Morgunblaðið - 04.04.2006, Qupperneq 2
ÍÞRÓTTIR
2 C ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
ÞAÐ er næsta víst að Lennart Johansson, forseti Knatt-
spyrnusambands Evrópu, UEFA, mun styðja Þjóðverj-
ann Franz Beckenbauer – ef hann gefur kost á sér í for-
setakjör þegar Johansson lætur af störfum sem forseti
á næsta ári.
Beckenbauer, sem er 60 ára, hefur oft verið orðaður
sem eftirmaður Johansson, en Beckenbauer hefur ekki
gefið út neinar yfirlýsingar um að hann gefi kost á sér.
Beckenbauer hefur haft nóg að gera við að skipuleggja
heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi. Ekki er þess að
vænta að hann ræði hugsanlegt framboð sitt fyrr en að
heimsmeistaramótinu loknu í sumar. Ef vel tekst til við
móthaldið er það Beckenbauer til framdráttar við
hugsanlegt forsetaframboð.
Aftur á móti hefur Frakkinn Michel Platini tilkynnt
um að hann gefi kost á sér sem forseti UEFA. Ef
Beckenbauer gefur kost á sér, verður kosið á milli hans
og Platini. Beckenbauer er talinn sigurstranglegri í
þeirri kosningu. Platini situr nú framkvæmdastjórn
UEFA.
Johansson styður
Beckenbauer
KONSTANTIN Shved, þjálfari kvennaliðs KA í blaki,
var í gærkvöldi útilokaður frá stjórnun liða í keppni á
vegum Blaksambands Íslands (BLÍ), eða í nafni BLÍ, frá
3. apríl 2006 til 31. desember 2006. Shved kallaði lið sitt
af leikvelli í fyrrakvöld í þriðju hrinu í leik þess við
Þrótt frá Neskaupstað og mætti ekki með það að nýju
til leiks. Vildi Shved með þessu mótmæla dómgæslunni.
Einnig voru sjö leikmenn KA úrskurðaðir í eins leiks
bann á fundi aganefndar. Af þeim sökum er óvíst hvort
KA getur stillt upp liði gegn Þrótti í úrslitakeppninni
þegar liðin eigast við á Akureyri í kvöld.
Eftirtaldir leikmenn KA voru úrskurðaðir í eins leiks
bann: Kolbrún Jónsdóttir, Una Margrét Heimisdóttir,
Tinna Aradóttir, Maria Shved, Natalia Gomzina, Heiða
Einarsdóttir og Særún Sævarsdóttir.
Stjórn BLÍ lítur þetta brot mjög alvarlegum augum,
segir í tilkynningu sem barst frá Blaksambandinu í
gærkvöldi. Shved er jafnframt landsliðsþjálfari ung-
linga- og kvennalandsliðsins. Ekki er ljóst á þessari
stundu hvaða áhrif þetta hefur á þau störf hans.
Þjálfari KA og sjö
leikmenn í bann
ÅGE Hareide, landsliðsþjálfari Noregs í kna
spyrnu, vill snúa keppnistímabilinu þar í lan
við. Hefja það síðsumars og ljúka því vorið e
ir, rétt eins og gert hefur verið í Danmörku
undanfarin ár. Norðmenn hefja jafnan sína
deildakeppni í apríl og ljúka henni í október
rétt eins og Svíar og Finnar, og Danir gerðu
þar til þeir söðluðu um.
„Ég er hrifinn af danska kerfinu þar sem
ið er vetrarfrí og spilað framundir Jónsmes
Væri Jónsmessukvöldið ekki tilvalið fyrir
norska bikarúrslitaleikinn, sannkölluð miðs
arhátíð?“ sagði Hareide við norska blaðið
Dagsavisen í gær. Hareide vill koma þessu á
að norska tímabilið sé í betri takti við það se
gengur og gerist annars staðar í Evrópu og
ur að þessi breyting myndi koma norska lan
liðinu vel.
Á næsta ári eiga Norðmenn að spila tvo le
í undankeppni heimsmeistarakeppninnar í
mars og þá vill Hareide að norska deildakep
in sé byrjuð. Það sé óhentugt fyrir landsliðið
spila mikilvæga landsleiki utan þess tíma se
hún er í gangi.
