Morgunblaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 4
NÝR og veglegur bikar verður
afhentur sigurvegurum Lýsingar-
bikars kvenna, en KLM verðlauna-
gripir gefa bikarinn í keppnina.
Bikarinn er mun stærri en sá sem
Haukar lyftu á loft í fyrra og er
nánast í sama stærðarflokki og bik-
arinn sem keppt er um í karla-
flokki.
ÁHORFENDUR sem mæta á
bikarúrslitaleikinn fá afhenta boli
við innganginn í litum síns félags
en það er Lýsing sem stendur á
bak við framleiðsluna á þessum
bolum.
Í leik Grindavíkur og ÍS verða
það Kristinn Óskarsson og Björg-
vin Rúnarsson sem dæma leikinn.
Þetta er í annað sinn sem Kristinn
dæmir bikarúrslitaleik kvenna en
síðast dæmdi hann bikarúrslitaleik
ÍR og ÍS árið 1991 þar sem Kol-
brún Leifsdóttir jafnaði leikinn
með þriggja stiga skoti í lok venju-
legs leiktíma og tryggði ÍS fram-
lengingu sem þær svo unnu. Þann
leik dæmdi Kristinn með Jóni Otta
Ólafssyni. Kristinn hefur dæmt
fimm bikarúrslitaleiki karla.
ÞETTA er einnig annar bikarúr-
slitaleikur Björgvins Rúnarssonar,
hann dæmdi leik Keflavíkur og ÍS
árið 2003 með Leifi S. Garðarssyni.
Þar eins og í fyrri bikarúrslitaleik
Kristins náði ÍS að jafna í lok
venjulegs leiktíma og vann svo
leikinn í framlengingu. Þeir félagar
Kristinn og Björgvin dæmdu ein-
mitt saman bikarúrslitaleik Fjölnis
og Njarðvíkur í fyrra. Frá þessu er
greint á vefnum www.kkdi.is, sem
er vefur körfuknattleiksdómara.
GRINDAVÍK og ÍS hafa mæst
fjórum sinnum á þessari leiktíð
Grindavík hefur unnið tvo af þrem-
ur leikjum liðanna en allar hafa
þær verið í Iceland Express deild-
inni.
SIGMUNDUR Már Herbertsson
og Rögnvaldur Hreiðarsson dæma
úrslitaleik karla. Þetta er
þriðji bikarúrslitaleikur Sigmundar
en hann dæmdi árið 2000 leik
Grindavíkur og KR með Jóni Ben-
der og árið 2003 dæmdi hann leik
Snæfells og Keflavíkur með Einari
Einarssyni. Þetta er aftur á móti
annar bikarúrslitaleikur Rögnvald-
ar en fyrir tveimur árum dæmdi
hann leik Keflavíkur og Njarðvík-
ur með Leifi S. Garðarssyni.
SIGMUNDUR er FIBA dómari
en hann tók prófið í Hollandi árið
2003.
Þeir Sigmundur og Rögnvaldur
tóku dómaraprófið saman í nóv-
ember 1994 og leiðbeinandi þeirra
var Kristinn Óskarsson. Það er því
athyglisvert að sjá að Rögnvaldur
hefur dæmt 229 leiki í Úrvalsdeild
og Sigmundur 228. Fyrir tímabilið
var Rögnvaldur skráður með 899
leiki fyrir KKÍ og Sigmundur 733.
Í dag er Rögnvaldur orðinn næst
leikjahæsti dómari sögunnar hjá
KKÍ og er það aðeins heiðursmað-
urinn Jón Otti Ólafsson sem skák-
ar honum.
ICELAND Express hefur látið
sauma nýjar dómaratreyjur fyrir
dómara úrslitaleikjanna og mun
gefa dómurunum til minningar um
leikina.
MARSIBIL Sæmundsdóttir vara-
borgarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins í Reykjavík sigraði í skotkeppni
sem haldin var á kynningarfundi
Lýsingar og KKÍ vegna bikarúr-
slitaleikjanna. Marsibil var sú eina
sem hitti úr þriggja stiga skoti en
alls voru fimm keppendur í skot-
keppninni, einn fulltrúi frá hverjum
stjórnmálaflokki sem koma að
borgarmálum í Reykjavík. Marsibil
gaf styrktarfélagi hjartveikra
barna, Neistanum, 100.000 kr. sem
hún fékk fyrir að hitta úr skotinu.
