Morgunblaðið - 27.09.2007, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Bandaríski kylfingurinn TigerWoods var í fyrrakvöld valinn
kylfingur ársins á PGA-mótaröðinni
bandarísku. Þetta er í 9. sinn á 11
árum sem Woods verður fyrir val-
inu. Hann er nú 31 árs og hefur sigr-
að á 61 móti sem atvinnukylfingur
og 13 sinnum hefur hann hrósað
sigri á stórmótunum fjórum. Hann
var fyrst valinn kylfingur ársins
1997 og þeir einu sem hafa komist
að síðan þá eru Mark O’Meara árið
1998 og Vijay Singh árið 2004.
Sigmundur Einar Másson, kylf-ingur úr GKG, varð í öðru sæti
á háskólamóti með skóla sínum,
McNeese State University, í fyrra-
dag. Hann var tveimur höggum á
eftir Scotty Campbell frá Central
Arkansas, og lauk hringjunum
þremur á tíu höggum undir pari, en
sigurvegarinn lék á 12 undir pari. Sá
sem kom næstur var á þremur
höggum yfir pari þannig að þeir
tveir voru í nokkrum sérflokki.
Eskfirðingurinn Eggert Gunn-þór Jónsson lék allar 120 mín-
úturnar með Hearts í fyrrakvöld
þegar lið hans vann Dunfermline,
4:1, í framlengdum leik í 16 liða úr-
slitum skoska deildabikarsins í
knattspyrnu. Eggert, sem lék á
miðjunni, var óheppinn að skora
ekki mark í framlengingunni.
Björn Kristinn Björnsson hefurverið endurráðinn þjálfari
kvennaliðs Fylkis í knattspyrnu.
Undir hans stjórn hafnaði Árbæj-
arliðið í sjötta sæti úrvalsdeild-
arinnar, sama sæti og 2006, en þetta
eru fyrstu tvö ár félagsins í efstu
deild.
HallgrímurJónasson,
húsvíski knatt-
spyrnumaðurinn
sem leikur með
Keflavík, fer til
reynslu til Loke-
ren í Belgíu að
Íslandsmótinu
loknu. Á vef Kefl-
víkinga í gær kom fram að hann færi
utan um næstu helgi og yrði hjá
belgíska félaginu í tvær vikur. Hall-
grímur er 21 árs og hefur ýmist leik-
ið í vörn eða á miðju en hann hefur
spilað með 21 árs landsliði Íslands í
haust.
Guðmundur Steinarsson, fram-herji Keflvíkinga, missir af
lokaleiknum gegn Skagamönnum í
Landsbankadeildinni á laugardag
vegna meiðsla sem hann hlaut í
leiknum við Fylki um síðustu helgi.
Guðmundur fer í myndatöku í dag
og þá kemur í ljós hvort um fótbrot
er að ræða eða hvort liðbönd í ökkl-
anum hafa gefið sig.
Tiger Woods og Charles HowellIII verða saman í liði í fyrstu
umferð Forsetabikarsins í golfi.
Jack Nicklaus fyrirliði bandaríska
úrvalsliðsins lét það í hendurnar á
Woods að velja samherja í fyrsta
leikinn en Woods hefur gengið illa
að ná góðum árangri í liðakeppni á
undanförnum árum. Nicklaus vildi
því lítið skipta sér að því með hvað
félaga Woods myndi leika í Mont-
real. Liðin í fjórmenningum í dag
eru þannig skipuð, bandaríska liðið
á undan: Hunter Mahan/Steve
Stricker gegn Adam Scott/Geoff
Ogilvy.
Phil Mickelson/Woody Austin
gegn Vijay Singh/Mike Weir.
Stewart Cink/Zach Johnson gegn
Rory Sabbatini/Trevor Immelman.
David Toms/Jim Furyk gegn Er-
nie Els/Angel Cabrera.
Lucas Glover/Scott Verplank
gegn Stuart Appleby/Retief Goo-
sen.
Tiger Woods/Charles Howell III
gegn K.J. Choi/Nick O’Hern.
Fólk sport@mbl.is
ÞETTA er í fimmta sinn sem keppn-
in er haldin og hefur Ballesteros,
sem var upphafsmaður keppninnar,
verið fyrirliði meginlandsins en Col-
in Montgomery farið fyrir breska
liðinu. Núna spilar hann hins vegar
og Faldo verður fyrirliði í fyrsta
sinn. Leikinn verður fjórleikur, tveir
saman og leika betri bolta sínum;
fjórmenningur, tveir saman með
einn bolta; tvímenningar og einnig
„greensome“ þar sem allir slá upp-
hafshögg og velja síðan betri bolt-
ann, svipað og fjórmenningur nema
leikin er holukeppni. Lið Bretlands
er þannig skipað: Colin Montgomeri,
Skotlandi, Justin Rose, Englandi,
Paul Casey, Englandi, Bradley
Dredge, Wales, Graeme Storm,
Englandi, Oliver Wilson, Englandi,
Nick Dougherty, Englandi, Phillip
Archer, Englandi og þeir Simon Dy-
son, Englandi og Marc Warren,
Skotlandi, sem Faldo valdi.
