Morgunblaðið - 16.04.2007, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2007 5
íþróttir
Rúnar Krist-insson lék
allan leikinn með
Lokeren í belg-
ísku 1. deildinni á
laugardag þar
sem liðið gerði
1:1-jafnteflti
viðMoeskroen.
Rúnar lék í stöðu
varnartengiliðs. Lokeren er í 3.
neðsta sæti deildarinnar.
Stefán Gíslason var fyrirliði norskaúrvalsdeildarliðsins Lyn sem
tapaði á útivelli, 3:1, gegn Fredriks-
tad. Indriði Sigurðsson var mið-
vörður í vörn Lyn en Garðar Jó-
hannsson, sem var í leikmannahóp
Fredrikstad, kom ekki við sögu í
leiknum. Lyn lék með 10 leikmenn í
85 mínútur þar sem varnarmanni
liðsins var vikið af velli á 5. mínútu.
Um 90.000 áhorfendur mættu áleikina í fyrstu umferð norsku
úrvalsdeildarinnar og hafa aldrei
fleiri áhorfendur mætt á leiki í fyrstu
umferð. Tveir nýir leikvellir voru
vígðir; í Fredrikstad, þar sem um
13.000 áhorfendur mættu og Start
vígði einnig nýjan völl. Þangað komu
um 14.500 áhorfendur. Brann og Ros-
enborg áttu heimaleiki og voru um
17.000 áhorfendur á leiknum í Berg-
en og um 21.000 áhorfendur á leikn-
um í Þrándheimi.
Marel Baldvinsson var ekki í leik-mannahópi Molde í norsku 1.
deildinni á laugardag í 3:0-sigri liðs-
ins á heimavelli gegn Moss.
Gunnar Þór Gunnarsson lék síð-ustu 30 mínúturnar fyrir
Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni í
3:0-sigri liðsins gegn Trelleborg í
Stokkhólmi.
Arnar Þór Viðarsson lék ekki meðTwente í hollensku úrvalsdeild-
inni í 2:0-tapleik liðsins gegn PSV.
Arnar sat sem fastast á bekknum all-
an tímann.
Grétar RafnSteinsson
lék allan tímann
fyrir AZ Alkmaar
sem lagði Vitesse
Arnheim, 1:0, í
gær, á heimavelli
sínum. AZ
Alkmaar lék
manni fleiri nær
allan seinni hálfleikinn en sig-
urmarkið skoraði Shota Arveladze úr
vítaspyrnu á 23. mínútu. PSV er efst í
deildinni með 71 stig en Ajax og AZ
Alkmaar koma næst með 69 stig.
Helgi Valur Daníelsson lék allantímann fyrir Öster sem tapaði á
heimavelli fyrir Häcken, 1:2, í sænsku
1. deildinni í gær. Ari Freyr Skúlason
spilaði allan leikinn fyrir Häcken og
lagði upp sigurmarkið.
Fólk folk@mbl.is
Vinni bæði HK og Valur í lokaum-
ferðinni þá standa Valsmenn uppi
sem Íslandsmeistarar vegna betri úr-
slita í innbyrðis leikjum liðanna.
Gunnar Magnússon, þjálfari HK, er
hins vegar vongóður um að Haukar
setji strik í reikning Vals í lokaleikn-
um og að HK vinni örugglega fyrir
norðan. „Haukar hafa að litlu að
keppa en innan raða liðsins eru miklir
keppnismenn, bæði utan vallar sem
innan og ég hef trú á að þeir gefi Vals-
mönnum ekki neitt eftir,“ sagði
Gunnar eftir sigurinn í gær.
HK menn voru mun betri í fyrri
hálfleik, vörnin var sterk og sóknar-
leikurinn markviss. Það setti mikinn
svip á leikinn að tveir leikmenn fengu
óverðskuldað rautt spjald á fyrstu 13
mínútum leiksins. Fyrst Sergey
Petraytis, leikmaður HK, og nokkru
síðar Haukamaðurinn Arnar Péturs-
son.
