Tíminn - 02.02.1994, Page 2
2
Mibvikudagur 2s. febrúar 1994
Tíminn
spyr...
Hvernig lýst þér á prófkjör
Sjálfstæöisflokksins í Reykja-
vík og niburstööur þess?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
alþingismabur
„Mér finnst þessi prófkjör hálf
hallærisleg. Þab hlýtur að vera
mjög erfitt fyrir ákveöna einstak-
linga að taka þátt í þessu og mæra
sjálfa sig. Sjálfstæðismenn ,hafa
hafnab því fólki sem hefur staðið í
ákveðnum átökum. Önnu K. Jóns-
dóttur er hafnað vegna átaka við
dagmæður, Sveini Andra Sveins-
syni vegna átaka um SVR og Júlíusi
Hafstein vegna þessara fáránlegu
átaka hans við Rithöfundasam-
bandið. Með þessu er Sjálfstæðis-
flokkurinn að reyna að hvítþvo sig
af þessum málum, en auðvitaö geta
sjálfstæðismenn það ekki því borg-
arstjómarflokkurinn ber ábyrgð á
því hvemig þessi mál hafa gengið
fram. Nú svo finnst mér hlutur
kvenna í þessu prófkjöri rýr."
Sigrún Magnúsdóttir
borgarfuiltrúi
„Mér lýst ekki illa á þessi úrslit. Það
er áberandi að ákveðnum borgar-
fulltrúum er hegnt fyrir framgöngu
sína í óvinsælum málum. Sveini
Andra er hent út í ystu myrkur fyr-
ir framgöngu sína í málefnum SVR.
Ákvarðanir sínar tók hann hins
vegar í skjóli borgarstjóra og mér
hefði fundist eðlilegt að það væri
þama einhver samsvömn á milli.
Dagvistarmálin em í ólestri hjá
borginni og Önnu K. Jónsdóttur er
refsað fyrir það. Það sem vekur
kannski mesta athygli er útkoma
Júlíusar Hafstein og þar hefur
ákvörðun hans að hafna leikriti
sem lýðveldishátíðamefnd haföi
keypt af Örnólfi Ámasyni haft mik-
il áhrif. Maöur heyrir að gámng-
amir kaUi þetta leikrit Banabit-
ann."
Arthur Morthens, kennari og
varaformaður stjómar fulltrúa-
rábs Alþýðubandalagsins í
Reykjavík
„Mér sýnist þetta vera flokksleg
niðurstaba. Ég tel að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafl náð ab setja saman
svona tUtölulega sterkan Usta."
Fulltrúar Framsóknarflokks og Alþýöubandalagsins krefjast þess aö frumvarp
framsóknarmanna um búvörulög veröi tekiö fyrir á dagskrá Alþingis í dag:
Stefnir í átök
um málið á þingi
Páll Pétursson, formaður
þingflokks framsóknar-
manna, kraföist þess vib upp-
haf þingfundar í gær aö fmm-
varp framsóknarmanna um
breytingar á búvörulögum
veröi tekib á dagskrá í dag.
Starfandi þingflokksformaður
Alþýðubandalagsins tók und-
ir þessa kröfu.
í umræöunni í gær kom ekkert
fram í máli landbúnaðarráð-
herra eða utanríkisráöherra sem
benti til að deila stjómarflokk-
anna um búvörulagafrumvarp-
ið væri að leysast. Enn virðast
flokkamir togast á um tollnúm-
er eins og þeir hafa gert í rúma
viku. Landbúnaöarrábherra
sagöi í gær að frumvarpið kæmi
bráðum fram.
Guðni Ágústsson alþingismað-
ur sagði við upphaf þingfundar í
gær að sér virtist ólíklegt að rík-
isstjómin næði samkomulagi í
málinu vegna þess aö Jón Bald-
vin væri sýnilega búinn að yfir-
taka landbúnaðarráðuneytiö.
Halldór væri greinilega í gísl-
ingu Jóns Baldvins.
