Tíminn - 29.03.1989, Side 13
Miðvikudagur 29. mars 1989
Tíminn 13
Ráðgjafi Yassers Arafats
varpar fram hugmynd
sem myndi lægja upp-
reisn Palestínumanna:
Bandarískt
herlið á
hernumdu
svæðin
Bandarískt herlið á hernumdu
svæðunum í Gaza og á Vesturbakk-
anum. Þetta er hugmynd sem ráð-
gjafi Yassers Arafats leiðtoga Frels-
issamtaka Palestínu varpaði fram í
gær sem bráðabirgðalausn til að
koma á friði á þessum óróasvæðum
þar sem hundruð Palestínumanna
hafa fallið fyrir kúlum ísraelskra
hermanna síðustu mánuði.
- Við gætum sæst á að bandarískir
hermenn taki við af herliði ísraela.
Á þeirri mínútu sem ísraelskir her-
menn yrðu á brott myndu uppreisnin
á hernumdu svæðunum logna út af
af sjálfsdáðum, sagði Bassam Abu
Sherif í gær rétt áður en embættis-
menn PLO og Bandaríkjastjórnar
hófu viðræður um páskana. Af því
tilefni sagði Abu Sherif einnig að
PLO myndi sætta sig við það að
Bandaríkjamenn og Sovétmenn
sæju um friðarviðræður í málefnum
Mið-Austurlanda.
Abu Sharif sagði að um leið og
ísraelar samþykktu rétt Palestínu-
manna til að stofna ríki væri mikil-
vægt að grundvöllur að friðarviðræð-
um væri traustur.
- Ef Bandaríkin og Sovétríkin
gæti tryggt þá niðurstöðu, þá myndi
PLO samþykkja... ef báðir aðilar
samþykkja lausn sem felst í stofnun
tveggja ríkja, þá er allt opið og form
friðarviðræðnanna verður algert
aukaatriði, sagði Abu Sharif á blaða-
mannafundi.
Frelsissamtök Palestínu hafa áður
krafist þess að Sameinuðu þjóðirnar
standi fyrirfriðarviðræðum í málefn-
um Mið-Austurlanda, þar sem allar
fastaþjóðir öryggisráðsins tækju þátt
auk ríkja á svæðinu. Nú telja þeir
nægilegt að Bandaríkjamenn og
Sovétmenn standi fyrir friðarráð-
stefnu.
Borgnesingar, nærsveitir.
Spilum félagsvist í samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 31. mars
kl. 20.30.
Fyrsta kvöldið í 3 kvölda keppni.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness.
Konur á Höfn og nágrenni
Fundur um sveitarstjórnarmál verður haldinn á Höfn Hornafirði
föstudaginn 31. mars kl. 20.30.
Gestir fundarins verða:
Guðrún Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og Unnur Stefánsdóttir formaður
LFK. Allar áhugakonur um sveitastjórnarmál eru velkomnar.
Stjórn LFK
Sigrún Magnúsdóttir
Létt spjall á laugardegi
Er sameiginlegt framboð stjórnarandstöðunnar í borgarstjórn Reykja-
víkur vænlegur kostur í næstu borgarstjórnarkosningum sem verða
vorið 1990?
Þetta og margt fleira munum við taka til umræðu á léttum spjallfundi
laugardaginn 1. apríl n.k.
Fundurinn verður haldinn í Nóatúni 21 og hefst kl. 10.30. Stefnt er að
því að fundinum sé lokið kl. 12.00.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi mun á fundinum reifa þær hug-
myndir sem uppi hafa verið að undanförnu um hugsanlegt sameigin-
legt framboð stjórnarandstöðuflokkanna i borgarstjórn Reykjavíkur.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík.
Suðurland
FUF í Árnessýslu
og Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu áformar að halda félags-
málanámskeið í lok mars og í apríl. Um er að ræða byrjenda- og
framhaldsnámskeið. Námskeiðin eru öllum opin sem áhuga hafa.
Þátttaka tilkynnist sem fyrst til formanna félaganna.
Sigurðar Eyþórssonar í síma 34691
og Ólafíu Ingólfsdóttur í síma 63388.
FUF og FFÁ.
Nýju Gínea:
Skaka spjót
við þinghúsið
Flokkar reiðra frumbyggja Nýju
Gíneu héldu um helgina vopnaðir
spjótum, bogum og örvum til þing-
hússins í Papúa höfuðborg eyjarinn-
ar, drápu einn mann og brutu allt og
brömluðu. í slóð þeirra mátti sjá
bíla á hvolfi og brotnar rúður. Að
minnsta kosti einn maður var
drepinn.
