Morgunblaðið - 16.04.2007, Side 1
mánudagur 16. 4. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Elsa Guðrún Jónsdóttir sigursæl á Skíðamóti Íslands >> 2
HAUKAR MEISTARAR
HELENA SVERRISDÓTTIR KVADDI VINKONUR SÍNAR
MEÐ STÓRLEIK OG ÍSLANDSMEISTARATITLI >> 8
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Fríða Rún, sem er á 15. ári, var að
vonum afar með árangur sinn en
Morgunblaðið spjallaði við þessa
upprennandi fimleikastjörnu eftir
Norðurlandamótið í gær.
,,Ég er rosalega ánægð með ár-
angurinn. Ég bjóst alls ekki við
þessu þar sem ég var að keppa á
móti mjög sterkum stelpum. Ég
stefndi auðvitað að því að gera
mitt besta og reyna að vinna og
það tókst og það var virkilega
gaman,“ sagði Fríða Rún, sem
fékk sex fallega gullpeninga í
verðlaunasafn sitt.
,,Eftir að hafa unnið fjölþrautina
á laugardaginn var ég öruggari
með mig í úrslitunum á áhöld-
unum. Mér leið vel og það gekk
hreinlega allt upp hjá mér á
mótinu. Það var líka mjög óvænt
að við skyldum vinna liðakeppn-
ina.“
Stefnir á heimsmeistaramót
og Ólympíuleika
Fríða Rún hefur æft fimleika frá
því hún var 5 ára gömul og hún
stefnir hátt. ,,Ég stefni að því að
komast á heimsmeistaramótið sem
haldið verður í september og svo
er draumurinn að komast á Ól-
ympíuleikana en ég veit að leiðin
er löng þangað,“ sagði Fríða Rún
,,Við erum alveg í sjöunda himni
með þennan árangur og þessi helgi
var svo sannarlega frábær fyrir ís-
lenska fimleika. Þetta er líklega í
fyrsta skipti sem einstaklingur
vinnur allar greinarnar svo þetta
er ekki bara sögulegt fyrir okkur
heldur á öllum Norðurlöndunum.
Fríða hafði mikla yfirburði. Hún
fékk 53,35 stig í fjölþrautinni sem
er frábært skor og gefur góða
mynd af hversu góð hún er,“ sagði
Guðmundur Brynjólfsson fimleika-
þjálfari í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Íslenska fimleikafólkið vann til
fleiri verðlauna á mótinu. Bjarni
Ásgeirsson, Ármanni, vann silfur-
verðlaun á bogahesti, Ingvar Joch-
umsson, Gerplu, vann brons á
tvíslá og Sigrún Dís Tryggvadótt-
ir, Gerplu, vann bronsverðlaun
fyrir gólfæfingar sínar.
Morgunblaðið/Ómar
Gullstúlkan Fríða Rún Einarsdóttir fékk sex gull í Kaupmannahöfn.
Fríða Rún
með sex gull
Glæsilegur árangur Íslendinga á
Norðurlandamóti unglinga í fimleikum
FRÍÐA Rún Einarsson úr Fimleika-
félaginu Gerplu kom, sá og sigraði
á Norðurlandamóti unglinga í fim-
leikum sem fram fór í Kaupmanna-
höfn í Danmörku um helgina. Fríða
Rún varð sexfaldur Norðurlanda-
meistari. Hún sigraði í fjölþrautinni
á laugardaginn, vann sigur á öllum
fjórum áhöldunum í gær, í stökki, á
tvíslá, jafnvægisslá og í gólfæfing-
um og var í sigursveit Íslands sem
vann liðakeppnina og það er í
fyrsta skipti sem Ísland hrósar sigri
í liðakeppni á Norðurlandamóti.
Glæsilegur árangur og ljóst er að
mikil gróska er í fimleikunum hér á
landi.
Í HNOTSKURN
»Þetta er í fyrsta skipti semÍslendingar eignast Norð-
urlandameistara í unglinga-
flokki hjá konum en Sif Páls-
dóttir varð
Norðurlandsmeistari fullorð-
inna á síðasta ári, fyrst ís-
lenskra fimleikakvenna.
»Sigursveitina í liðakeppn-inni skipuðu: Fríða Rún
Einarsdóttir, Sigrún Dís
Tryggvadóttir, Thelma Rut
Hermannsdóttir, Dóra Guð-
mundsdóttir og Þórdís Helga
Kjartansdóttir.
