Tíminn - 14.07.1987, Síða 13
Þriðjudagur 14. júlí 1987
Tíminn 13
Starfsíþróttir á landsmótinu:
Yfirburðir Þingeyinga
- Vignir vann dráttavélaaksturinn í áttunda sinn í röð
Þingeyingar höfðu algera yfir-
burði í starfsíþróttunum á landsmót-
inu, sigruðu í fjórum af sex, unnu
eina tvöfalt, aðra þrefalt og sjö
keppendur þeirra fengu að auki stig.
Það var í jurtagreiningunni sem
þrefaldur sigur vannst. Þröstur Ey-
steinsson varð hlutskarpastur eftir
úrslitakeppni en Þingeyingarnir þrír
voru efstir og jafnir eftir aðalkeppn-
ina. Hún var í því fólgin að þekkja
40 plöntutegundir sem þrífast allt frá
fjöru til fjalla. Allir höfðu þeir 40
stig útúr því en í úrslitakeppninni
þar sem um var að ræða 10 sjaldgæf-
ar plöntur fengust hrein úrslit.
Vignir Valtýsson HSÞ vann það
einstæða afrek að sigra í dráttarvéla-
akstrinum áttunda landsmótið í röð.
í því sambandi er rétt að leggja
áherslu á að landsmót eru haldin á
þriggja ára fresti og svo getur hver
reiknað fyrir sig árafjöldann.
Keppnin var jafnari í ár en oft áður
Mikið af mörkum
- Þórsarar unnu FH-inga 4-2
Þórsarar sigruðu FH-inga með
fjórum mörkum gegn tveimur í 1.
deildinni í knattspyrnu á Akureyri á
sunnudagskvöldið. FH-ingar urðu
tvívegis fyrri til að skora en heima-
menn jöfnuðu jafnharðan og skor-
uðu loks tvö mörk í síðari hálfleik
sem tryggðu þeim stigin þrjú.
Það var Guðmundur fyrirliði
Hilmarsson sem skoraði fyrsta mark
FH úr vítaspyrnu snemma í leiknum.
Mjólkurbikarinn:
Framarar
á mölina í
Ólafsfirði
Dregið var í 8 liða úrslit í mjólkur-
bikarnum - bikarkeppni KSÍ á laug-
ardaginn. Það voru Framarar sem
lentu á móti eina 2. deildarliðinu
sem eftir er í keppninni en sigur
þeirra er langt frá því aö vera gefinn
á mölinni f Olafsfirði. KR-ingarfara
í Garðinn en Víðir og KR gerðu
einmitt jafntefli á KR vellinum um
helgina. Valsmenn og Völsungar
mætast einnig aftur en nú á Valsvell-
inum og Keflvíkingar fara til Akur-
eyrar þar sem þeir keppa við Þórs-
ara.
Leikirnir í 8 iiða úrslitum verða
miðvikudagskvöldið 22. júlí. - HÁ
Hlynur Birgisson jafnaði með skalla
en Jón Erling Ragnarsson kom FH-
ingum aftur yfir með skoti af stuttu
færi. Enn jöfnuðu Þórsarar, nú var
það Kristján Kristjánsson sem sendi
boltann í tómt markið.
Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri
hálfleik og Þórsarar sáu um þau sem
komu í þeim síðari, fyrst Hlynur
Birgisson og síðan Kristján Kristj-
en sigurinn fór eigi að síður á sama
stað. Vignir fékk 99 stig af 100 í
þrautabrautinni og 42 af 50 í bókleg-
um spurningum. Sannarlega glæsi-
legur árangur það. Aðspurður bjóst
Vignir ekkert frekar við að verðlaun-
in yrðu fleiri, honum þykir kominn
tími til að einhver annar fái að
komast að.
í keppninni um best dúkaða borð-
ið urðu tveir þingeyskir keppendur
jafnir í efsta sæti, þær Drífa Þ.
Arnþórsdóttir og Þórdís Ingadóttir.
Keppnin var mjög jöfn og borðin
fallega skreytt.
Starfshlaupið vannst einnig af
Þingeyingi og kom Arnór Erlingsson
í mark með átta sekúndum betri
tíma en næsti keppandi. Grímur
Hergeirsson úr HSK varð í 2. sæti og
Daði Kristjánsson UÍA varð þriðji.
