Fréttablaðið - 18.03.2009, Blaðsíða 4
MARKAÐURINN 18. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR4
Ú T T E K T
Á
næstu vikum ætti að
lækka hér stýrivexti
um allt að 400 punkta
(fj ö g u r pr ó s e nt u -
stig), samkvæmt áliti
skuggabankastjórnar Markaðar-
ins. Seðlabanki Íslands tilkynnir
á morgun, fimmtudag, um stýri-
vaxtaákvörðun sína, þá fyrstu
eftir að ný lög um Seðlabank-
ann tóku gildi og þar voru gerð-
ar breytingar á yfirstjórn.
Skuggabankastjórnin leggur til
hratt vaxtalækkunarferli með um-
talsverðri lækkun strax í upphafi.
Um leið er lögð áhersla á mark-
vissa efnahagsstjórn sem miði að
því að koma í veg fyrir að ríkið
lendi í skuldakreppu. Þá sé mikil-
vægt fyrir Seðlabanka Íslands að
láta af því að horfa til verðbólgu
síðustu 12 mánaða þegar tekn-
ar eru ákvarðanir um stýrivexti,
enda sé hér nú allt annað hagkerfi
en var þá. Bankinn eigi fremur
að nota eigin verðbólguspá sem
grunn í spá um raunstýrivexti.
Jafnframt telur skuggabanka-
stjórnin að ný peningastefnu-
nefnd megi ekki fara of varfærn-
islega af stað í lækkunarferlinu.
Hér hafi áður gengið vel á tímum
þjóðarsáttarinnar að keyra í gegn
hraða lækkun stýrivaxta og hratt
lækkunarferli sé mjög mikilvægt.
Hættan sé sú að í umhverfi þar
sem vextir séu mjög háir og al-
mennt sé búist við lækkun verði
uppi almenn biðstaða meðan
beðið er lækkunarinnar. Hratt
vaxtalækkunarferli sé þannig ein
af forsendum þess að kerfið fari
aftur af stað.
Um leið telur skuggabanka-
stjórnin að sem allra fyrst þurfi
að finna framtíðarlausn í gjald-
miðlamálum þjóðarinnar, ekki
verði til lengdar búið við það
óvissuástand sem uppi sé í gjald-
eyris- og peningamálum.
VERJA ÞARF
RAUNHAG-
KERFIÐ
„Ég tel forsend-
ur til að lækka
vexti nú – og
vaxtalækkunin
eigi að vera um-
talsverð. Það er
svo matsatriði
hver lækkunin
á nákvæmlega að vera í tölum.
Að öllu athuguðu er mín skoðun
sú að stýrivextina eigi að lækka
um fjögur prósentustig, úr 18
prósentum í 14 prósent,“ segir
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar.
Hann segir rökin fyrir umtals-
verðri lækkun nú felast í gjör-
breyttum aðstæðum í efnahags-
lífinu. „Kreppa hefur tekið við af
þenslu. Umsvif og velta í efna-
hagslífinu hafa snarminnkað. Í
því sambandi nægir að benda á
kortaveltu, innflutning og hús-
næðismarkaðinn. Þá hefur mik-
ill vöruskiptahalli snúist í veru-
legan afgang, atvinnuleysi hefur
margfaldast og rauntekjur heim-
ila dregist meira saman en dæmi
eru um. Loks sækja að atvinnu-
lífi og fyrirtækjum meiri erfið-
leikar en frá því á kreppuárun-
um á fjórða áratug síðustu aldar.
Við þessar aðstæður er verðbólga
engin ógn heldur hættan á því
að framleiðslugeta hagkerfisins
skaðist til langframa. Brýnasta
verkefnið er því að verja raun-
hagkerfið, á því hvíla lífskjörin
til framtíðar. Háir vextir áfram
geta að mínu viti teflt í tvísýnu
framleiðslugetu hagkerfisins og
torveldað mjög endurreisn þess.“
Þórður segist ekki í nokkrum
vafa um að vaxtalækkun við þess-
ar aðstæður sé besta leiðin til að
örva hagkerfið. „Vara verður við
almennum aðgerðum í ríkisfjár-
málum í þessu skyni. Þeim mun
veikari sem staða ríkissjóðs verð-
ur gerð þeim mun meiri líkur eru
á því að við festumst í sjálfheldu
hárra vaxta um langa hríð.“
Þórður segir þá sem vilja halda
vöxtum óbreyttum eða fara var-
lega í vaxtalækkun einkum benda
á tvennt. Annars vegar að veru-
leg lækkun vaxta kunni að veikja
krónuna og fyrir vikið valda auk-
inni verðbólgu. „Ég hygg að þessi
hætta sé ofmetin – og þótt krónan
veiktist eitthvað tímabundið væri
skaðinn sem af því leiddi senni-
lega miklu minni en af áfram-
haldandi hávaxtastefnu,“ segir
hann. Hins vegar sé gjarnan bent
á að tólf mánaða verðbólga sé nú
17,6 prósent og ekki gangi að hafa
raunvexti neikvæða. „Þetta er
bábilja að mínu viti. Það er frá-
leitt að miða við verðbólgu tólf
mánuði aftur í tímann þegar að-
stæður eru jafn ólíkar og dagur
og nótt,“ segir Þórður Friðjóns-
son og telur að öllu samanlögðu
brýnt að stýrivextir verði lækk-
aðir umtalsvert við núverandi að-
stæður og þær horfur sem blasi
við í efnahagslífinu.