Páll sagði aö þingmenn gætu
ekki beðiö lengur eftir því að
ríkisstjómin kæmi sér saman
um frumvarp til breytinga á bú-
vömlögum. Það sé því eðlilegt
aö þingið taki til umfjöllunar
þaö þingmannafrumvarp sem
lagt hefur verib fram um þetta
efni. Páll sagði að ef forseti Al-
þingis mundi ekki veröa vib ósk
Framsóknarflokksins og AI-
þýbubandalagsins um að taka
framvarp framsóknarmanna á
dagskrá þingsins, yrði gerð al-
varleg athugasemd við það við
upphaf þingfundar í dag.
-EÓ
Stefán Pálsson starfsmaöur RKI, Zophanías Antonsson gjaldkerí Dalvíkurdeildar RKI og Ólafur Árnason formaöur
Dalvíkurdeildar, hjá bílunum nýju.
Tveir nýir sjúkrabílar
Deildir Rauöa kross íslands á
Dalvík og í Grindavík tóku
nýlega viö nýjum glæsileg-
um sjúkrabílum, sem munu
leysa eldri bíla deildanna af
hólmi.
Bílamir em af gerðinni Ford
Econoline 350 Diesel Turbo og
þeir em búnir mjög fullkomn-
um tækjum, meöal annars
hjartasmðtæki og sog- og súr-
efnistæki. Bílarnir em fjór-
hjóladrifnir og kosta með
tækjabúnaöi um átta milljónir
króna hvor.
Frá upphafi hefur þaö verið
eitt meginverkefna deilda
Rauöa kross íslands aö afla fjár
til kaupa á sjúkrabílum. Núna
eiga deildir RKÍ 67 sjúkrabíla,
sem langflestir em nýir eða
nýlegir og búnir fullkomnum
tækjakosti. í höfuöborginni
em sjúkrabílamir reknir í sam-
vinnu Reykjavíkurdeildar RKÍ
og slökkviliös Reýkjavíkur, en í
dreifðum byggðum víða úti á
landi annast deildimar sjálfar
reksmrinn og sjálfboðaliðar á
þeirra vegum sjá um sjúkra-
flutningana í samvinnu við
heilbrigöisyfirvöld á viðkom-
andi svæöum. í stærri byggö-
arlögum em sjúkrafluming-
arnir á vegum sjúkrahúsa og
heilsugæslustöðva, samkvæmt
samkomulagi við deildirnar.
Stjórn Neytendasamtakanna:
Tekur undir
gagnrýni
Stjóm Neytendasamtakanna
tekur undir þá gagnrýni sem
borist hefur frá Neytendafélagi
Akureyrar um byggingarfúsk,
sem kom fram vegna ákvörö-
unar húsnæðisnefndar um
kaup á íbúðum í Drekagili 28 á
Akureyri.
Neytendasamtökin lýsa yfir
ánægju meb afskipti og gagnrýni
Neytendafélags Akureyrar vegna
óvandaðra vinnubragða við
byggingar, sem félagið hefur kall-
að byggingarfúsk. Samtökin telja
gagnrýni Neytendafélagsins fylli-
lega réttmæta og eblilega. íbúð-
irnar sem ákveðiö hafi verið að
festa kaup á séu þannig hannaöar
að hæpið sé ab bjóða bamafjöl-
skyldum þær til kaups.
Þá lýsa samtökin yfir stuðningi
vib formann Neytendafélags Ak-
ureyrar og vinnubrögð hans og
fordæma hvemig reynt hefur ver-
ið í framhaldi þessa máls að vega
persónulega að formanninum.
Slíkur rógur sýni best hversu
veikur málstaður þeirra sé, sem
slíku beita. -PS
Staða iðnaðar-
ins könnuð
Sighvatur Björgvinsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, hefur skip-
að starfshóp til að kanna starfs-
skilyrði og samkeppnisstöbu ís-
lensks iðnaðar. Hópnum er eink-
um ætlað að líta á stöðu iðnaðar-
ins í samanburði við aðrar
atvinnugreinar með líkum hætti
og gert var í skýrslu starfsskil-
yrðanefndar sem skipuð var til að
bera saman starfsskilyrði iðnaðar,
sjávarútvegar og landbúnaðar
sem kom ú í janúar 1982.
