Tíminn - 02.02.1994, Page 7
Útborgun í peningum hœkkaö í 2,9 milljónir af 6,6 milljóna meöalíbúöinni í Reykjavík:
Utborgunarhlutfallið
hækkab í 43% kaupverðs
Útborgunarhlutfall fjölbýlis-
íbúba í Reykjavík hækkaöi
verulega milli 2. og 3. árs-
fjórbungs á síbasta ári, eba
úr 38% upp í rúmlega 43%
verösins sem kaupendur
þurftu aö meöaltali aö borga
í peningum. Þetta er hæsta
útborgunarhlutfall sem sést
hefur í s.l. tvö ár.
Á sama tíma hafa húsbréfa-
lánin fariö lækkandi. Hús-
bréfalánin (frumbréf) urðu
hæst um 27% að meöaltali af
söluveröi fjölbýlishúsaíbúða á
síöasta fjórðungi ársins 1990.
Tæpum þrem ámm síðar eru
aðeins tæplega 19% af meðal-
verði íbúða í fjölbýli greidd
með húsbréfalánum. Hins
vegar em þá jafnaðarlega 25%
kaupverðsins greidd með yfir-
töku eldri lána frá Byggingar-
sjóði ríkisins — sem þannig
(löngu eftir „jarðarförina")
lánar nú orðið íbúðarkaup-
endum miklu meira en Hús-
bréfadeildin. íbúðaverð í fjöl-
býlishúsum í Reykjavík breytt-
ist mjög lítið milli 2. og 3. árs-
fjórðungs 1993 og
bráðabirgðatölur fyrir 4. árs-
fjórðung gefa sömu niður-
stöðu. Kaupsamningum, sem
berast til Fasteignamatsins,
hefur samt fækkað vemlega
frá '92 til '93, eða um 10% í
fjölbýli og samningum um
einbýlishús um 30%. Raun-
verð einbýlishúsa hefur sömu-
leiðis lækkaö um 4% til 6%
milli þessara ára.
Meðalíbúðin (í fjölbýli), sem
keypt var í Reykjavík á 3.
fjórðungi síðasta árs, var 86,7
fermetrar að stærð og seld á
rúmlega 6,6 milljónir að nafn-
verði — eða rétt um 79.000 kr.
á fermetra. Greiðslur skipmst
þannig í útborgun í pening-
um, yfirtekin lán og aðrar
greiðslur:
Skipting kaupv. meöalíbúöar
Útborgun 2.870 þús. 43,3%
Bygg.sj.rík. 1.655 þús. 25,0%
Líf.sj. (yfirt.) 177 þús. 2,7%
Bankar (yfirt.) 8 þús. 0,1%
Húsbréfalán 1.250 þús. 18,8%
Húsbr.-veröbréf 605 þús. 9,1%
Handh.skuldabr. 65 þús. 1,0%
Meðalv. samt.: 6.630 þús. 100,0%
Athyglisvert er að skoða þessa
skiptingu í samanburði við
„gamla kerfiö". í „gamla kerf-
inu" komu lán Byggingarsjóðs
inn í dæmið sem hluti af út-
borguninni. Þá fengu líka selj-
endur útborgunina greidda í
peningum, en ekki að tölu-
verðum hluta í bréfum eins og
nú tíðkast.
Til að gera samanburö við
eldra kerfi má því reikna bæði
húsbréfalánið og verðbréfin
sem hluta útborgunar, sem þar
með verður 4.725 þús.kr. —
eða rúmlega 71% kaupverðs-
ins. Þannig að útborgunar-
hlutfallið nú er í rauninni
nokkum veginn það sama og
algengt var í „gamla kerfinu".
Breytingin er sú ein, að opin-
bera lánafyrirgreiöslan reikn-
ast ekki lengur sem hluti út-
borgunar.
-HEI
Vont aö standa ekki í skilum, en engin ástœöa til aö leggja fyrirtœkiö
niöur. Silfurstjarnan í Öxarfiröi:
Annar ekki eftirspurn í
sölu á laxi og bleikju
„Þaö gengur vel aö selja. Viö
höfum náö því aö vera meö
góöan fisk, bæöi í bleikju og
laxi, og önnum ekki eftir-
spum," segir Bjöm Benedikts-
son hjá fiskeldisfyrirtækinu
Silfurstjömunni hf. í Öxarfiröi.
„Viö höfum upp í rekstrarkostn-
aö og afskriftir og eitthvaö betur.
Þaö þýöir þaö aö viö getum ekki
staðið viö skuldbindingar gagn-
vart framkvæmdalánum Byggða-
stofnunar. Ekki nema þá á mim
lengri tíma en gert var ráö fyrir,"
segir Bjöm. Hann segir að höfuö-
stóll þessara lána, sem veitt voru
vegna uppbyggingar stöðvarinn-
ar, séu um 350 milljónir króna.
En eins og kunnugt er, þá var
gagnrýnd sú fyrirgreiösla sem
fyrirtækið fékk hjá Byggðastofn-
un á sínum tíma og þá einkum
þáttur Stefáns Valgeirssonar, þá-
verandi alþingismanns, í því
máli.