GJALDEYRIS-
OG PENINGA-
MÁLUM KOMIÐ
Í VARANLEGA
SKIPAN
Ólafur Ísleifs-
s o n , l e k t o r
við viðskipta-
deild Háskól-
ans í Reykja-
vík, bendir á
að vaxtaákvörðunin á morgun sé
hin fyrsta frá því ný lög um Seðla-
bankann tóku gildi. „Samkvæmt
þeim skal opinberlega birta fund-
argerðir peningastefnunefnd-
ar og gera grein fyrir ákvörðun-
um nefndarinnar og forsendum
þeirra. Vænta verður að upplýs-
ingagjöf í þessu efni verði hin
vandaðasta,“ segir hann og kveð-
ur meginverkefni peningastefnu-
nefndar vera að ákveða myndar-
lega lækkun stýrivaxta nú þegar
og leggja fram áætlun um frekari
lækkun vaxta á komandi tíð.
„Engar forsendur eru fyrir
hinum ofurháu vöxtum sem
hvergi eru hærri innan OECD en
hér á landi. Naumast þarf 18 pró-
senta stýrivexti til að styðja við
gengi krónunnar þegar hún ligg-
ur í gjaldeyrishafti. Ekki verð-
ur séð að 18 prósenta stýrivexti
þurfi til að halda aftur af verð-
bólgu þegar eldsneyti hennar
virðist þrotið. Verðbólgan kann
og að vera ofmetin í ljósi þess að
makaskipti og falskt verð á fast-
eignamarkaði koma í veg fyrir
að verðbólgan mælist rétt í þessu
tilliti. Önnur lönd hafa beitt sér
gegn kreppunni með verulegri
lækkun stýrivaxta sem víðast
hvar liggja á bilinu núll til tvö
prósent.“
Um leið bendir Ólafur á að
enda þótt vextirnir hér séu út
úr korti og þurfi að lækka um-
talsvert sé Seðlabankinn í þeirri
aðstöðu að þurfa að endurvinna
sér trúverðugleika. Þetta kunni
að setja honum hömlur í að ganga
jafn fast fram við vaxtalækkanir
og tilefni væri til.
Hann segir þess jafnframt
að vænta að Seðlabankinn eigi
hlut að viðræðum við eigendur
krónubréfa með það að mark-
miði að viðunandi jafnvægi ríki
milli hagsmuna þessara aðila og
innlends gjaldeyrismarkaðar.
„Nýr bankastjóri Seðlabankans
lýsti því sem meginmarkmiði að
styrkja gengi krónunnar og slík-
ar viðræður sýnast nauðsynleg-
ar til að skapa skilyrði fyrir því
að svo verði. Um leið fælu þær
í sér nauðsynlegan undirbúning
á afnámi gjaldeyrishafta,“ segir
Ólafur Ísleifsson og kveður nýja
peningastefnunefnd Seðlabank-
ans hljóta að leggja fram grein-
argerð um aðgerðir á starfssviði
sínu til að tryggja að atvinnulíf-
ið búi við viðunandi starfsskilyrði
í krónuhagkerfinu og þangað til
takist að koma á nýrri varanlegri
skipan gjaldeyris- og peninga-
mála. Skortur á skýrri sýn um þá
framtíðarskipan segir hann vera
akkillesarhæl þeirrar efnahags-
ÓLAFUR
ÍSLEIFS SON
ÞÓRÐUR
FRIÐ JÓNS SON
Tími kominn á myndarlega
lækkun stýrivaxta
Skuggabankastjórn Markaðarins kemur nú saman í gjörbreyttu umhverfi Seðlabanka Íslands. Lagaumhverfi er nýtt, skipt hefur
verið um yfirstjórn og vinnulagi við vaxtaákvarðanir breytt. Óli Kristján Ármannsson settist niður með Ásgeiri Jónssyni, Eddu
Rós Karlsdóttur, Ólafi Ísleifssyni og Þórði Friðjónssyni og komst að því að öll vilja þau láta lækka vexti núna.
SKUGGABANKASTJÓRN Á RÖKSTÓLUM
Ásgeir Jónsson, Ólafur Ísleifsson, Þórður
Friðjónsson og Edda Rós Karlsdóttir bera
saman bækur sínar um hvaða stefnu væri
skynsamlegast fyrir Seðlabankann að taka í
ákvörðun um stýrivexti á morgun, fimmtudag.
M
A
R
K
A
Ð
U
R
IN
N
/G
VA