Morgunblaðið - 20.02.2006, Qupperneq 1
Engin
takmörk
Menntadagur
iðnaðarins verður
22. febrúar 2006.
Nánari upplýsingar
og dagskrá á
www.si.is
Hófstilltur en
innlifaður leikur
Helga Braga Jónsdóttir vinnur eftirtekt-
arverðan sigur í Hungri | Menning 33
Fasteignir | Messað í stofunni og buslað í Elliðaánum
Framtíðarbyggð á Húsavíkurhöfða Íþróttir | Jón Arnór
ítalskur bikarmeistari Chelsea í basli með Colchester
DAVID Irving, breski rithöfundurinn um-
deildi, kemur fyrir rétt í Austurríki í dag,
ákærður fyrir að hafa brotið lög með því að
afneita helförinni, útrýmingarherferð nas-
ista gegn gyðingum.
Fréttastofan AFP hafði eftir Fritz
Plasser, austurrískum prófessor í stjórn-
málafræði, að réttarhöldin hefðu „mikla
táknræna þýðingu“ þar sem Austurríkis-
menn vildu sýna umheiminum að land
þeirra hefði gerbreyst frá nasistatíman-
um, þegar það var hluti af veldi Adolfs
Hitlers. Þar væri nú mönnum refsað fyrir
„lygar um helförina“.
Nokkrir af helstu andstæðingum Irv-
ings hafa þó látið í ljósi andstöðu við rétt-
arhöldin og sagt að þau geti gert hann að
píslarvotti og kynt undir reiði þeirra sem
saka Evrópuríki um hræsni þegar þau
skírskoti til tjáningarfrelsis til að verja
skopmyndir sem múslímar telja særandi,
en fangelsi þá sem móðgi gyðinga. | 14
Deilt um
réttarhöld
yfir Irving
62 ÁRA gömul langamma í Kaliforníu ól
heilbrigðan son á laugardag og varð ein
af elstu mæðrum heims. Er þetta tólfta
barn konunnar, sem heitir Janise Wulf og
hefur verið blind frá fæðingu. Hún á nú
20 barnabörn og þrjú barnabarnabörn.
Eiginmaður konunnar, Scott Wulf, 48
ára, heldur hér á nýfædda syninum sem
var tíu merkur og tekinn með keis-
araskurði.AP
62 ára langamma ól son
STJÓRNVÖLD í París hétu því í
gær að gera allt sem í valdi þeirra
stæði til að hefta útbreiðslu fugla-
flensu eftir að skýrt var frá fyrsta
fuglaflensutilfellinu í Frakklandi.
Staðfest var á laugardag að villt
önd hefði drepist af völdum mann-
skæðs afbrigðis fuglaflensuveir-
unnar, H5N1, í miðausturhluta
Frakklands.
Stjórnvöld í París hafa vaxandi
áhyggjur af efnahagslegum áhrif-
um þess að neytendur í Frakk-
landi og víðar hætti að kaupa ali-
fuglakjöt vegna ótta við
fuglaflensuna. Frakkar eru mestu
kjúklingaframleiðendur í Evrópu
og fjórðu mestu útflytjendur ali-
fuglakjöts í heiminum. Í Frakk-
landi eru alls um 200.000 ali-
fuglabú sem framleiða um 900
milljónir fugla á ári.
Landbúnaðarráðherrar ríkja
Evrópusambandsins koma saman í
dag til að ræða vandann sem steðj-
ar að alifuglabúum. Útbreiðsla
fuglaflensuveirunnar hefur orðið
til þess að salan á alifuglakjöti hef-
ur minnkað um 70% á Ítalíu, 40–
50% í Grikklandi og 15% í Frakk-
landi þótt stjórnvöld hafi reynt að
fullvissa almenning um að óhætt
sé að borða fulleldað alifuglakjöt.
Útflutningur Frakka á alifugla-
kjöti hefur minnkað um 30%.