Ballesteros valdi þá Thomas
Björn frá Danmörku og landa sinn
Gonzalo Fernandez-Castano en aðr-
ir í liðinu eru Robert Karlsson, Sví-
þjóð, Miguel Angel Jiménez, Spáni,
Raphaël Jacquelin, Frakklandi,
Mikko Ilonen, Finnlandi, Sören
Hansen, Danmörku, Grégory Havr-
et, Frakklandi, Markus Brier, Aust-
urríki og Peter Hanson, Svíþjóð.
Fyrst þegar keppnin var haldin, árið
2000, vann sveit Ballesteros en
Montgomery hefur leitt sína sveit til
sigurs síðan; 2002, 2003 og 2005.
Ballesteros
og Faldo
mætast
Severino
Ballesteros
Nick
Faldo
BESTU kylfingar Evrópu mætast í
liðakeppni, Seve-bikarnum, á Her-
itage-golfvellinum í Killenard á Ír-
landi um helgina og hefst keppni
þar í dag. Þar munu Severino Bal-
lesteros og Nick Faldo mæta með
lið sín frá meginlandi Evrópu ann-
ars vegar og hins vegar lið frá
Stóra-Bretlandi og Írlandi. Kylfing-
arnir unnu sér rétt til að vera í lið-
inu, fjórir efstu á heimslistanum og
eins á evrópsku mótaröðinni fá sæti
í liðinu og fyrirliðarnir velja síðan
tvo til viðbótar þannig að úr verður
tíu manna lið.
Keppnisfyrirkomulagið er þannig
að í dag er leikinn fjórmenningur
þar sem tveir kylfingar eru saman
í liði og leika einum bolta, skiptast
á um upphafshöggin en slá síðan
annað hvert högg. Á föstudaginn
er fjórleikur þar sem tveir eru
saman í liði og leikur hvor sínum
boltanum og betra skor á hverri
holu gildir. Tvöföld umferð er á
laugardaginn, fjórmenningur fyrir
hádegi og fjórlekur eftir hádegi en
á sunnudaginn eru tólf tvímenn-
ingar þar sem tveir kylfingar eig-
ast við í holukeppni.
Bandaríska sveitin er ekki
árennileg því fjórir efstu menn á
heimslistanum er þar fremstir í
flokki. Liðið er þannig skipað
(staða á heimslista í sviga): Tiger
Woods (1), Phil Mickelson (2), Jim
Furyk (3), Steve Stricker (4), Zach
Hohnson (14), Stewart Cink (23),
Scott Verplank (24), David Toms
(26), Woody Austin (31), Charles
Howell III (33), Hunter Mahan
(41), Lucas Flover (61). Fyrirliði
er Jack Nicklaus og Jeff Sluman
er honum til aðstoðar.
Evrópska liði er þannig skipað:
Ernie Els, Suður-Afríku (5), Adam
Scott, Ástralíu (6), Rory Sabbatini,
Suður-Afríku (8), K.J. Choi, Suð-
ur-Kóreu (10), Geoff Ogilvy, Ástr-
alíu (11), Vijay Singh, Fijí (12),
Retief Goosen, Suður-Afríku (17),
Trevor Immelman, Suður-Afríku
(18), Angel Cabrera, Argentínu
(19), Stuart Appleby, Ástralíu (34),
Nick O’Hern, Ástralíu (36), Mike
Weir, Kanada (46). Gary Player er
fyrirliði og Ian Baker-Finch hon-
um til aðstoðar.
Reuters
Vinsæll Tiger Woods hafði í nógu að snúast eftir æfingahringinn í gær, allir vildu fá eiginhandaráritun.
Barist um forseta-
bikarinn í Kanada
KEPPNI í forsetabikarnum svo-
nefnda hefst í dag á Royal Mont-
real-vellinum í Kanada. Þar leiða
saman hesta sína sveit Bandaríkj-
anna og alþjóðleg sveit kylfinga frá
þeim löndum sem ekki eru með í
Ryder-keppninni. Tólf kylfingar
eru í hvorri sveit og hafa Banda-
ríkjamenn sigrað fjórum sinnum en
alþjóðaliðið einu sinni. Bandaríkin
unnu 1994, 1996, 2000 og 2005 en
alþjóðaliðið 1998. Þegar mótið var
haldið í Suður-Afríku árið 2003
varð jafntefli og urðu þeir Ernie
Els og Tiger Woods að hætta leik
vegna mykurs.