Keppni í starfsíþróttum setur
skemmtilegan svip á landsmótið og
gjarnan eru allt önnur félög þar
framarlega en í öðrum greinum sem
er vel. Einhverjir hafa haft orð á að
keppni í starfsíþróttum sé gamaldags
og jafnvel bjánaleg en reyndin er sú
að sömu menn skipta um skoðun
þegar þeir sjá spennandi keppni í
þessum sömu greinum. Þær eru
nefnilega skemmtileg tilbreyting frá
þessu venjulega. -HÁ
Jafntefli í
rangstöðuleik
Það er erfitt að eiga við Víðis-
menn, það fengu KR-ingar að
reyna er liðin léku á heimavelli
Reykjavíkurliðsins á sunnudags-
kvöldið. Þrátt fyrir að vera sterkari
aðilinn allan leikinn urðu KR-ingar
að sætta sig við jafntefli 1-1.
Garðsbúarnir beittu rangstöðu-
gildrunni á mjög áhrifaríkan hátt í
þessum leik, ekki skemmtileg takt-
ík fyrir áhorfendur en gefur sitt.
Sóknarmenn KR-inga, þeir Björn
Rafnsson og Pétur Pétursson, voru
margsinnis veiddir í gildruna og
miðjumennirnir einnig.
KR-ingar náðu forystunni á 43.
rnínútu. Willum Þórsson tók langt
innkast og Víðismenn fengu tví-
vegis færi á að hreinsa frá. Það
tókst þeim ekki. Boltinn var á róli
inn í markteig og þar var Pétur
Pétursson, á fjærstöng eins og svo
oft, réttur maður á réttum stað og
skoraði af stuttu færi.
Fögnuður KR-inga stóð stutt,
eina mínútu eða svo. Víðismenn
fengu nefnilega aukaspyrnu. Upp
úr henni þvældist boltinn inn í teig
og bakvörðurinn Björn Vilhelms-
son var ekki að tvínóna við hlutina
heldur þrumaði knettinum í netið.
KR-ingar sóttu í síðari hálfleikn-
um en vörn Víðismanna var sterk.
gaf sjaldan færi á sér, og smá
saman fjaraði leikurinn út.
Lið KR-inga var jafnt í þessum
leik, náði oft að sýna hraðan og
góðan samleik en gerði þau mistök
að halda ekki boltanum nógu
mikið, pressa stífar á Víðismenn
og vera þolinmóðari. Þá hefði
rangstöðugildran brugðist Víðis-
mönnum og færin orðið fleiri hjá
Vesturbæingunum. Ágúst Már
Jónsson og Þorsteinn Halldórsson
börðust vel fyrir sitt lið og Rúnar
Kristinsson og Pétur Pétursson
sýndu snjalla takta.
Garðsbúar geta þakkað öruggri
markvörslu Gísla Hreiðarssonar
og stórgóðum varnarleik að stig
vannst í viðureigninni við Vestur-
bæinganna. Daníel Einarson var
sem herforingi í, vörninni, vel
studdur af bróður sínum Vilhjálmi
og Sævari Leifssyni. fyrrum KR-
ingi, og Birni Vilhelmssyni. Á
miðjunni var Guðjón Guðmunds-
son óþreytandi og Vilberg Þor-
valdsson átti spretti á hægri
vængnum.
Magnús Jónatansson dæmdi og
mætti að ósekju oft bíða með að
blása í flautuna þannig að lið
hagnist ekki á brotum sínum.
-hb
Mikið að gerast í vítateig Völsunga eftir hornspyrnu Valsmanna en boltinn virðist hafa lent milli
mark úr frekar en í öðrum færum í leiknum.
lína og ekki varð
Tímamynd Pjetur.
Hom-utno
Staðan í 1. deild karla á fs-
landsmótinu í knattspyrnu eftir
lciki helgarinnar:
Völsungur-Valur . . . 0-0 (0-0)
KR-Víðir.................1-1 H-l)
(Pétur Pétursson 43.)-(Björn Vilhelmsson
45.)
Þór-FH...................4-2 (2-2)
(Hlynur Birgisson 9. og 48.. Kristján
Kristjánsson 19. og 73.,)-(Gu£mundur
Hilmarsson (víti) 6., Jón Erling Ragnars-
son 17.)