„ÞAÐ skýrist í dag hversu alvarleg meiðslin
eru en ég vonast til að geta verið með FCK
þegar úrslitakeppnin hefst eftir hálfan mán-
uð,“ sagði Arnór Atlason, handknattleiks-
maður hjá FCK Håndbold, í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Arnór meiddist á nára eftir
fimm mínútur í kappleik við Kolding á laug-
ardaginn og kom ekkert meira við sögu. „Í
fyrstu var óttast að meiðslin væru alvarleg en
ég er heldur bjartsýnni í dag. Ég get þó ekk-
ert fullyrt fyrr en að lokinni segulómskoðun á
morgun [í dag],“ sagði Arnór sem leikið hefur
afar vel með FCK á leiktíðinni en liðið
tryggði sér deildarmeistaratitilinn í fyrr-
greindum leik við Kolding með sigri, 35:31.
Þetta er fyrsti deildarmeistaratitill félagsins
sem var stofnað fyrir fjórum árum. Nú hefur
stefnan verið sett á danska meistaratitilinn og
ljóst að liðið mætir Viborg í undanúrslitum en
fjögur efstu lið deildarinnar leika til úrslita
um danska meistaratitilinn.
Arnór Atlason úr leik í tvær vikur
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Kvennalið Gerplu varð á laugardag
Norðurlandameistari í hópfimleik-
um en keppt var í Stokkhólmi í Sví-
þjóð. Þetta er í fyrsta sinn sem ís-
lenskt félagslið verður
Norðurlandameistari í þessari grein.
Gerpla fékk 26,35 stig samanlagt
en USG frá Danmörku varð í öðru
sæti með 25,95 stig. Uppsalaflic-
korna frá Svíþjóð fékk bronsverð-
laun en Stjarnan/Björk endaði í átt-
unda sæti með 23,35 stig.
„Þessi helgi er sú besta í íslensk-
um fimleikum frá upphafi. Fríða Rún
Einarsdóttir safnaði gullverðlaunum
í Danmörku á NM og við fáum tvenn
verðlaun á NM í hópfimleikum,“
sagði Björn Björnsson, þjálfari
Gerplu, í gær en Ármann/Grótta
fékk silfurverðlaun á mótinu í Sví-
þjóð í keppni blandaðra liða. Þar sem
karlar og konur keppa í sama liði.
Ármann/Grótta fékk 24,50 í saman-
lagða einkunn, 8,10 á gólfi, 8,80 á
dýnu og 7,60 á trampólíni. Danska
liðið Silkeborg P & D varð Norður-
landameistari með 24,85 í saman-
lagða einkunn. Stjarnan/Björk
keppti einnig í þessari grein og end-
aði liðið í sjöunda sæti með 22,90 í
einkunn.
Gerpla vann til silfurverðlauna á
Evrópumeistaramótinu í Tékklandi í
nóvember sl. en næsta stóra mót hjá
þessu liði verður haustið 2008 í Belg-
íu þar sem að Evrópumótið fer fram.
„Það er bjart framundan hjá okkur.
Þetta lið getur orðið enn betra og
liðsheildin er það sem hefur verið
okkar styrkleiki. Á NM í Svíþjóð
reyndum við að bæta okkur frá því á
EM í Tékklandi og það tókst. Það er
mikil gróska í hópfimleikum hér á Ís-
landi og margir sem eru hættir í
áhaldafimleikum eru farnir að
stunda hópfimleika með frábærum
árangri,“ bætti Björn við.
Lið Gerplu var þannig skipað:
Auður Ólafsdóttir, Ásdís Dagmar
Þorsteinsdóttir, Ásdís Guðmunds-
dóttir, Guro Hansen Andersson,
Hafdís Jónsdóttir, Hrefna Hákonar-
dóttir, Íris Mist Magnúsdóttir, Kar-
en Sif Viktorsdóttir, Kolbrún Sveins-
dóttir, Magdalena Rós Guðnadóttir,
Rakel Reynisdóttir, Rut Valgeirs-
dóttir, Sara Rut Agústsdóttir, Svava
Björg Örlygsdóttir og Þórunn Arn-
ardóttir.
Þjálfarar: Ása Inga Þorsteinsdótt-
ir, Björn Björnson og Michel Chris-
tensen.
Gullverð-
laun á NM
í Stokk-
hólmi