Félögum í efstu deild í Noregi er skylt að
hafa grasvelli sína upphitaða og eru einmitt
taka þá í notkun um þessar mundir. Fyrsta u
ferðin í úrvalsdeildinni hefst annan sunnuda
9. apríl.
KÖRFUKNATTLEIKUR
KR – Njarðvík 85:90
DHL-höllin, úrvalsdeild karla, Iceland Ex-
press-deildin, undanúrslit, fjórði leikur,
mánudagur 3. apríl 2006.
Gangur leiksins: 4:2, 6:7, 10:9, 12:13, 16:19,
16:22, 19:27, 23:30, 35:30, 38:39, 42:45,
42:52, 47:61, 51:65, 59:68, 66:68, 73:70,
73:80, 76:80, 81:86, 82:88, 85:88, 85:90.
Stig KR: Brynjar Björnsson 20, Fannar
Ólafsson 18, Melvin Scott 17, Skarphéðinn
Ingason 7, Níels Dungal 7, Ljubodrag
Bogavac 6.
Fráköst: 25 í vörn - 17 í sókn.
Stig Njarðvíkur: Jeb Ivey 23, Friðrik Stef-
ánsson 17, Brenton Birmingham 16, Guð-
mundur Jónsson 12, Egill Jónasson 9, Jó-
hann Ólafsson 8, Halldór Karlsson 5.
Fráköst: 25 í vörn - 14 í sókn.
Villur: KR 28 - Njarðvík 18.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Erlingur
Snær Erlingsson. Smámunasamir og flau-
tuglaðir að þessu sinni.
Áhorfendur: Um 800.
Njarðvík vann, 3:1, og leikur til úrslita.
Skallagrímur – Keflavík 94:85
Borgarnes:
Gangur leiksins: 2:0, 13:7, 20:18, 23:22,
25:24, 30:38, 48:50, 51:57, 58:60, 65:68,
72:77, 75:78, 82:82, 94:85.
Stig Skallagríms: Dimitar Karadovski 22,
Jovan Zdravevski 21, George Byrd, Axel
Kárason 14, Hafþór Gunnarsson 12, Pálmi
Sævarsson 5, Pétur Már Sigurðsson 2.
Fráköst: 34 í vörn - 8 í sókn.
Stig Keflavíkur: Vlad Boeriu 19, AJ Moey
17, Magnús Gunnarsson 14, Sverrir Þór
Sverrisson 11, Gunnar Einarsson 9, Arnar
Freyr Jónsson 6, Halldór Halldórsson 4,
Elentínus Margeirsson 2, Jón N. Haf-
steinsson 2, Guðjón Skúlason 2.
Fráköst: 20 í vörn - 5 í sókn.
Villur: Skallgrímur 20 - Keflavík 22.
Áhorfendur: Um 700, troðfullt hús.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson og Sig-
mundur Már Herbertsson. Dæmdu vel.
KNATTSPYRNA
England
Blackburn – Wigan...................................1:1
Shefki Kuqi 84. - Jason Roberts 53. -
Svíþjóð
IFK Gautaborg – Öster ............................0:0
Malmö FF – Häcken.................................1:1
Deildabikar karla
C-deild, 1. riðill:
Afríka – Ægir............................................ 3:1
Staðan:
Ýmir 2 1 1 0 4:2 4
Hvíti riddarinn 1 1 0 0 3:0 3
Árborg 1 1 0 0 3:2 3
Afríka 2 1 0 1 3:4 3
GG 2 0 1 1 4:5 1
Ægir 2 0 0 2 1:5 0
Skotland
Hearts vann Hibernian, 4:0, í undanúrslit-
um bikarkeppninnar á sunnudag en úrslitin
snerust við í blaðinu í gær. Hearts mætir
Gretna úr 2. deild í úrslitaleiknum.