Leikmenn Hauka voru alls ekki af
baki dottnir þrátt fyrir slæma stöðu í
hálfleik. Fyrsta stundarfjórðunginn í
síðari hálfleik lék liðið mjög góða
vörn og náði fjölda hraðaupphlaupa.
Jöfnuðu þeir metin, 19:19, en komust
ekki lengra. Í kjölfarið komu þrjár
óvandaðar sóknir sem voru vatn á
myllu HK. Kópavogsbúar náðu for-
skoti á ný og litu aldrei um öxl eftir
það.
Of fljótir að gefast upp
„Við vorum of fljótir að gefast upp
eins og oft hefur gerst hjá okkur í vet-
ur,“ sagði Guðlaugur Arnarsson, leik-
maður Fylkis, eftir 33:29 tap fyrir
Fram í Safamýrinni, sem sendi
Árbæinga niður í 1. deild. „Við vorum
bara hársbreidd frá því að komast inn
í leikinn, þurftum bara stig úr honum
og vinna svo næsta leik, þá værum við
áfram í deildinni.“
Fylkismenn skoruðu fyrsta markið
en Björgvin Gústavsson lokaði þá
marki Fram, sem skoraði 5 næstu
mörk og þá var eins og dofnaði yfir
gestunum. Hlynur Morthens mark-
vörður Fylkis hélt sínum mönnum
inni í leiknum, sem á 26. mínútu náðu
forystu í annað sinn 14:13 en fóru þá
heldur illa að ráði sínu og Framarar
skoruðu 4 mörk í röð. Fylkismönnum
tókst að hanga í heimamönnum fram í
miðjan síðari hálfleik en eftir að
Björgvin varði þrjú vítaskot á stutt-
um tíma, náði Fram forystu, 27:20 og
Fylki tókst ekki að brúa það bil.
„Að sjálfsögðu var erfitt fyrir okk-
ur að stilla inn á þennan leik en þetta
var síðasti heimaleikurinn í vetur og
við vildum klára hann með sóma,“
sagði Hjörtur Hinriksson, sem skor-
aði 10 mörk fyrir Fram. „Fylkir er
fínt lið sem var að berjast fyrir lífi
sínu og á fullu allan tímann svo það
mátti ekkert gefa eftir. Við ætluðum
okkur meira í vetur en þriðja sætið er
þó þriðja sætið. Við ætluðum að klára
þennan leik og svo næsta áður en við
færum að einbeita okkur að þessum
margrómaða deildarbikar.“
Hjá Fylki varði Hlynur 28 skot og
Agnar Jón Agnarsson var drjúgur
með 11 mörk en skoraði sitt fyrsta
mark þó ekki fyrr en á 14. mínútu.
„Þetta var skelfilegt hjá mér og öllum
öðrum, alveg óskiljanlegt. Það hefur
verið deyfð yfir okkur og við aldrei
náð baráttu, eins og var í fyrra. Það
hefur verið gegnumgangandi í hverj-
um leik, það er eins og einhver þungi
hvíli á okkur. Við náum ekki léttleik-
anum og baráttunni eins og í fyrra,
erum ekki svipur hjá sjón. Við erum
nógu góðir á pappírunum en það
nægir ekki alltaf,“ bætti Agnar við,
eðlilega ósáttur við að falla en vissi
samt ekki með framhaldið. „Við höf-
um gætt þess að tala ekki neitt um
hvað verður fyrr en mótið er búið,
bara hugsa um þessa tvo leiki og allt
annað á bið. Menn klára nú vænta-
lega síðasta leikinn, svo sjáum við
hvað gerist og svo er ársþingið eftir.“
Haukum tókst ekki að
setja strik í reikning HK
Morgunblaðið/Kristinn
Einbeittur HK-ingurinn Ragnar Hjaltested hefur brotið sér leið framhjá Gísla Jóni Þórissyni og skorar.
HAUKUM tókst ekki að setja strik í
reikning HK í kapphlaupinu við Val
um Íslandsmeistaratitilinn þrátt fyr-
ir hetjulega baráttu. Eftir að hafa
lent sex mörkum undir að loknum
fyrri hálfleik, 15:9, tókst Haukum að
jafna leikinn upp úr miðjum seinni
hálfleik. Þá þraut þá örendið og HK
sigldi fram úr og vann öruggan sig-
ur, 33:28, og eygir enn möguleika á
sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli.