FÓLK
Við féllum úr leik gegn ÍS á æv-intýralegri körfu sem banda-
ríski leikmaðurinn Maria Conlon
skoraði nánast frá miðju. ÍS liðið
er að mínu mati mun betra í dag
en í upphafi leiktíðar og það var
mikill fengur fyrir liðið að fá Con-
lon í sínar raðir. Hún er frá Con-
necticut háskólanum sem hefur
unnið meistaratitil í NCAA-há-
skóladeildinni undanfarin þrjú ár.
Hún þekkir því ekkert annað en að
vinna og mér skilst að hún sé ekki
viðræðuhæf í nokkra daga ef hún
tapar á æfingu með ÍS,“ segir
Ágúst en hann telur að möguleikar
Grindvíkinga liggi í hröðum leik.
„ÍS er með hávaxið lið og þær
Helga Jónasdóttir og Signý Her-
mannsdóttir eru erfiðar við að eiga
í vítateignum. Jerrica Watson,
bandaríski leikmaðurinn í röðum
Grindavíkur, er grimm undir körf-
unni en hún getur ekki leikið vörn
gegn tveimur leikmönnum samtím-
is. Ég held því að Unndór Sigurðs-
son þjálfari Grindavíkur muni
leggja áherslu á hraðan leik þar
sem Watson og Hildur Sigurðar-
dóttir verða fremstar í flokki.“
Ágúst segir að Watson sé einn
öflugasti leikmaður sem hafi leikið
hér á landi. „Watson er gríðarleg-
ur íþróttamaður, hún tekur um 16
fráköst í leik og skorar um 30 stig.
Hún getur tekið boltann upp völl-
inn í hraðaupphlaupum og það er
hennar styrkur. ÍS mun eflaust
þjarma að henni hvar sem hún
verður og það er vel hægt að
hægja á henni með góðri vörn. Ef
hún fær ekki rými til þess að at-
hafna sig með boltann þá getur
hún átt í vandræðum og einnig er
hún ekki besta skytta í heimi.“
Ágúst segir að reynsla ÍS eigi
eftir að koma liðinu til góða í slík-
um leik.
„Það eru leikmenn í ÍS á borð
við Hönnu Kjartansdóttur og
Helgu Þorvaldsdóttur, en þær eru
þrautreyndar og Hanna hefur unn-
ið titla með fjölmörgum félagslið-
um. Í svona leik skipta slíkir leik-
menn miklu máli og þar stendur
ÍS vel að vígi.“ Ágúst vildi ekki
spá um úrslit en hann telur að
leikurinn beri vott um að framfarir
séu í íslensku kvennadeildinni.
„Haukar og Keflavík áttust við í
úrslitum Powerade bikarsins, ÍS
og Grindavík lögðu þessi lið í und-
anúrslitunum og það gefur til
kynna að breiddin sé að aukast,“
sagði Ágúst.
Ágúst Björgvinsson segir að hraðinn verði aðalvopn Grindvíkinga gegn ÍS
Reynsla ÍS vegur þungt
GRINDAVÍK mætir annað árið í röð í bikarúrslitaleiki KKÍ og Lýs-
ingar í kvennaflokki í körfuknattleik en í fyrra tapaði liðið gegn
Haukum í úrslitum en ÍS úr Reykjavík lagði bikarmeistaralið Hauka
að velli í undanúrslitum og leikur til úrslita gegn Grindavík. Ágúst
Björgvinsson þjálfari Hauka segir að það sé merki um meiri breidd í
kvennakörfunni að ÍS og Grindavík leiki til úrslita og á hann von á
því að úrslitaleikurinn verði jafn og hörkuspennandi.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Einar telur að styrkleiki Grinda-víkurliðsins liggi aðallega í
þriggja stiga skotunum, en að sama
skapi telur hann að það sé helsti
veikleiki liðsins hve fá stig liðið skor-
ar að jafnaði undir körfunni. Hann er
á þeirri skoðun að meira jafnvægi
einkenni sóknarleik Keflavíkurliðs-
ins en oft áður. Þar séu skyttur af
bestu gerð og öflugur framherji sem
skorar mikið undir körfunni.
„Bandaríski leikmaðurinn Jerem-
iah Johnson er aðalvopn Grindvík-
inga í sóknarleiknum. Hann er gríð-
arlega öflugur í gegnumbrotunum en
ég tel að Keflvíkingar muni ekki
reyna að stöðva hann eingöngu.
Hann á það til að „klappa“ boltanum
aðeins of mikið í sóknarleiknum og
hann verður að halda félögum sínum
„heitum“ allan leikinn.“ Einar segir
að lykilleikmenn Grindavíkur verði
að hitta á góðan dag.