Valur........
KR ..........
ÍA...........
Þór..........
Fram ........
KA ..........
ÍBK..........
Völsungur . . . .
Víðir........
FH ..........
9 5 3 1 17-6 18
9 4 4 1 16-6 16
9 5 13 13-11 16
9 5 0 4 16-15 15
7 3 2 2 8-7 11
9 3 2 4 7-8 11
8323 15-18 11
8 2 3 3 9-10 9
.9063 .4-12 6
9 117 7-19 4
íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild:
Sanngjarn Skagasigur
Frá Kristni Reimarssyni á Akranesi:
Skagamenn sigruðu KA frá Ak-
ureyri örugglega þegar liðin kepptu
í 1. deildinni í knattspymu á Akra-
nesi á laugardaginn en markið varð
þó aðeins eitt. Það var Ólafur
Þórðarson sem skoraði það á 4.
mín., fallegt mark skorað með
þrumuskoti fyrir utan vítateig.
Skagamenn áttu mjög góð færi
en tókst ekki að skora oftar en einu
sinni.
Árni Freysteinsson KA-maður
var fluttur á sjúkrahús í leiknum,
lenti mjög illa og sleit liðbönd í
ökla. Þetta var hans fyrsti leikur
eftir meiðsli.
Sigurður Harðarson, sonur
Harðar Helgasonar þjálfara KA
kom inná í fyrsta sinn í leiknum og
var hans fyrsta snerting skalli í slá
og var það eina hættulega tækifæri
KA.
Sigurður Lárusson og Birkir
Kristinsson markvörður voru best-
ir Skagamanna og Sveinbjörn Há-
konarson átti einnig ágætan leik en
hjá KA var Haukur markvörður
Bragason bestur.
Jaf nt á Húsavík
Frá Haflida Jósteinssyni á Húsavík:
„Það geta öll lið lent í vandræðum
með Völsunga þegar þeir leika eins
og núna, þetta er mikið baráttulið og
vinnur vel saman“ sagði Ian Ross
þjálfari Vals eftir að Völsungar og
Valsmenn gerðu markalaust jafntefli
í 1. deildinni í knattspyrnu að við-
stöddum á annað þúsund áhorfend-
um á sunnudagskvöldið. „Við
sköpuðum okkur góð færi en það
þarf að nýta þau til að leikurinn
vinnist" sagði Ross. Leikurinn var
einn sá besti sem Völsungsliðið hefur
sýnt í sumar og var spennandi þrátt
fyrir markaleysið.
Völsungar byrjuðu mjög vel en
Valsmenn fóru svo að ná áttum og
sýndu þá hvers liðið er megnugt.
Sóknin var skipuieg cn í markið vildi
boltinn ekki. Þeir voru meira með
boltann út fyrri hálfleik en Völsung-
ar beittu skyndisóknum.
Heimamenn byrjuðu aftur vel í
seinni hálfleik en Valsmenn náðu
enn yfirhöndinni. Bæði lið fengu sín
færi en sem fyrr án þess að boltinn
færi í netið. Besta færið átti Hörður
Benónýsson þegar hann vippaði
boltanum yfir Guðmund í markinu
en í þverslána.
Staðan í 2. deild karla á Is-
landsmótinu í knattspyrnu eftir
leiki helgarinnar:
ÍR-KS..........................5-1
ÍBV-ÍBÍ ....................3-2
Víkingur......... 8 6 1 1 17-10 19
ÍR............... 9 4 2 3 18-14 14
Leiftur.......... 8 4 1 3 9-6 13
Þróttur.......... 84 1 3 18-14 13
ÍBV.............. 9 3 4 2 16-16 13
Einherji......... 8332 10-12 12
KS............... 9 3 2 4 13-17 11
UBK ............. 8 3 1 4 8-9 10
Solfoss.......... 8233 15-18 9
ÍBÍ ............. 9 1 0 8 10-18 3
Veitingar
og
ferðamannaverslun
opiö alla daga frá kl. 9.00—23.30
VÖRUHÚS KÁ
MIÐSTOÐ VIÐSKIPTANNA Á SUÐURLANDI OPIÐ: MÁNUD.- FIMMTUD. 09-17.30 FÖSTUD. 09-19 LAUGARD. 09-12