Morgunblaðið - 27.09.2007, Side 1
fimmtudagur 27. 9. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Þjóðverjar unnu Norðmenn og eru komnir í úrslit á HM í Kína >> 4
FENGU DANIR GEFINS GULL?
FRAMKVÆMDASTJÓRI IHF SEGIR AÐ SVINDLAÐ HAFI
VERIÐ Á KVENNALIÐI SUÐUR-KÓREU Á ÓL Í AÞENU >> 2
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„Þetta lið sigraði í ULEB-Evrópu-
keppninni árið 2005 og lék til úrslita
gegn Real Madrid frá Spáni í þessari
keppni sl. vor. Við hér á Íslandi ger-
um okkur kannski ekki nógu vel
grein fyrir því hve stór íþrótt körfu-
bolti er í Litháen. Þeir sem þekkja
vel til þar segja að körfuboltinn sé
íþrótt nr. 1-7 og ég held að það sé al-
veg rétt. Litháen er í fremstu röð í
heiminum í körfubolta og gríðarlega
margir góðir leikmenn hafa komið
frá þessu „litla“ landi. Þeir eru að ég
held með mjög líkan hugsunarhátt og
við Íslendingar. Þeir leggja sig fram
og berjast.“
Benedikt segir að grunnhugmynd-
in gangi út á það að KR geti fengið
leikmenn að láni frá Rytas og einnig
að þjálfarar félagsins geti sótt félagið
heim og náð sér í dýrmæta reynslu
og þekkingu. „Í raun er þetta allt
Ágústi Björgvinssyni að þakka.
Hann var hjá þessu félagi í eitt ár og
hefur heimsótt það reglulega síðan.
Ágúst hefur ýtt þessu úr vör en við
þurfum að bíða aðeins þar til þetta
verður komið í höfn.“
Rytas er í eigu aðila sem stýra
einnig útgáfu á einu af stærstu dag-
blöðum landsins og segir Benedikt að
eigandi liðsins hafi mikinn áhuga á
Íslandi. „Við getum sagt að Jón Bald-
vin Hannibalsson, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra, og Ágúst eigi jafnmik-
ið í þessu samstarfi. Eigandi liðsins
er enn hæstánægður með að Ísland
var fyrsta ríkið sem viðurkenndi
sjálfstæði Litháens. Þeir vilja því allt
fyrir okkur gera. Ef allt gengur upp
mun liðið koma næsta haust og leika
æfingaleiki hér á landi.“
Í gær kom til KR tvítugur bak-
vörður frá Rytas en hann mun æfa
með KR næstu dagana. „Hann heitir
Ernestas Ezerskis og hann tók létta
æfingu með okkur í gær. Eins og
staðan er hjá okkur núna eru ekki
miklar líkur á því að hann verði með
KR í vetur. Við erum með fullmannað
lið en það er aldrei að vita hvað ger-
ist. Það er mikil samkeppni um stöð-
ur og menn verða að vera á tánum í
þessum bransa,“ sagði Benedikt.
Þrír erlendir leikmenn eru í herbúð-
um KR nú þegar, Joshua Helm frá
Bandaríkjunum, Jovan Zdravevski
frá Makedóníu, en hann hefur leikið
með Skallagrími undanfarin ár, og
Samir Shaptahovic frá fyrrverandi
Júgóslavíu.
KR í samstarf
við Rytas?
ÍSLANDSMEISTARALIÐ KR í
körfuknattleik karla er með það í
deiglunni að gera venslasamning
við eitt sterkasta körfuknattleikslið
Evrópu, Lietuvos Rytas, frá Lithá-
en en framkvæmdastjóri félagsins
kom til landsins í gærkvöldi og mun
hann funda með forsvarsmönnum
KR í dag. Benedikt Guðmundsson,
þjálfari KR, sagði í gær að ekki
væri búið að ganga frá einu né
neinu en vissulega væri þetta mjög
spennandi dæmi.
Íslandsmeistaralið KR vill koma á
samstarfi við eitt sterkasta lið Evrópu
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
DANSKA handknattleiksliðið GOG, sem
landsliðsmennirnir Snorri Steinn Guðjónsson
og Ásgeir Örn Hallgrímsson leika með, náði
frábærum úrslitum í fyrsta leik sínum í riðla-
keppni Meistaradeildarinnar í gær. GOG sótti
hið geysisterka lið Portland San Antonio heim
til Spánar og skildu liðin jöfn, 28:28.
Lasse Svan Hansen tryggði GOG jafntefli
með marki úr vítakasti á lokasekúndum leiks-
ins en danska liðið sýndi mikla baráttu og tókst
að jafna metin með því að skora fjögur síðustu
mörk leiksins. Ásgeir Örn
skoraði 5 af mörkum GOG
og Snorri Steinn 1 en Snorri
á erfitt með að skjóta á
markið vegna meiðsla í öxl.
Hin tvö liðin í riðlinum eru
Tatran Presov frá Slóvakíu
og austurríska liðið Bre-
genz, fyrrum lærisveinar
Dags Sigurðssonar.
Sigfús Sigurðsson var
ekki á markalistanum hjá
Ademar sem sigraði og króatíska liðið Croatia
Zagreb, 29:25.
Ásgeir með fimm fyrir
GOG gegn Portland
Ásgeir Örn
Hallgrímsson
VEIGAR Páll Gunnarsson og
félagar hans í norska knatt-
spyrnuliðinu Stabæk fá ekki
tækifæri til þess að leika til
úrslita í bikarkeppninni. Sta-
bæk tapaði í gær, 2:0, á úti-
velli gegn Lilleström. Viktor
Bjarki Arnarsson var í leik-
mannahópi Lilleström en
hann kom ekki við sögu í
leiknum. Terje Hauge, dóm-
ari leiksins, er ekki efstur á
jólakortalista stuðnings-
manna Stabæk eftir leikinn í
gær. Leikmenn og þjálfari
Stabæk héldu því fram að
Arild Sundgot hefði lagt bolt-
ann fyrir sig með hendinni áð-
ur en hann skoraði annað
mark Lilleström á 40. mínútu.
Og höfðu þeir nokkuð til síns
máls.
Lilleström mætir fyrstu-
deildarliðinu Haugesund í úr-
slitaleiknum á Ullevål í Osló.
Veigar fékk gult spjald um
miðjan síðari hálfleik og hefði
hann þar með misst af úrslita-
leiknum vegna leikbanns.
Hann fékk fínt færi á 35. mín-
útu en skot hans fór beint á
markvörð Lilleström.
Það er ólíklegt að Viktor
Bjarki fái tækifæri í bikarúr-
slitaleiknum gegn Hauge-
sund. Tom Nordlie, þjálfari
liðsins, hefur ekki gefið Vikt-
ori tækifæri í einum leik það
sem af er keppnistímabilinu.
Viktor lék með Víkingum í
fyrra og var valinn leikmaður
ársins í Landsbankadeildinni.
Bikardraumi Veigars
Páls lauk í Lilleström
Reuters
Í baráttinni Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson sækir að Raffaele Palladino í leik Juventus og Reggina á Delle
Alpi-leikvanginum í Torínó í gær þar sem heimamenn í Juventus fögnuðu sigri. » 3