Áhersla er lögð á að dregnar
verði fram þær breytingar sem
orðið hafa á starfsskilyrbum frá
árinu 1982 og hverju sé enn
ábótavant varöandi jöfnun
þeirra. Einnig er hópnum ætlað
að fjalla um sveiflur í þjóðarbú-
skapnum og áhrif þeirra á þróun
iðnaðar. Loks er hópnum ætlaö
að bera saman helstu þætti í
starfsskilyrðum ibnfyrirtækja á
íslandi og helstu nágranna- og
samkeppnislöndum okkar.
Þórður Friöjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, er formaður
starfshópsíns, en með honum í
hópnum eru Finnur Svein-
bjömsson, skrifstofustjóri í iön-
aðar- og viðskiptaráðuneyti, og
Þorsteinn M. Jónsson, hagfræð-
ingur Samtaka iðnaðarins. -EÓ
Aösóknin aö heilsdagsskóla hefur vaxiö jafnt og þétt segir Viktor Cuölaugsson hjá Skólaskrifstofu:
Einsetningu komib á í fjórum
grunnskólum á næsta hausti
„Skólaskrifstofan og Skóla-
málaráð eru með þessu ab
leggja áherslu á aö einsetnum
skóla verði komiö á í einhverj-
um áföngum," sagöi Viktor
Guölaugsson hjá Skólaskrif-
stofu Reykjavíkur.
En henni hefur verið falið að
vinna að framkvæmd samþykkt-
arar Skólamálaráðs Reykjavíkur á
erindum fjögurra skóla; Breiða-
geröisskóla, Vogaskóla, Laugar-
nesskóla og Ölduselsskóla, um
aö þeim veröi gert kleyft ab
koma á einsetningu haustiö
1994. Til ab ná þessu markmiði
er gert ráb fyrir að setja þurfi upp
6 lausar kennslustofur og auk
þess nýta annað húsnæði í eigu
borgarinnar.
Fossvogsskóli er einsetinn fyrir,
sem og allir þrír unglingaskól-
arnir. í þessum áfanga segir Vikt-
or reynt að byrja á þeim skólum
þar sem styst var í einsetningu,
þ.e. þar sem hvað minnst vantar
af kennsluhúsnæði til að þessu
skipulagi verði við komið. „Við
verðum þannig með átta ein-
setna skóla a.m.k. í haust. Síöan
erum vib ab undirbúa næstu
skref. Þannig gæti verið að einn
til tveir skólar bættust í þennan
hóp að hausti, en þaö er ekki al-
veg fyrirséb."
í Ölduselsskóla segir Viktor að
hugsanlega verði gerðar breyt-
ingar í samvinnu við skóladag-
heimili til að mæta þessu. Því
þörf fyrir það hverfi að vemlegu
leyti með þessum breytingum.
Aðspuröur um kostnað segir
hann ráð fyrir því gert að beinn
útlagður kostnaður við aö taka
framangreint skref verði kring-
um 40 milljónir, þ.e. til að
kennsluhúsnæði verði fullnægj-
andi að hausti.
Þar sem Gallupkönnun meðal
reykvískra foreldra s.l. haust
leiddi m.a. í ljós að skilningur
fólks á hugtakinu „einsetinn
skóli" er mjög á reiki, varð Viktor
aö skilgreina hvaö í þessu felst.
„Einsetinn skóli þýðir, að allt
skólastarf geti farið fram samtím-
is, þ.e.a.s. að allir nemendur geti
mætt að morgni og lokið sínu
skólastarfi síðdegis, kannski á ör-
lítiö mismimandi tímum eftir
þvi hve stundaskrár nemenda
gefa tilefni til."
Viktor segir reynslu af heils-
dagsskólum hafa verið einstak-
lega góða. „ Við fáum nánast eng-
ar kvartanir frá foreldmm. Og
aðsóknin vex stöðugt. Vib gerð-
um upphaflega ráð fyrir 1.200 til
1.300 nemendum. En núna er-
um við komin meö um þab bil
2.000 manns. Þeim hefur fjölgab
jafnt og þétt," segir Viktor. - HEI