Þeir börðust fyrir lífi sínu og viðvissum að þeir myndu gefa allt
sitt á lokakaflanum. Körfubolti er
hraður leikur og þeir tóku rispu í 4.
leikhluta en þá svöruðum við með
sambærilegri rispu. Þannig gengur
þetta oft fyrir sig, sérstaklega í úr-
slitakeppninni. Málið með KR er að
þeir eru með góða liðsheild og leik-
menn þekkja vel sín hlutverk. Það
gerir KR að jafngóðu liði og raun ber
vitni,“ sagði Brenton Birmingham,
leikmaður Njarðvíkur, er sigurinn
var í höfn. Spurður um hversu miklu
máli hæðin skipti í varnarleik liðsins
hafði hann þetta að segja:
„Við erum stoltir af varnarleik
okkar. Við setjum okkar ávallt mark-
mið varðandi varnarleikinn en aldrei
fyrir sóknarleikinn. Og það sést á
frammistöðunni. Hæðin vinnur með
okkur og Egill [Jónasson] þvingar
andstæðingana til þess að taka erfið
skot. Hann var góður í kvöld og hefur
verið það alla úrslitakeppnina. Og
svo eigum við auðvitað Friðrik [Stef-
ánsson] en um hann þarf ekki að fjöl-
yrða. Hann er besti leikmaður deild-
arinnar.“ Prakkaralegt glott færðist
yfir andlit stórskyttunnar er blaða-
maður tjáði honum að Skallagrímur
hefði sigrað Keflavík. „Áhugavert.
Við fáum þá mikilvæga hvíld. Við er-
um spenntir yfir því að komast í úr-
slit en erum ekki orðnir saddir. Við
viljum vinna og verðum klárir þegar
úrslitin hefjast, sama hverjum við
mætum þar,“ sagði Brenton.
Sveiflukenndur leikur
Leikurinn var sveiflukenndur og
liðin tóku rispur á víxl eins og fram
kom hér að framan. Leikmenn voru
hinir rólegustu í stigaskorun í fyrsta
fjórðungi og mikið af mistökum leit
dagsins ljós. Skemmtanagildið rauk
hins vegar upp í öðrum leikhluta en
þá sáust margar þriggja stiga körfur,
en hittni liðanna fyrir utan þriggja
stiga línuna var til fyrirmyndar. KR-
ingar hittu tíu slíkum í tuttugu og
þremur tilraunum en Njarðvíkingar
gerðu gott betur og hittu ellefu af
tuttugu og einu. Hrein unun að fylgj-
ast með hinum unga KR-ingi, Brynj-
ari Björnssyni, sem er orðinn ein
besta skytta deildarinnar þó hann sé
enn innan við tvítugt.
Njarðvíkingar náðu undirtökunum
í leiknum strax í byrjun síðari hálf-
leiks. Þá leit út fyrir að Vesturbæing-
ar ættu ekki afturkvæmt en þeir
sýndu aðdáunarvert baráttuþrek og
komust yfir um miðjan síðasta leik-
hluta.
Allt virtist leika í lyndi hjá liðinu og
stemmningin ósvikin á pöllunum. En
þá dró skyndilega fyrir sólu, og á
augabragði höfðu gestirnir skorað
tíu stig í röð og staðan 73:80. Á loka-
mínútum leiksins reyndu KR-ingar
hvað þeir gátu en sóknaraðgerðir
þeirra voru ekki nægilega markviss-
ar. Stóru strákarnir, Fannar Ólafs-
son og Friðrik, voru báðir farnir út af
með 5 villur og Brynjar fylgdi í kjöl-
farið. Melvin Scott sýndi hæfni sína í
þriggja stiga skotum í restina, en það
var of seint. Njarðvíkingar brugðust
ekki á vítalínunni og innbyrtu sigur-
inn.
Það hefur ekki vantað andann og
baráttuna í KR-liðið í vetur. Liðs-
heildin er öflug og varnarleikur liðs-
ins gífurlega góður þegar því tekst
hvað best upp. Með Scott sem leik-
stjórnanda eru sóknaraðgerðir liðs-
ins hins vegar of tilviljunarkenndar.
Kjarnann í liðinu; Fannar, Brynjar,
Steinar Kaldal, Níels Dungal, Pálma
Sigurgeirsson og Skarphéðin Inga-
son, er hins vegar hægt að byggja
sigurlið í kringum.