Aukinn viðbúnaður
í Bretlandi
Ben Bradshaw, landbúnaðarráð-
herra Bretlands, sagði að hættan á
að fuglaflensan bærist þangað
hefði aukist með útbreiðslu hennar
til Frakklands og varnarviðbúnað-
urinn hefði verið aukinn. Hann
bætti þó við að fuglaflensa væri
„ekki óhjákvæmileg“ í Bretlandi.
John Reid, varnarmálaráðherra
Bretlands, lagði áherslu á að engin
ástæða væri fyrir Breta að fyllast
skelfingu þar sem þarlend stjórn-
völd hefðu gert allar þær ráðstaf-
anir sem væru nauðsynlegar til að
hefta útbreiðslu veikinnar.
Óttast efnahagsleg
áhrif fuglaflensu
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
Reuters
Dauður svanur á eyjunni Rüggen.
Gaza-borg. AFP. | Mahmoud Abbas, forseti
Palestínumanna, sagði í gær að palest-
ínska heimastjórnin stæði frammi fyrir
„alvarlegri fjárhagskreppu“ eftir að
stjórnvöld í Ísrael samþykktu refsiaðgerð-
ir gegn henni.
Ísraelar ætla meðal annars að halda eft-
ir tolltekjum sem þeir innheimta fyrir pal-
estínsku heimastjórnina. Abbas staðfesti
einnig að bandarísk stjórnvöld vildu að
Palestínumenn skiluðu þeim styrk að and-
virði 50 milljóna dollara, sem samsvarar
3,2 milljörðum króna, ef Hamas-hreyfing-
in myndar nýja stjórn eftir sigur hennar í
þingkosningum 25. janúar. Abbas bætti þó
við að viðræðum yrði haldið áfram um mál-
ið og bandarísk sendinefnd væri væntan-
leg til Gaza-borgar á næstu dögum. | 14
Abbas varar
við kreppu
LOÐNUVERTÍÐIN er á síðasta snúningi og
enn eftir að vinna mikið magn bæði fyrir Japani
og Rússa.
Loðnugangan hefur gengið hratt meðfram
suðurströnd landsins og var út af Sandvík vestan
við Reykjanesið í gærkvöldi. Loðnuskipin tóku í
snatri sinn skammt og sigldu til löndunar í
skyndi enda stuttur tími til stefnu til að hámarka
verðmæti kvótans. Hljóðið er þungt í loðnusjó-
mönnum sem eiga ekki orð yfir hvernig staðið er
að kvótasetningu og rannsóknum.
Engey RE 1 hefur fylgt loðnuflotanum, og var
komin vestur fyrir Reykjanes þar sem Svanur
RE 45, landaði í hann hæfilegum skömmtum af
loðnu en um borð eru unnin 350 tonn af loðnu á
sólarhring en stærri myndin er tekin úr Svani.
Tveir Japanir voru um borð frá sitthvorum
kaupandanum og skiptu þeir á milli sín förm-
unum, en voru kröfuharðir ef gæði voru ekki í
lagi. Þeir tóku kollhnís af ánægju vegna loðn-
unnar sem þeir fengu um helgina þar sem hún
er komin fast að hrygningu.
Þórður Magnússon skipstjóri hefur stýrt
Engey RE 1 frá því hún kom ný um mitt síðasta
ár og gengið mjög vel með skipið. „Nú blasir við
að loðnuvertíðinni ljúki um næstu helgi því
loðnukvóti er að klárast og loðnan komin að
hrygningu og því er sjálfhætt án þess að geta
unnið upp í það sem kaupendur væntu frá Ís-
lendingum á þessu ári,“ segir Þórður.
Hrognataka gæti hafist í dag
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Loðnuveiðimenn efast um að vertíðin endist lengur en fram að næstu helgi
♦♦♦
Fasteignir og Íþróttir
STOFNAÐ 1913 50. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is