Morgunblaðið - 16.04.2007, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar
sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
ELSA Guðrún Jónsdóttir frá Ólafs-
firði nældi í önnur gullverðlaun sín
á Landsmótinu á laugardaginn þeg-
ar hún sigraði í 5 km göngu með
hefðbundinni aðferð.
Keppni var spennandi, Elsa kom í
mark sjö sekúndum á undan Sól-
veigu G. Guðmundsdóttur frá Ísa-
firði eftir að stúlkurnar höfðu
gengið í nærri hálfa nítjándu mín-
útu. Rannveig Jónsdóttir frá Ísa-
firði varð í þriðja sæti.
Elsa Guðrún tapaði óvænt í
fyrstu keppni mótsins; sprettgöng-
unni á föstudaginn, þegar Sólveig
sigraði en það var fyrsta tap henn-
ar frá upphafi hér heima. Elsa er 21
árs en byrjaði að keppa sex ára, á
Andrésar andar leikunum.
Í gær lauk Skíðamóti Íslands í
blíðskaparveðri með keppni í boð-
göngu karla og kvenna. Keppni var
spennandi og skemmtileg; í karla-
flokki varð A-sveit Skíðafélags Ak-
ureyrar Íslandsmeistari, sveit
Sauðárkróks varð önnur og í þriðja
sæti sveit Ísafjarðar.
Í kvennaflokki varð Íslandsmeist-
ari A-sveit Ísafjarðar, Ólafsfirð-
ingar urðu í öðru sæti og B-sveit
Ísafjarðar nældi í bronsið.
Í flokki pilta 17–19 ára sigraði
Sigurjón Hallgrímsson, Ísafirði,
annar var Brynjar Leó Kristinsson,
Akureyri, og þriðji Stefán Pálsson,
Ísafirði. Í tvíkeppni urðu úrslit
þriggja efstu eins og í göngunni á
laugardaginn; sigurvegarar urðu
því Elsa Guðrún Jónsdóttir og Sæv-
ar Birgisson.
Mikil spenna í 5 km göngu kvenna
SÆVAR Birgisson frá Sauðárkróki
sigraði af miklu öryggi í 10 km göng-
unni á Landsmótinu á skíðum í Hlíð-
arfjalli á laugardaginn. Gengið var
með hefðbundinni aðferð.
Sævar gekk vegalendinga á 32,26
mín. og kom í mark tæpum tveimur
mínútum á undan Sigurgeiri Svav-
arssyni, Akureyri, sem varð annar.
„Þetta bætti fyrir síðustu tvo
daga; nú gekk allt upp, veðrið var
frábært og ég get ekki kvartað. Ég
var léttur á mér í dag,“ sagði Sævar
við Morgunblaðið. Þar með sigraði
hann einnig í tvíkeppninni.
Andri Steindórsson, Akureyri,
varð þriðji, for-
maður Skíðasam-
bandsins Daníel
Jakobsson, Ólafs-
firði, varð fjórði
og fimmti varð
gamla kempan
Magnús Eiríks-
son, Siglufirði.
Keppendur
fóru allir af stað í
einu á laugardag-
inn sem Sævar var ánægður með. Ég
vona að þetta verði svona í framtíð-
inni; þetta er miklu skemmtilegra,
ekki síst fyrir áhorfendur.“
Öruggt hjá Sævari
Sævar
Birgisson
Landsliðsmað-urinn Gunn-
ar Heiðar Þor-
valdsson gat ekki
leikið með Hann-
over vegna
meiðsla en liðið
tapaði fyrir Stutt-
gart, 2:1, í þýsku
1. deildinni í
knattspyrnu. Hannover er í 11. sæti
og er aðeins fimm stigum frá fall-
sæti.
Silkeborg tapaði enn einum leikn-um í dönsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Silkeborg mætti Vi-
borg og tapaði, 2:1. Bjarni Ólafur
Eiríksson lék allan tímann fyrir
Silkeborg, Hörður Sveinsson kom
inn á sem varamaður á 30. mínútu en
fór meiddur út af á 76. mínútu en
Hólmar Örn Rúnarsson var ekki í
leikmannahópnum vegna meiðsla.
Silkeborg er á leið niður ásamt
Vejle en liðin eru langneðst í deild-
inni og ekkert nema kraftaverk get-
ur bjargað þeim frá falli.
Árni Gautur Arason varði markVålerenga sem gerði 1:1 jafn-
tefli við Stabæk í 2. umferð norsku
úrvalsdeildarinnar í gær. Veigar
Páll Gunnarsson lék allan tímann
fyrir Stabæk en félagi hans í fram-
línunni, Daniel Nannskog, skoraði
mark Stabæk.
Haraldur Freyr Guðmundssonlék ekki með nýliðum Aale-
sund sem töpuðu fyrir hinum nýlið-
unum, Sandefjörd, 3:0.
Viktor Bjarki Arnarson, leik-maður Íslandsmótsins á síðustu
leiktíð, var ekki í leikmannahópi
Lilleström sem lagði Odd Grenland
á útvelli, 0:1. Viktor hefur fá tæki-
færi fengið með liðinu en hann gekk
í raðir þess frá Víkingi í vetur.
Hannes Þ. Sigurðsson lék allantímann í framlínu Viking sem
gerði 1:1 jafntefli við Start. Birkir
Bjarnason var ekki í leikmannahópi
Viking og Jóhannes Þór Harðarson
ekki í leikmannahópi Start en hann
er að jafna sig eftir meiðsli.