SKVASSMENN hér á landi standa í stór-
ræðum þessa dagana. Í dag hefst í Vegg-
sporti alþjóðlegt kvennamót sem er liður
í WISPA-heimsmótaröðinni. Á þriðju-
daginn hefjast síðan hér á landi Smá-
þjóðaleikarnir í skvassi þar sem mæta til
leiks bæði karla- og kvennalið frá Kýp-
ur, Liechtenstein, Lúxemborg og Móna-
kó auk Íslands. Það mót stendur fram á
laugardag líkt og kvennamótið sem
hefst í dag, því lýkur með úrslitaleikjum
á laugardaginn klukkan 16.
Fimmtán erlendar stúlkur eru mættar
til leiks auk þess sem Rósa Jónsdóttir
fær tækifæri til að reyna sig við þær
bestu. Mótherji hennar í dag er Sarah
Kippax frá Englandi en hún er fjórði
besti keppandinn í mótinu. Sú sem er
best er Jacklyn Hawkez frá Nýja-
Sjálandi en hún er í 19. sæti á heimslist-
anum.
Þetta er í fyrsta sinn sem WISPA-mót
er haldið hér á landi en mót í þeirri
mótaröð eru leikin út um allan heim.
Mótið er með útsláttarfyrirkomulagi og
var keppendum skipt í tvo styrk-
leikaflokka og dregið þannig í fyrstu
umferðina.
Leikið verður á fjórum völlum og hefj-
ast fyrstu leikir í dag klukkan 11 árdegis
og þar leika Jacklyn Hawkes frá Nýja-
Sjálandi og Soraya Renai frá Frakk-
landi, Orla Noom frá Hollandi og Celia
Allamargot frá Frakklandi, Dominique
Lloyd-Walter frá Englandi og Kerry
Shields frá Írlandi og Kirsty McPhee frá
Englandi mætir Milou van der Heijden
frá Hollandi.
Seinni hluti fyrstu umferðar verður
klukkan 11.45 og þá mætast Georgina
Stoker frá Englandi og Camille Serme
frá Frakklandi, Sarah Kippax frá Eng-
landi og Rósa Jónsdóttir, Tenille Swartz
frá Nýja-Sjálandi og Victoria Lust frá
Englandi og Isabelle Stoehr frá Frakk-
landi mætir Deon Saffery frá Englandi.
Stúlkurnar sem komnar eru hingað
eru allar atvinnumenn í íþróttinni og
hafa ferðast mikið um heiminn til að
taka þátt í mótum. Verðlaunafé í mótinu
eru um 620 þúsund krónur sem er ekki
nóg til að laða þær allra bestu í heim-
inum að, en „þetta kemur okkur á kortið
og við erum mjög þakklát fyrir að fá
tækifæri til að halda mótið hér á landi,“
sagði Hilmar Gunnarsson, annar eigandi
Veggsports og aðalskipuleggjandi móts-
ins.
Fyrsta WISPA-mótið í
skvassi hér á landi
ÞÝSKALAND leikur til úrslita um
heimsmeistaratitil kvenna í knattspyrnu
í annað skiptið í röð næsta sunnudag.
Þýsku konurnar héldu áfram sig-
urgöngu sinni á HM í Kína í gær þegar
þær sigruðu Noreg, 3:0, í fyrri undan-
úrslitaleik keppninnar, í Tianjin, og
mæta annaðhvort Bandaríkjunum eða
Brasilíu í úrslitaleiknum í Sjanghæ. Nor-
egur leikur sama dag um bronsið við lið-
ið sem bíður lægri hlut í dag.
Þýskaland er núverandi heimsmeist-
ari eftir að hafa sigrað Svíþjóð í úrslita-
leik keppninnar árið 2003, og leikur nú
til úrslita í þriðja skiptið á þeim fimm heimsmeistaramótum sem
haldin hafa verið. Þýska liðið tapaði fyrir Noregi í úrslitaleiknum
árið 1995.
Lið Þýskalands hefur enn ekki fengið á sig mark í fimm leikj-
um í úrslitakeppninni í Kína, en hefur skorað nítján. Liðið setti
met í gær, hefur nú leikið í 529 mínútur án þess að fá á sig mark
á HM. Kína átti fyrra metið, frá mótinu 1999 yfir á 2003, og lék
þá í 443 mínútur án þess að fá á sig mark.
Leikurinn í gær var jafnari en tölurnar gefa til kynna. Þýsku
konurnar þurftu hjálp til að komast á bragðið því Trine Rönning
sendi boltann í eigið mark á 42. mínútu. Úrslitin réðust svo á
þremur mínútum í síðari hálfleik því á 72. mínútu skoraði Kerst-
in Stegemann, 2:0, og á 75. mínútu bætti Martina Müller við
marki, 3:0.
Þýskaland sló metið og
leikur til úrslita á HM
Fögnuður Þýsku stúlk-
urnar eru komnar í úrslit.