Morgunblaðið - 16.04.2007, Side 8
8 MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
MARKUS Brier frá Austurríki sigraði á
Volvo-meistaramótinu í golfi í Evrópumóta-
röðinni en leikið var í Kína. Brier lék síðustu
tvo hringina á 67 höggum og endaði hann
fimm höggum á undan næstu keppendum.
Brier lék samtals á 10 höggum undir pari en
þrír kylfingar deildu öðru sætinu á 5 höggum
undir pari vallar. Andrew McLardy (S-Afr-
íku), Greame McDowell (N-Írl.) og Scott
Hend (Ástral.). Brier fékk um 22 millj. kr.
fyrir sigurinn og tveggja ára keppnisrétt í
Evrópumótaröðinni en hann sigraði á einu
móti í fyrra í Evrópumótaröðinni en það mót fór fram í heima-
landi hans. Brier, sem lék fyrst í Evrópumótaröðinni árið 2000,
er eini kylfingurinn frá Austurríki sem hefur sigrað í Evrópu-
mótaröðinni. Birgir Leifur Hafþórsson var ekki á meðal kepp-
enda á þessu móti og hann verður ekki með á næsta móti sem
fer einnig fram í Kína. Hinn 26. apríl hefst mót á Spáni í Evr-
ópumótaröðinni og þar verður Birgir á meðal keppenda.
Markus Brier
var bestur í Kína
Markus
Brier
ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ í kata fór fram á laugardag í
íþróttahúsi Hagaskóla. Ragna Kjartansdóttir úr Þórshamri
kom nokkuð á óvart með því að vinna Íslandsmeistaratitilinn í
kvennaflokki en þetta er í fyrsta sinn sem hún afrekar það.
Ragna var einnig í hópkataliði Þórshamars sem jafnframt varð
Íslandsmeistari en með Rögnu voru í liðinu Hulda Axelsdóttir
og Sólveig Krista Einarsdóttir.
Helgi Jóhannesson, Breiðabliki, varði Íslandsmeistaratitil
sinn og var jafnframt í hópkataliði Breiðabliks sem einnig varði
sinn titil. Með Helga voru í liðinu, Einar Hagen og Magnús Kr.
Eyjólfsson.
Stigakeppnin var hnífjöfn en Þórshamar hafði sigur á Breiða-
bliki með eins stigs mun og eru því Íslandsmeistarar félaga í
kata. Eydís Líndal Finnbogadóttir, Karatefélagi Akraness,
varð önnur í kvennaflokknum. Hulda Axelsdóttir og Hekla
Helgadóttir, báðar úr Þórshamri, deildu þriðja sætinu.
Einar Hagen úr Breiðabliki endaði í öðru sæti í karlaflokki.
Guðbjartur Ísak Ásgeirsson úr Haukum og Tómas Lee Ró-
bertsson úr Þórshamri voru jafnir í þriðja sæti.
Ragna og Helgi
meistarar í kata
HSK fagnaði Íslandsmeistaratitlin-
um í kvennaflokki í sveitakeppninni
í glímu en KR varð meistari í karlaf-
loki. Sveitaglímunni lauk um helgina
þegar þriðja umferð fór fram í
glímuhúsi Ármanns í Reykjavík.
Skjaldarglíman fór einnig fram í
glímuhúsi Ármanns. Alls kepptu sjö
glímumenn í mótinu og voru þeir all-
ir frá glímudeild KR. Pétur Eyþórs-
son sigraði í glímunni um skjöldinn
og var þetta í sjöunda sinn. Aðeins
tveir glímumenn hafa sigrað oftar
en það eru glímukapparnir Ólafur Haukur Ólafsson, KR, og
Ármann J. Lárusson, UMF Reykjavíkur. Helgi Bjarnason
var á meðal keppenda en hann hefur ákveðið að hætta
keppni. Hann hefur keppt um Ármannsskjöldinn alls 20
sinnum. Helgi var skjaldarhafi árið 1982 og hélt því upp á 25
ára meistaraafmæli.
