Tíminn - 02.02.1994, Síða 9
Miövikudagur 2. febrúar 1994
9
Berklatilfellum fjölgar um allan heim
Búist er vib aö fórnarlömb
berkla á síðasta áratug aldar-
innar verbi um 30 milljónir
Berklar e&a „Hvíti
dau&i" eins og
sjúkdómurinn var
gjarnan kallabur
hefur verib í sókn
ví&ast hvar í
heiminum á und-
anförnum árum.
Ýmsar ástæ&ur eru þess vald-
andi að útbreiösla berkla hefur
aukist. Heilbrigöisyfirvöld hafa
víöa sofnaö á verðinum og ekki
unnið forvamarstarf sem skyldi.
Skortur á lyfjum og ömurlegur
aðbúnaður flóttafólks, sem
verður oft á tíöum aö hírast í
miklu fjölmenni við bágbomar
hreinlætisaðstæður, em nánast
uppáskrift fyrir sjúkdóminn.
Berklar em algengasta dánaror-
sök alnæmissjúklinga í Afríku.
Samkvæmt könnimum Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinn-
ar, WHO, munu þrjár og hálf
milljón manns látast árlega úr
berklum fram til aldamóta.
Sjúkdómurinn er skæðastur í
Afríku, Asíu og Suður- Ameríku
en Bandaríkin og ríki Evrópu
hafa heldur ekki farið varhluta
af þessari óhugnanlegu þróun.
REUTER
Sarajevó
Árás á Mostar
Útvarpið í Sarajevó greindi frá
því í gær að sjö manns hefðu
særst í árás Bosníu-Króata á
borgina Mostar. Flestir íbúar
borgarinnar em Múslimar.
jerúsalem
Samningaviðræður
teygjast á langinn
ísraelskir embættismenn em
svartsýnir á að samningar náist
fljótt við Frelsissamtök Palest-
ínu, PLO, um brottför ísraels-
hers frá herteknu svæðunum.
Eftir bráðabirgðasamkomulag
Arafats, leiðtoga Frelsissamtak-
anna, og Peresar, utanríkisráð-
herra ísraels, í Davos um síðustu
helgi var tilkynnt að gengið yrði
frá endanlegu samkomulagi um
brottflutning ísraelshers frá
Gazasvæðinu og Jeríkóborg inn-
an viku. Nú'er talið að þaö taki
jafnvel mánuð.
Teheran
Skotum hleypt af undir
ræbu forsetans
Hleypt var af skotum undir
ræðu Akbars Hashemi Rafsanj-
ani, forseta
írans, sem hann hélt í gær í til-
efni þess aö fimmtán ár em lið-
Efekkert fœst ab gert munu 30 milljónir manna látast úr berklum á áratugnum sem er ab líba. 90 milljónir til
vibbótar munu smitast af sjúkdómnum. Þessu spáirAlþjóbaheilbrígbismálastofnunin, WHO.
Fyrirbyggjandi
abgerðir
- Sérfræðingar halda því fram
að ef rétt væri aö málum staðið
þá mætti komast hjá þessum
harmleik. Hiroshi Nakajima,
framkvæmdastjóri WHO, segir
aö það eigi aö vera hægt að
stövða útbreiðslu sjúkdómsins
en það krefjist þess að þjóðir
heims taki höndum saman og
hjálpi til þar sem ástandið er
verst.
Það mundi kosta þróunarlönd-
in sem nemur sjö milljörðum ís-
lenskra króna að kaupa nauð-
synleg lyf og búnaö til að berjast
gegn því að berklar breiðist enn
frekar út í þessum löndum. Sú
in frá byltingu íslamstrúar-
manna í landinu. Vitni sögðu
að öryggisverðir hefðu fjarlægt
nokkuð af fólki frá staðnum þar
sem ræöuhöldin voru. Forset-
inn virtist ekki kippa sér upp við
atburðinn og lauk við ræðuna.
jóhannesarborg
Viöræöur í hnút
Forystumenn Afríska þjóðar-
ráðsins komu saman til fundar í
gær til að meta stöðima í við-
ræðum við flokka hægrisinn-
aðra, bæöi hvítra og svartra.
Viðræðumar sem snúast um
breytingar á stjómarskrá Suður-
Afríku vegna fyrstu lýðræöis-
legu kosninganna í landinu
virðast komnar í hnút.
Frankfurt
Verkföll þýskra ibnab-
armanna halda áfram
Skyndiverkföll þýskra iðnaðar-
manna héldu áfram í gær.
Verkalýðsfomstan sagðist leggja
áherslu á að gripiö yrði til að-
gerða í fyrirtækjum í sambands-
landinu Nordrhein-Westfalen,
helsta iðnaöarsvæði Þýskalands.
Manila
Olíuverðhækkunum
mótmælt meb
sprengjum
Skæmliðar á Filippseyjum
sprengdu dýnamít í skrifstofum
þriggja olíufélaga í Manila í gær.