TenniskappinnArnar Sig-
urðsson úr TFK
er kominn á fulla
ferð aftur eftir
meiðsli og tók
hann þátt í móti í
Tyrklandi um
helgina. Arnar
sem náði að
hækka um rúmlega 800 sæti á
heimslistanum, tapaði í annarri um-
ferð á sterku atvinnumannamóti í
Antalya fyrir Spánverjanum Ro-
mero Torres, 7:5, 1:6 og 6:2. Í tví-
liðaleiknum komst Arnar hins vegar
í úrslit með Bandaríkjamanninum
Brett Ross þar sem þeir töpuðu fyrir
Belganum Steve Darcis og Hollend-
ingnum Fred Hemmes, 6:2 og 6:4.
Fólk sport@mbl.is
Hin unga Salome Tómasdóttir,
sem einnig er frá Akureyri, varð í
öðru sæti í sviginu eins og stór-
sviginu og þriðja Akureyrarstúlk-
an, Þóra B. Stefánsdóttir náði
þriðja sætinu og þar með brons-
inu.
Óhætt er að segja að svigkeppni
kvennanna hafi verið söguleg. Þær
áttu að byrja snemma en vegna
veðurs var keppni frestað, eins og
hjá körlunum reyndar, vegna
hvassviðris, og kvennakeppninni
lauk ekki fyrr en tæplega hálfum
sólarhring eftir að hún átti að
byrja.
„Aðaldómarinn vildi ekki að
senda stelpurnar út í þetta rok,
honum var sérstaklega illa við að
yngstu stelpurnar kepptu við þess-
ar aðstæður,“ sagði Dagný Linda
við Morgunblaðið. „Þetta er með
því versta sem ég hef lent í hérna.
Það er yfirleitt lokað í Hlíðarfjalli
við svona aðstæður; í svona miklu
suðvestan roki, en það var beðið
vegna þess að allir vildu klára
mótið.“
Karlarnir hófu keppni síðdegis,
konurnar áttu að byrja eftir fyrri
ferð karlanna en enn þótti of
hvasst í brekkunni til að óhætt
þætti að stúlkurnar færu af stað.
Keppni karlanna var því haldið
áfram en það var ekki fyrr en um
kvöldmatarleytið að nægilega hafði
lægt og keppni kvennanna hófst.
Vert er að geta þess að svo
hvasst var í Strýtu um miðjan
laugardaginn að lyftan var ekki í
gangi – fór út af sporinu ofarlega í
brautinni – og keppendur voru
ferjaðir upp í startið á snjótroðara.
Rétt fyrir seinni ferðina komst
lyftan svo aftur í gang.
Mojca Rataj frá Bosníu-Her-
zegóvínu, sem keppti sem gestur á
Landsmótinu, var með bestan tíma
allra í fyrri ferðinni en Dagný
Linda var með bestan tíma ís-
lensku keppendanna; fór brautina
á 1 mín., 3,52 sek. Þóra varð í öðru
sæti á 1.08,66 mín. og Salome var
á 1.06,05 mín. Dagný sigraði svo
örugglega; fór samtals á 2 mín.
8,07 sek. Samanlagður tími Salome
var 2.12,04 mín og Tinna Dag-
bjartsdóttur varð þriðja á 2.13,38.
Þóra náði sér ekki eins vel á strik í
seinni ferðinni og endaði í sjöunda
sæti.
„Ég var ekki með afgerandi for-
skot eftir fyrri ferðina og var því
ekki örugg, en hafði þetta með því
að keyra ágætlega í seinni ferð-
inni,“ sagði Dagný Linda.
Löng bið í fjallinu
Stúlkurnar biðu klukkutímum
saman eftir að keppni gæti byrjað
en Dagný Linda segir stemn-
inguna þrátt fyrir það hafa verið
ágæta og allar hafi þær viljað
klára mótið á laugardaginn í stað
þess að þurfa að keppa í gær.
„Það var ekkert annað hægt en
bíða. Maður reyndi að halda sér
passlega stemmdum; það mátti
ekki slappa of mikið af og ekki
peppa sig of mikið upp!“
Veðrið lagaðist mjög mikið þeg-
ar á leið. „Það datt nánast alveg í
dúnalogn í seinni ferðinni,“ sagði
Dagný Linda.
Hún kvaðst vitaskuld mjög sátt
við uppskeru síðustu daga; fagnaði
þremur Íslandsmeistaratitlum – í
svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni –
og dagana þar á undan sigraði
Dagný Linda í öllum Icelandair
Cup-mótunum, sem fram fóru í
Reykjavík og á Akureyri.
Dagný fer til Noregs á morgun
og keppir þar á sex FIS-mótum á
næstunni áður en tímabilinu lýkur.
Eftir stutt frí taka svo við æfingar
á ný. „Ég ætla að æfa þrekið fyrir
næsta tímabili í Póllandi. Kærast-
inn minn er þar núna þannig að ég
ætla að fara þangað.“
Ljósmynd/ Guðmundur Jakobsson
Þolinmæði Dagný Linda Kristjánsdóttir í sviginu undir kvöld á laugardaginn. Stúlkurnar biðu klukkutímum saman eftir því að keppnin hæfist.
„Yfirleitt lokað í Hlíðar-
fjalli við svona aðstæður“
DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir,
skíðadrottning frá Akureyri, gaf
ekkert eftir á laugardaginn, síðasta
degi alpagreinakeppninnar á
Skíðamóti Íslands. Hún sigraði þá í
svigi, hafði unnið stórsvigið daginn
áður og vann því einnig alpatví-
keppnina.
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is