„Það er alltaf vont aö standa
ekki viö skuldbindingar. En þær
vom náttúrlega ekki líklegar til
aö halda. Aftur á móti er það
grundvallaratriði að ná afskrift-
um og rekstrarkostnaöi og því
engin skynsemi að leggja þetta
fyrirtæki niður."
Á síöastliönu ári nam fram-
leiðsla Silfurstjömunnar um 600
tonnum af laxi og bleikju. Gjald-
eyrisverðmæti framleiöslunnar
nam um 150-200 milljónum
króna og í stöðinni em um 25
ársverk. Þá greiöir fyrirtækiö um
700 þúsund krónur í skatt í mán-
uði hverjum. Þar fyrir utan em
ótalin þau margfeldisáhrif, sem
starfsemi stöövarinnar hefur fyr-
ir byggöarlagiö.
„Úr því sem komið er og búið aö
byggja þetta, þá veröur þjóðin aö
sætta sig viö að fá þetta sem hún
fær. Ef hún fengi það ekki, þá
þyrfti aö greiöa þessum 25
mönnum atvinmileysisbætur,
sem yröi líka erfitt," segir Björn
Benediktsson.
Góöir markaðir em fyrir bleikju
erlendis og hafa innlendir fram-
leiöendur ekki getað annað eftir-
spum. Bjöm segir aö hvaö þá
varöar sé staðan svipuö í laxin-
um. „Viö gætum selt miklu
meira."
Hann segir að þeir selji erlend-
um aðiliun laxinn á mun betra
verði en almennt gangverö sé
ytra og á mun hæna veröi en
fæst fyrir norskan lax.
„Þab segja auðvitað allir aö við
séum aö monta okkur af þessu.
En þaö er meö þetta eins og þing-
eyska montiö. Þaö er ekki hægt
að skýra hversvegna það er."
Helsti bleikjumarkaður fyrir-
tækisins er í Bandaríkjunum,
þótt einnig sé ágætur markaöur
fyrir bleikju í Evrópu. Meöal
annars hefur fyrirtækið flutt út,
með aðstoö SH, smá bleikjuflök á
markað í Sviss fyrir ágætis verö.
„Okkar dýrmætasti markaöur er
í Bandaríkjunum. Eiginleikar
markaöarins em þeir aö hann
tekur ekki aöeins viö bleikju, sem
er 900 grömm eöa stærri, á þeim
verðum sem við viljum fá," segir
Bjöm Benediktsson hjá Silfur-
stjömunni.
-grh
Prófkjör Sjálfstœbisflokksins vítt og breitt
um landiö:
Gunnar efstur
á Akranesi
Gunnar Sigurösson, fram-
kvæmdastjóri og formaður
Knattspymufélags ÍA, hafn-
abi í efsta sæti lista Sjálfstæð-
isflokksins á Akranesi um
helgina. Gunnar fékk yfir-
gnæfandi meirihluta at-
kvæba í fyrsta sæti, eöa 449.
Pétur Ottesen verslunarmab-
ur hafnaði í ööru sæti með
209 atkvæöi í tvö efstu sæt-
in, þar af 22 í efsta sætib.
Elinbjörg Magnúsdóttir fisk-
verkakona varö í þriðja sæti
með 273 atkvæöi í þrjú efstu
sætin, þar af 36 atkvæbi í efsta
sætið. Sigríður Guðmunds-
dóttir lenti í fjórða sæti og
Þórður Þórðarson í fimmta
sæti. Flokkurinn fékk tvo full-
trúa kjöma í bæjarstjóm Akra-
ness í síðustu kosningum.
í prófkjöri Sjálfstæbisflokks-
ins á ísafiröi var Þorsteinn Jó-
hannesson yfirlæknir tví-
mælalaust sigurvegari, en
hann fékk yfirgnæfandi fjölda
atkvæða í fyrsta sætið. í öðm
sæti hafnaöi Halldór Jónsson
útgerðartæknir, Kolbrún Hall-
dórsdóttir í þriðja sæti, Pétur
H.R. Sigurðsson í fjórða sæti
og Ragnheiður Hákonardóttir í
því fimmta. í síðustu bæjar-
stjómarkosningrun klofnaði
flokkurinn og vom boðnir
fram tveir listar: D-listi, sem
fékk þrjá menn kjöma, og I-
listi, sem fékk tvo menn.
í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins í Njarðvík hélt efsti maður
á lista flokksins í síðustu kosn-
ingiun, Ingólfur Báröarsoh,
sæti sínu, en nýr maður kemur
í annað sætib, Jónína A.
Sanders hjúkmnarfræðingur,
sem verður að teljast sigurveg-
ari þessara kosninga. Hún fékk
langflest atkvæði allra í kjör-
inu, en í þriðja sæti lenti Krist-
bjöm Albertsson, sem áður
skipaði annað sætib. Sjálfstæð-
isflokkurinn fékk þrjá menn
kjöma í bæjarstjóm í síðustu
kosningum.
-PS