HSK og KR sigruðu
í sveitaglímunni
Pétur
Eyþórsson
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„Ég var aldrei í vafa um að við myndum vinna í
fjórða leiknum. Helena Sverrisdóttir og Ifeoma
Okonkwo áttu báðar stórleik þegar mest á
reyndi og ég held að Ifeoma hafi ekki leikið bet-
ur í vetur. Liðsheildin er samt sem áður okkar
sterkasta vopn og uppskeran í vetur gríðarlega
góð.“ Ágúst telur að í nánustu framtíð verði erf-
itt að endurtaka þetta tímabil en liðið sigraði í
meistarakeppni KKÍ, Lýsingarbikarnum. Powe-
rade-bikarkeppninni, Haukar eru deildarmeist-
arar og fengu síðan „þann stóra“ á laugardag
þegar Íslandsmeistaratitillinn var í höfn. Ágúst
telur miklar líkur á því að hann yfirgefi Hauka-
liðið í sumar en hann hefur hug á því að reyna
fyrir sér hjá erlendu liði. „Ég fer til Litháen í
byrjun maí þar sem ég mun ræða við for-
ráðamenn karlaliðsins Lietuvos Rytas. Ég dvaldi
hjá liðinu í heilt ár þar sem ég fékk gríðarlega
reynslu og þekkingu. Forsvarsmenn liðsins
höfðu samband við mig í ágúst á síðasta ári þar
sem þeir vildu fá mig sem aðstoðarþjálfara en ég
gat ekki yfirgefið Haukaliðið á miðju undirbún-
ingstímabili. Núna er rétti tímapunkturinn að
mínu mati að taka þetta skref og ef allt gengur
upp verð ég hjá Lietuvos Rytas á næsta tíma-
bili,“ sagði Ágúst. Félagið lék til úrslita í ULEB
Evrópukeppninni fyrir skemmstu gegn Real Ma-
drid frá Spáni þar sem að spænska liðið hafði
betur.
Sigurviljinn til staðar
Helena Sverrisdóttir, fyrirliði Hauka, sagði við
Morgunblaðið í gær að betri endi á tímabilinu
hefði ekki verið hægt að hugsa sér. „Ég fann það
strax og ég hitti leikmannahópinn á laugardag-
inn að við myndum vinna. Sigurviljinn var til
staðar og við sýndum hvað við getum,“ sagði
Helena en hún segir að samheldnin í leik-
mannahópnum sé helsti styrkur liðsins. „Við
fengum tækifæri til að leika í Evrópukeppninni í
fyrra og aftur í ár. Sú keppni hefur gefið okkur
gríðarlega mikið. Ferðalög sem þjappa hópnum
saman og mótherjarnir voru mun sterkari en
þau lið sem við mætum hérna á Íslandi. Veturinn
var því fullkomin hjá okkur. Við erum með mjög
ungt lið og kannski gera margir sér ekki grein
fyrir því hve mikil vinna liggur á bak við þessa
titla. Margar okkar eru í íþróttaakademíu Flens-
borgarskóla og þar erum við að mæta á æfingar
kl. 7.30 á morgnana. Síðdegis tóku við æfingar
með Haukum og oft voru séræfingar. Þetta er
mikil vinna en þegar við vinnum allt sem er í
boði þá sér maður ekki eftir einni sekúndu.“ Hel-
ena heldur utan til náms í Bandaríkjunum í sum-
ar þar sem hún mun jafnframt leika með há-
skólaliðinu Texas Christian University. „Þetta er
7.000 manna einkaskóli sem er með kvennalið í
efstu deild. Ég hlakka mikið til að takast á við
þetta verkefni en helsta áhyggjuefnið hjá mér
var að velja mér námsbraut. Viðskiptafræðin
varð fyrir valinu.“
Breiddin meiri en áður
Ágúst segir að Haukar eigi eftir að vera í
fremstu röð á næstu árum þrátt fyrir að Helena
Sverrisdóttir sé á förum. „Breiddin í kvennabolt-
anum er að mínu mati meiri í ár en oft áður. Það
er gleðiefni og vonandi verður enn betri upp-
bygging hjá félagsliðunum á næstu árum. Hauk-
ar verða í fremstu röð enda eru margir ungir
leikmenn í liðinu. Helena er vissulega besti leik-
maður liðsins og að mínu mati besti leikmaður
landsins í kvennakörfunni en ég held að það séu
leikmenn hjá Haukum sem geta tekið við hennar
hlutverki og leyst það með sóma,“ sagði Ágúst
Björgvinsson.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Meistarar Haukar fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í körfuknattleik kvenna í Keflavík en liðið sigraði í öllum keppnum KKÍ á tímabilinu.