Þurfum að læra að halda dampi
Skarphéðinn bar sig mannalega í
leikslok: „Ég held að það sé voðalega
lítill munur á liðunum. Við vorum
bara á hælunum í þessum leik og
þeim síðasta. Við getum spilað miklu
betri vörn en við gerðum og þeir
refsa grimmt fyrir það. Ég held að
þeir hafi ekkert mikið fram yfir okk-
ur er varðar hæðina, við vorum bara
ekki að nýta okkar tækifæri nægi-
lega vel. Þeir eru með menn eins og
Brenton og Ivey, sem geta skorað
þegar mikið liggur við og þeir gerðu
það. Það er ekki mikið flóknara en
það. Þessar sveiflur sem sáust sýnir
bara fegurðina við körfuboltann. Við
þurfum hins vegar að læra að halda
betur dampi þegar gengur vel og
keyra andstæðingana í kaf. Hjá okk-
ur er góður andi en það vantar stund-
um upp á að halda stemningunni út
leikina,“ sagði Skarphéðinn.
Njarðvíkingar
stóðust áhlaup
KR-inga
NJARÐVÍKINGAR sendu KR-inga í sumarfrí, er þeir sigruðu þá í
DHL-höllinni í gærkvöldi 90:85. Leikurinn var sá fjórði í kapphlaupi
liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik. Njarðvík
sigraði samanlagt 3:1 og þarf að bíða eftir fimmta leik Keflvíkinga
og Borgnesinga til að sjá hvað bíður þeirra í úrslitunum. KR-ingar
gerðu heiðarlega tilraun til þess að jafna metin á heimavelli sínum,
en þrátt fyrir góðan stuðning og mikinn vilja tókst það ekki. Njarð-
víkingar voru sterkir á taugum undir lokin og stóðust áhlaupið.
Eftir Kristján Jónsson
Jeb Ivey Njarðvíkingur sækir að P
Hareide
vill gera
breytingar
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni kvenna, Iceland Express-
deildin, annar leikur í úrslitum
Keflavík: Keflavík - Haukar ......................20
1. deild karla
Keppni um úrvalsdeildarsæti, annar leikur:
Smárinn: Breiðablik - Þór Þ. ................19.15
BLAK
Úrslitakeppni kvenna, annar leikur
KA-heimilið: KA - Þróttur N.....................20
Hagaskóli: Þróttur - HK............................20
Í KVÖLD
LENGJAN
LEIKIR DAGSINS
Spilaðu á næsta sölustað eða á lengjan.is
Hammarby - Helsingborg 1,85 2,75 2,90
Kufstein - Schwanenstadt 2,20 2,60 2,45
Altach - Pasching 2,60 2,65 2,05
Gratkorn - Ried 2,65 2,70 2,00
Kapfenberg - Austria Wien 4,75 3,35 1,35
Mattersburg - Rapid Vín 2,60 2,65 2,05
AZ Alkmaar - NAC Breda 1,20 3,85 6,40
Forfar - Stirling 2,35 2,60 2,30
East Stirling - Cowdenbeath 7,70 4,00 1,15
Birmingham - Bolton 2,40 2,60 2,25
Port Vale - Milton Keynes Dons 1,60 2,95 3,50
Bury - Macclesfield 1,90 2,75 2,80
Rochdale - Darlington 2,00 2,70 2,65
Altrincham - York 2,60 2,65 2,05
Cambridge - Exeter 2,30 2,60 2,35
Canvey Island - Woking 2,10 2,65 2,55
Gravesend - Grays Athletic 2,90 2,75 1,85
Morecambe - Hereford 2,15 2,60 2,50
Tamworth - Aldershot 2,45 2,60 2,20
Milan - Lyon 1,60 2,95 3,50
Villareal - Inter 2,25 2,60 2,40
Ross County - Dundee FC 1,60 2,95 3,50
Bray - St.Patricks Atletic 2,15 2,60 2,50
Breiðablik - Þór Þ. 1,55 7,90 1,80
LA Clippers - Denver 1,50 8,10 1,85
Toronto - Boston 1,65 7,40 1,70
Utah - San Antonio 2,55 9,50 1,20
DEILDABIKARKEPPNI kvenna í handknattleik hefst 25. apríl en
fjögur efstu liðin í deildakeppninni heyja baráttu um titilinn, sem
keppt verður um í fyrsta sinn. Í undanúrslitunum mæta Íslandsmeist-
arar ÍBV liði Stjörnunnar sem hafnaði í fjórða sæti og liðin í öðru og
þriðja sæti, Valur og Haukar, eigast við. Tvo sigurleiki þarf til að
komast í úrslit svo ef til oddaleikja kemur fara þeir fram 30. apríl.
Fyrsti úrslitaleikurinn verður háður 2. maí.
Deildabikarkeppni hjá konunum