Með því vildu þeir mótmæla
nýlegum olíuverðhækkunum.
Einn maöur særðist þegar gleri
rigndi yfir hann.
Peking
Ferrari leggur snörur
sínar fyrir Kínverja
Bílaverksmiðjumar Ferrari opn-
uðu í gær fyrsta sýningarsal fyr-
irtækisins í Kína. Formælandi
Ferrariverksmiðjanna sagðist
fullviss um aö sjálfstæðir at-
vinnurekendur í Kína væm jafn
áhugasamir um afl, hraða og út-
lit og kapítalistar annarsstaðar í
heiminum.
Alsírborg
Bibur forsætisrábherra
ab sitja áfram
Liamine Zeroual, nýkjörinn
forseti í Alsír, hefur farið fram á
það við Redha Malek, forsætis-
ráöherra landsins, aö hann
gegni áfram störfum.
Ikageng, Subur-Afríku
Kosningabarátta
hafin
Nelson Mandela, leibtógi Afr-
íska þjóbarrábsins, skoraöi í gær
á fylgjendur sína ab rökræða
frekar við pólitíska andstæðinga
sína en að drepa þá. Kosninga-
baráttan hófst í Suður-Afríku
um helgina fyrir fyrsm lýðræb-
islegu kosningamar í landinu.
Mandela lofaði að setja barátt-
una fyrir atvinnu á oddinn.
upphæð er sjö sinnum hærri en
það sem hjálparstofnanir iönað-
arríkjanna geta látib af hendi
rakna til baráttunnar við „hvíta
dauða".
Vestur-Evrópa
Talið er að rúmlega 70 þúsund
manns muni deyja af völdum
berkla í Vestur-Evrópu á þessum
áramg, flestir í austur- og suður-
hluta álfunnar. ísland ásamt
Norðurlöndunum þremur, Sví-
þjóð, Danmörku og Noregi auk
Hollands standa best ab vígi í
baráttunni við berklana.
Á íslandi hefur þróunin orðib
sú að hlutur innflytjenda meðal
berklasjúklinga hemr aukist.
Það er í samræmi vib þaö sem
hefur gerst á hinum Norður-
löndunum.
Svíar töldu sig hafa útrýmt
berklum í lok níunda áratugar-
ins en upp á síðkastiö hemr
sjúkdómstilfellum aftur farib
fjölgandi.
Á tímabilinu 1988-92 greind-
ust ab meðaltali 500 berklatil-
felli á ári í Svíþjóð. í fyrra
UTLOND
greindust 672 ný tilfelli. For-
mælandi smitsjúkdómastom-
unar landsins segir að rekja
megi þessa aukningu beint til
innflytjenda, sérstaklega frá
fyrrverandi lýðveldum Júgó-
slavíu og ýmsum ríkjum Afríku.
Aukib vibnám hjá
bakteríum
í skýrslu Alþjóðheilbrigðis-
rnálastomunarinnar er varað
við berklabakteríum sem em
haröari af sér en þær sem hing-
ab til hafa þekkst. Þessar bakter-
íur hafa mikib viðnám gegn
þeim lyfjum sem helst em not-
uð til að lækna berkla og þær
virðast líka þola vel aörar teg-
undir sjúkdómsmeðferðar.
Bakteríunar sem um ræðir hafa
þróast í sjúklingum sem luku
ekki við fúkkalyfjakúra sína.
í Bandaríkjunm hafa komiö
upp tilfelli þar sem hjúkmnar-
fólk hefur smitast af berklabakt-
eríum með aukið viðnám. Það
hefur leitt til þess að erfitt er að
fá fólk til að annast berklasjúk-
linga.
Nákvæmt eftirlit
Berklabakteríur með aukiö
lyfjaviðnám hafa fundist í
mörgum löndum Evrópu. Út-
breiðslan virðist hröðust í
Eystrasaltslöndunum þar sem
eftirlitið er ekki eins gott og á
Norðurlöndum.
Hér á íslandi greindist einn
berklasjúklingur árið 1992 með
bakteríu meb lyfjaviönám bæði
fyrir rifampíni og ísóníasíði.
Fimmtán aðrir greindust með
berkla á þessum tíma. Sjúk-
dómseinkenni allra gengu til
baka, líka í tilfellinu þar sem um
lyfjaviðnám var aö ræöa.
Smitsjúkdómastofnunin í Sví-
þjóð segir að nauðsynlegt sé ab
auka eftirlit ef koma eigi í veg
fyrir hraöari útbreiðslu berkla
þar í landi. Þetta eigi sérstaklega
við um innflytjendur frá þeim
svæðum þar sem tíðni berklatil-
fella er há. DN/ÁÞÁ
Vilt þú fylgjast
með því nýjasta
sem er að gerast í
hestamennskunni?
Gerist
% áskrifendur!
IEIÐFAXI
TÍMARIT HESTAMANNA
Sími 91-685316