„Var aldrei í vafa um
að við myndum vinna“
ÞETTA verður ekki endurtekið í langan tíma og
ég er afar stoltur af liðinu enda hefur gríðarleg
vinna verið lögð að baki á undirbúnings-
tímabilinu og í vetur,“ sagði Ágúst Björgvinsson,
þjálfari kvennaliðs Hauka, í gær en á laugardag
tryggði liðið sér Íslandsmeistaratitilinn með því
að leggja Keflavík á útivelli, 88:77, og var þetta
þriðji sigurleikur Hauka í úrslitunum en Kefla-
vík vann eina viðureign. Haukar sigruðu á öllum
mótum vetrarins á vegum KKÍ.
Sigurður Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„Það sem skiptir mestu máli í
undirbúningnum fyrir fjórða leik-
inn er að halda áfram á sömu
braut. Við megum ekki láta það
trufla okkur að Íslandsbikarnum
verður stillt upp við hliðarlínuna
fyrir leikinn. Það eina sem við
hugsum um er að undirbúa okkur
fyrir leikinn á sama hátt og í
fyrstu þremur leikjunum,“ sagði
Benedikt Guðmundsson þjálfari
KR í gær eftir síðustu æfingu
liðsins fyrir stórleikinn. „Ástand-
ið á leikmannahópnum er gott.
Við segjum það að minnsta kosti
þrátt fyrir að það sé vitað mál að
á þessum tímapunkti keppnis-
tímabilsins eru margir með ýmis
smámeiðsli en það mun ekkert
stoppa þá,“ bætti Benedikt við.
Aðeins sigur
kemur til greina
„Lokakaflinn í síðustu tveimur
leikjum hefur farið úrskeiðis hjá
okkur en við ætlum ekki að ein-
blína of mikið á það sem hefur
gerst. Einu skilaboðin sem strák-
arnir fá frá mér fyrir fjórða leik-
inn er að sigur er það eina sem
kemur til greina. Einfalt mál,“
sagði Einar Árni Jóhannsson
þjálfari Njarðvíkur í gær en þá
var hann nýbúinn að funda með
sínu liði.
„Það kemur í ljós í leiknum á
morgun (í kvöld) úr hverju liðið
er gert. Og ég held að það þurfi
ekkert stórkostlegt að gerast í
okkar leik til þess að við náum að
vinna KR á útivelli. Við höfum
haft frumkvæðið í öllum þremur
leikjunum og ég er handviss um
að svo verður einnig í fjórða
leiknum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Njarðvík er 2:1 undir í úrslitum
Íslandsmótsins. Árið 1991 var
Keflavík 2:1 yfir gegn Njarðvík,
en í fjórða leiknum hafði Njarðvík
betur gegn Keflavík á útivelli og
vann síðan heimaleikinn. Þetta
hefur verið gert áður og við ætl-
um að endurtaka það,“ sagði Ein-
ar Árni.
Nær KR
að landa
titlinum?
KR getur tryggt sér Íslandsmeist-
aratitilinn í körfuknattleik karla í
kvöld á heimavelli sínum þegar
liðið tekur á móti Íslandsmeist-
urum Njarðvíkur í DHL-höllinni.
Frábær endasprettur KR-inga í
þriðja leik liðanna í ljónagryfjunni
í Njarðvík tryggði liðinu 96:92-
sigur. Þetta var annar leikurinn í
röð sem KR vinnur í einvíginu og
er staðan 2:1 fyrir KR. Það lið
sem fyrr vinnur þrjá leiki verður
Íslandsmeistari.