muni
hækka matarkostnað heimilanna og
bitna harðast á láglaunafólki.
Niðurskurður útgjalda vegna ríkis-
ábyrgðar á launum muni einnig
koma hart niður á láglaunafólki, á
sama tíma og áhersla er lögð á aukn-
ar ábyrgðir á lánum til fýrirtækja.
Stjórn LÍV krefst þess af ríkistjórn-
inni að hún endurskoði þau atriði
fjárlagafrumvarpsins, sem einkum
snúa að launafólki. Með tillögum rík-
isstjómarinnar sé samningaviðræð-
um stefnt í hættu og líkur auknar á
átökum á vinnumarkaði.
Fyrsti hópurínn, sem stundar nám
í hagnýtrí fjölmiðlun við Háskóla
íslands, alls fjórtán nemendur, út-
skrífaðist í lok september.
Nám í hagnýtri fjölmiðlun er ætlað
þeim, sem lokið hafa háskólaprófi
eða hafa reynslu af störfum á fjöl-
miðlum. Áhersla er lögð á meðferð
málsins, frétta- og greinaskrif, gerð
útvarps- og sjónvarpsþátta og kenn-
ingar um fjölmiðla og hlutverk
þeirra. Náminu lýkur með þriggja
mánaða starfsþjálfun.
Liðlega tuttugu manns stunda nú
nám í hagnýtri fjölmiðlun við Há-
skóla íslands. Lektor er dr. Sigrún
Stefánsdóttir.
-aá.
Samstarfsnefnd náms-
mannahreyfinganna:
Lýsir and-
stöðu við
tillógur
LÍN-nefndar
„Samstarfsnefnd námsmannahreyf-
inganna lýsir andstöðu sinni við þá
kollvörpun námslánakerfísins, sem
kemur fram í skýrslu nefndar um
endurskoðun laga um LÍN.
Hingað til hefur Lánasjóðurinn
verið jöfnunartæki og gert öllum
kleift að fara í nám. Með þessum
hugmyndum er beinlínis komið í
veg fyrir að ungt fólk í landinu leiti
sér menntunar.
Samstarfsnefnd námsmannahreyf-
inganna hefur marglýst yfir vilja sín-
um til að ræða við stjórnvöld. Við
áttum von á tillögum um lagfæring-
ar á núverandi kerfi, en fengum í
hendurnar hugmyndir að alveg nýju
kerfi sem gengur þvert á þær jafn-
réttishugmyndir, sem núverandi
kerfi byggir á,“ segir í yfirlýsingu
Samstarfsnefndar námsmanna-
hreyfinganna. -aá.
Frá Blindrafélaginu:
Alþjóðlegur dagur
hvíta stafsins
Alþjóðlegur dagur hvíta stafsins er
í dag, 15. október. Tfmanum hefur
boríst eftirfarandi ávarp frá
Blindrafélaginu, flutt í tilefni dags-
ins:
„Hvíti stafurinn er aðalhjólpartæki
blindra og sjónskertra við að kom-
ast leiðar sinnar. Hann er jafnframt
forgangsmerid þeirra í umferðinni.
Það krefst langrar þjálfunar að
læra að nota hvíta stafínn svo að
hann komi að sem mestum notum.
Þjálfunin er fólgin í að læra að beita
stafnum á réttan hátt, læra ákveðn-
ar leiðir og að þckkja kennileiti.
MMvægt er að hlusta eftir um-
hverfíshljóðum, t.d. eru fjölfamar
götur gott kennileíti. Þegar blindur
eða sjónskertur þarf að komast yflr
götu, heldur hann hvíta stafnum
skáhallt fyrir framan sig.
Ökumenn og aðrír vegfarendur
taka í ríkara mæli tillit til blindra og
sjónskertra sem nota hvíta stafínn.
Eitt aðalvandamál þess, sem ferð-
ast um með hjálp hvita stafsins, eru
kyrrstæðir bOar á gangstéttum.
Þessir bflar geta verið stórhættu-
legir, sérstaldega vörubflar og aðrír
háir bílar. Stafúrínn lendir undir
bílnum og sá blindi verður ekki var
við hann í tæka tíð.
Skorað er á ökumenn að virða
hvíta staflnn sem stöðvunarmerid.
Vegfarendur eru hvattir til að sýna
blindum og sjónskertum fyllstu til-
litssemi í umferðinni og að bjóða
fram aðstoð sína, ef þurfa þykir,
með því að rétta fram handlegginn
svo að Mnn blindi eða sjónskerti
geti fylgt honum eftír."
-aá.