Haukar eru sloppnir við þar sem
Fylkir tapaði einnig í gær fyrir
Fram, 33:29, og fellur ásamt ÍR.
Eftir Ívar Benediktsson og
Stefán Stefánsson
+
(
,
(
!
"
- # %
& '' %
,
!
"
*
# %
& '' %
" #$
BRYNJAR Björn Gunnarsson þótti einn allra besti leikmaðurinn á
vellinum þegar Reading bar sigurorð af Fulham og tókst þar með
að vinna sinn fyrsta sigur í átta leikjum. Brynjar Björn var til að
mynda valinn maður leiksins hjá Daily Telegraph og fékk 7 í ein-
kunn hjá The Times og Sky Sport og þá þótti Ívar Ingimarsson
einnig standa fyrir sínu en hann er eini leikmaður Reading sem
hefur spilað hverja einustu mínútu fyrir liðið í úrvalsdeildinni.
Brynjar tók stöðu Steve Sidwell á miðjunni og skilaði henni virki-
lega vel. Hann var tvívegis hársbreidd frá því að skora en Antti
Niemi markvörður Fulham sá til þess að svo varð ekki.
Steve Coppell, knattspyrnustjóri Reading, hrósaði Brynjari sér-
staklega í viðtölum eftir leikinn. ,,Brynjar var mjög góður á miðj-
unni gegn sterkum miðjumönnum þeirra. Ef Steve fer frá okkur þá
er ég með mann til að taka við af honum,“ sagði Coppell en Steve
Sidwell sem jafnan hefur leikið þessa stöðu er líklega á förum frá
félaginu í sumar.
Brynjar með stórleik
FELIPE Massa á Ferrari fagnaði sigri í
Formúlu 1 kappakstrinum í Barein í gær.
Hann hafði forystu alla leið í mark – af rás-
pól. Annar varð nýliðinn Lewis Hamilton á
McLaren og er hann með forystu í keppn-
inni um heimsmeistaratitil ökuþóra –
ásamt Finnanum Kimi Räikkönen á Ferr-
ari, sem varð þriðji í dag. Fernando Alonso
á McLaren varð fimmti. Allir hafa þeir 22
stig.
Með sigrinum í dag bætti Massa upp fyrir
slaka frammistöðu í tveimur fyrstu mótum ársins. Honum var
aldrei ógnað svo neinu nam og eftir fyrra þjónustustopp náði
hann um skeið 10 sekúndna forskoti.
Nick Heidfeld á BMW var fjórði og þá kom Robert Kubica á
BMW í sjötta sæti í kappakstrinum í Barein.
Massa fagnaði sigri
Felipe Massa
KIEL varð í gær þýskur bikarmeistari í handbolta fjórða skipt-
ið og í fyrsta skipti í sjö ár þegar liðið bar sigurorð af Kronau/
Östringen, 33:31, í úrslitaleik sem háður var í Hamborg.
Franski landsliðsmarkvörðurinn Thierry Omeyer var hetja
Kiel en hann gerði sér lítið fyrir og varði sex vítaköst í leiknum
og var öðrum fremur maðurinn á bakvið sigur liðsins en Frakk-
inn varði á þriðja tug skota í leikum.
Kronau byrjaði betur og náði mest sex marka forskoti í fyrri
hálfleik og var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 19:15, en í seinni
hálfleik sýndu meistararnir styrk sinn svo um munaði og sigu
fram úr. Í undanúrslitunum á laugardaginn marði Kiel lið
Flensburg, 34:33, og Kronau vann óvæntan sigur á heima-
mönnum í Hamburg, 29:28.
Kiel, sem 13 sinnum hefur orðið þýskur meistari, getur unnið
þrefalt en liðið er í toppsæti úrvalsdeildarinnar og leikur til úr-
slita í Meistaradeildinni gegn Flensburg.
Kiel bikarmeistarar