„Páll Axel Vilbergsson þarf að fá
góða hjálp við að finna færin og hann
er ein besta skytta landsins. Helgi
Jónas Guðfinnsson er að leika meira
en áður og er liðinu mikill styrkur.
Hinsvegar tel ég að úrslit leiksins
muni ráðast af framlagi leikmanna
sem eru „minna“ þekktir. Þorleifur
Ólafsson úr Grindavík er einn þeirra.
Ef hann blómstar og kemur með eitt-
hvað aukalega í leikinn eru þeir í
góðum málum.“
Einar telur liðin mjög áþekk þegar
leikmannahópur þeirra er krufin til
mergjar. „Bæði liðin eru með leik-
menn frá Evrópu, Nedsad Biberovic
er í Grindavík og Vlad Boeriu í
Keflavík. Þeir munu ekki ráða úrslit-
um í þessum leik.“
Meira jafnvægi í
sóknarleik Keflvíkinga
Þjálfarinn segir að helsti styrkur
Keflavíkurliðsins sé að meira jafn-
vægi sé í sóknarleik þeirra - miðað
við sóknarleik Grindavíkur.
„Keflavík er vissulega með miklar
skyttur en þeir hafa leikmann sem
getur skorað mikið undir körfunni og
þeir leita að Bandaríkjamanninum
AJ Moye þegar þeir lenda í vand-
ræðum. Moye er varla 1.90 m á hæð
en samt getur hann gert ótrúlega
hluti í vítateignum. Grindvíkingar
stóla meira á að hitta fyrir utan
þriggja stiga línuna og þeir eru ekki
með leikmann sem þeir geta stólað á
að skori undir körfunni. Páll Krist-
insson hefur vissulega leikið vel í vet-
ur, en er ekki sú gerð af leikmanni
sem vill snúa bakinu í körfuna og
skora með þeim hætti.“
Einar er sammála því að AJ Moye
minni um margt á Rondey Robinson,
fyrrum miðherja Njarðvíkur. „Jú,
það er rétt. En munurinn á þeim er
sá að Moye fer oft á vítalínuna í
hverjum leik og er með 80% nýtingu.
Robinson var ekki með slíka nýtingu
- langt frá því.“ Gunnar Einarsson,
fyrirliði Keflavíkur, er leikmaður
sem Einar telur að geti breytt gangi
mála. „Gunnar hefur ekki verið eins
áberandi og áður í leik liðsins. En í
svona leik þá getur hann tekið af
skarið, enda hefur hann mikla
reynslu og getur skotið fyrir utan og
keyrt upp að körfunni. Að mínu mati
er ekki mikill munur á leikmönnum á
borð við Magnús Gunnarsson úr
Keflavík og Páll Axel Vilbergsson úr
Grindavík. Erlendu leikmennirnir
fjórir úr báðum liðum eru áþekkir og
því tel ég að úrslit leiksins muni ráð-
ast af framlagi „minni“ spámanna.
Það verður að vera einhver sem tek-
ur af skarið og gerir eitthvað meira
en hann er vanur að gera. Það lið
sem verður með slíkan leikmann í
sínum röðum fer með sigur af hólmi,“
sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálf-
ari Njarðvíkur, en hann lyfti bikarn-
um í Laugardalshöllinni fyrir ári er
Njarðvík sigraði í bikarkeppninni.
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, telur að „minni“ spámenn eigi eftir að
stela senunni í „Suðurnesjaslag “ Grindavíkur og Keflavíkur
„Hraðinn
verður
mikill“
Morgunblaðið/Golli
Arnar Freyr Jónsson, bakvörður Keflvíkinga, verður í eldlínunni
í Laugardalshöll í dag í bikarúrslitaleiknum gegn Grindavík.
GRINDAVÍK og Keflavík mætast í fyrsta sinn í bikarúrslitaleik KKÍ
og Lýsingar í karlaflokki í körfuknattleik í dag í Laugardalshöll og
segir Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, að búast megi við
mjög skemmtilegum leik. Þjálfarinn segir að framlag íslenskra leik-
manna eigi eftir að ráða úrslitum, og það verði „minni“ spámenn
sem taki af skarið í leiknum og komi sínu liði til bjargar. Einar spáir
því að leikurinn endi 91:88 en hann vill ekki gefa það upp hvaða lið
hann telur sigurstranglegra. „Leikurinn verður hraður og án efa
mikil skemmtun.“
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is