Orói þessi kom í kjölfar jarðarfar-
ar leiðtoga kaþólskrar ungliðahreyf-
ingar sem stunginn var til bana fyrir
framan vanfæra konu sína síðastlið-
inn föstudag. Ættbálkur hans sem
lifir við strendur Nýju Gíneu heldur
þvf fram að morðingi mannsins sé af
ættbálki er býr í fjöllum eyjarinnar
og vildu menn hafa hendur í hári
hins seka. Þetta er ekkert einsdæmi
þar sem erjur milli ættbálka er
landlæg plága á Nýju Gíneu þar sem
menning fólksins byggir enn á forn-
um hefðum og hefndarskyldan er
rík.
Lögreglan í Papúa var mjög van-
búin til að takast á við hina reiðu
ættingja hins látna æskulýðsleiðtoga
því stór hluti lögregluliðsins hafði
verið sendur til eyjarinnar Bougain-
ville til að berja niður óeirðir þar.
Þar hafa ættbálkar átt í átökum
undanfarnar vikur.
Lögreglan segir að ástand á Boug-
ainville sé nú rólegt, en á eyjunni eru
stærstu kopar og gullnámur Nýju
Gíneu.
Sunnlendingar
Framsóknarfélögin í Árnessýslu halda sína árlegu árshátíð síðasta
vetrardag 19. apríl í Hótel Selfoss.
Allir velkomnir. Nánar auglýst síðar.
Nefndin.
Kópavogur
Skrifstofan í Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-13.
Sími 41590. Heitt á könnunni.
Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattir til að
líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið.
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
Páskahappdrætti SUF 1989
Útdráttur í Páskahappdrætti SUF er hafinn.
Vinningsnúmer eru sem hér segir:
20. mars, vinningur nr. 1, 5242
vinningur nr. 2, 3145
21. mars, vinningur nr. 3, 1995
vinningur nr. 4, 144
22. mars, vinningur nr. 5, 538
vinningur nr. 6, 7401
Vegna fjölda áskorana eru númerin fyrir dagana 23. til 26. mars í
innsigli hjá borgarfógeta til 5. apríl 1989.
Vinsamlegast gerið skil fyrir þann tíma.
Enn er tækifæri til að hljóta glæsilega vinninga.
Hvert miðanúmer gildir alla útdráttardagana það er 20. til 26. mars
1989.
Munið, ykkar stuðningur styrkir okkar starf.
SUF
Laust embætti
er forseti íslands veitir
Embætti yfirdýralæknis er laust til umsóknar. Laun
samkvæmt launakerfi starfsmanna ríksins. Um-
sóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf skulu sendar landbúnaðarráðuneytinu, Rauð-
arárstíg 25, 150 Reykjavík, fyrir 1. maí 1989.
Embættið veitist frá 1. júní 1989.
Landbúnaðarráðuneytið,
20. mars 1989.
IÐNSK0UNNIREYKJAVÍK
Endurmenntunamámskeið í sníðagerð kvenna,
fyrir meistara og sveina í iðninni; verður haldið í
Iðnskólanum í Reykjavík ef næg þátttaka fæst.
Námskeiðið hefst laugardaginn 8. apríl og er 40
kennslustundir, kennt er á laugardögum kl. 10 til
16.
Kennslugjald er kr. 6.500,-
Upplýsingar í síma 91-26240.
Iðnskólinn í Reykjavík.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borgar-
verkfræðings, óskar eftir tilboðum í uppsteypu og frágang á
bílageymslu við Bergstaðastræti.
Helstu stærðir eru: Mót 5.000 m2 og steypa 950 m3.
Verklok eru 18. október 1989.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 18. apríl 1989, kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans í
Reykjavík, óskar eftir tilboðum í gatnagerð, lagningu holræsa og
jarðvinnu vegna vatnslagna í Njarðargötu frá Þorragötu ásamt
Skerplugötu.
Um er að ræða u.þ.b. 650 m af götum og um 500 m af holræsum.
Verklok 15. september 1989.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
frá og með fimmtudeginum 30. mars gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 11. apríl 1989, kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Minkaveiðihvolpar
af góðu kyni til sölu.
Upplýsingar í síma 91-19200.
ökum
ávallt með tilliti til
aðstæðna ekki of hægt
— ekki of hratt.
UMFEROAR
RAÐ