Morgunblaðið - 12.10.2007, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
SÆNSKA knattspyrnuliðið Norr-
köping vill fá FH-inginn Davíð Þór
Viðarsson til liðs við sig fyrir næstu
leiktíð. Davíð hefur verið hjá Norr-
köping síðan á þriðjudag og kemur
heim á morgun en forráðamenn fé-
lagsins buðu honum út til að skoða
aðstæður og ræða við hann um
samning eftir að fylgst með honum
í leikjum FH-inga í sumar.
,,Þjálfarinn sagði mér að liðið
vildi fá mig og ef um semst hjá mér
gagnvart Norrköping og að liðið
nái samningi við
FH um kaupin þá
er ég tilbúinn að
ganga til liðs við
Norrköping. Það
sem ég hef séð
hjá Norrköping
líst mér vel á.
Það er mikill fót-
boltaáhugi í bæn-
um og menn
reikna með að
meðaltal áhorfenda á heimaleikjum
liðsins verði í kringum 12-13.000
manns,“ sagði Davíð Þór við Morg-
unblaðið í gær.
Norrköping hefur þegar tryggt
sér sigur í sænsku 1. deildinni og
leikur í úrvalsdeildinni á næstu
leiktíð, í fyrsta sinn í fimm ár, en
með liðinu leika Garðar B. Gunn-
laugsson og Stefán Þór Þórðarson,
sem hættir hjá félaginu í lok leik-
tíðar og snýr aftur í sitt gamla fé-
lag, ÍA.
Davíð Þór segir að Norrköping
ætli að styrkja lið sitt með 4-5 nýj-
um leikmönnum. Norrköping þarf
að ná samningi við FH um kaup á
Davíð þar sem hann er samnings-
bundinn Hafnarfjarðarliðinu út ár-
ið 2009.
Norrköping vill semja við Davíð Þór
Davíð Þór
Viðarsson
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
BJÖRGVIN Páll Gústavsson, mark-
vörður Fram, hefur vakið athygli er-
lendra handknattleiksliða með góðri
frammistöðu sinni í upphafsleikjum
Íslandsmótsins. Björgvin Páll dvaldi
hjá þýska 1. deildarliðinu Grosswall-
stadt í byrjun þessarar viku með sér-
stöku leyfi forráðamanna Fram sem
hann er samningsbundinn til vors.
„Ég fór og skoðaði aðstæður hjá
Grosswallstadt og ræddi við þjálfara
liðsins. Um framhaldið veit ég ekki á
þessari stund og er ekkert að velta
mér mikið upp því. Ef eitthvað gerist
í þeim efnum þá væri það skemmti-
legt en eins og sakir standa þá ein-
beiti ég mér að því að leika eins vel
með Fram og ég get. Ég er staðráð-
inn í ljúka keppnistímabilinu hjá
Fram og halda „standard,“ segir
Björgvin. Frumkvæðið að heimsókn
hans til Þýskalands kom frá Gross-
wallstadt. „Takmark mitt hefur allt-
af verið að komast í atvinnumennsku
í handknattleik og vonandi næ ég því
einn góðan veðurdag. Um þessar
mundir er ég góðu formi, mun betri
en á sama tíma og í fyrra. Þá er
sjálfstraustið einnig betra.“
Var hjá Grosswallstatd
Suður-kóreskihandknatt-
leiksmaðurinn
Kyung-Shin Yoon
hefur ákveðið að
yfirgefa þýska
handknattleikinn
næsta vor og
halda heim á leið.
Yoon, sem er 34
ára gamall, hefur leikið í Þýskalandi
í 12 ár, lengst af með Gummersbach
en síðustu tvö leiktímabil með HSV
Hamburg. Hann er langmarkahæsti
leikmaður þýsku 1. deildarinnar frá
upphafi, hefur skorað rúmlega 2.800
mörk og verið sjö sinnum marka-
kóngur. Yoon ætlar að leika hand-
knattleik í heimalandi sínu en jafn-
framt vinna að útbreiðslumálum
fyrir handknattleikssamband Suð-
ur-Kóreu.
Heiðmar Felixson skoraði sexmörk og var markahæstur hjá
Hannover-Burgdorf þegar liðið
vann OHV Aurich, 24:19, á heima-
velli í norðurhluta þýsku 2. deild-
arinnar í handknattleik í fyrrakvöld.
Burgdorf er í 6. sæti deildarinnar
með sex stig að loknum sex leikjum.
Frederikshavn FOX, liðið semGuðbjörg Guðmannsdóttir
leikur með í dönsku úrvalsdeildinni í
handknattleik, tapaði í fyrrakvöld
fyrir Randers, 33:27, á útivelli. Guð-
björg var ekki á meðal markaskor-
ara Frederikshavn FOX að þessu
sinni. Liðið er í 10. sæti af 12 liðum
deildarinnar með fjögur stig eftir sjö
leiki.
UmboðsmaðurDidiers
Drogba, fram-
herja Chelsea,
segir að mörg lið
hafi haft sam-
band við sig með
það fyrir augum
að fá Drogba í
sínar raðir.
Drogba gaf það til kynna þegar
knattspyrnustjórinn Jose Mourinho
yfirgaf Lundúnaliðið á dögunum að
hann gæti vel hugsað sér að fara frá
liðinu enda féll honum það ekki í geð
hvernig var staðið að brottför Mour-
inhos frá félaginu.
Real Madrid, Bayern Münchenog Evrópumeistararar AC Mil-
an eru meðal þeirra liða sem hafa
mikinn áhuga á að fá Fílabeins-
strandarmanninn sem varð marka-
kónugur ensku úrvalsdeildarinnar á
síðustu leiktíð.
Roland Nilsson, þjálfari sænskaúrvalsdeildarliðsins GAIS í
Gautaborg, sem þeir Eyjólfur Héð-
insson og Jóhann B. Guðmundsson
leika með, tekur við þjálfun hjá
Malmö fyrir næstu leiktíð að því er
sænskir fjölmiðlar greindu frá í gær.
Nilsson, sem hefur stýrt liði GAIS í
fjögur ár, tekur við Malmö-liðinu af
Sören Åkeby.
Fólk sport@mbl.is
Leikurinn var mjög hraður í fyrri
hálfleik og réðu leikmenn beggja lítt
við hann lengst og því voru gerð
ógrynni mistaka á báða bóga. Vörn
Fram var sterk og komust leikmenn
Aftureldingar lítt áleiðis og þá sjald-
an þeim tókst að brjóta hana á bak
aftur þá var Björgvin Páll Gústavs-
son vel með á nótunum í marki
Fram. Afturelding skoraði aðeins
fimm mörk á fyrstu 20 mínútum
leiksins. Hins vegar ber að hrósa
leikmönnum Aftureldingar fyrir það
að gefast aldrei upp þótt verulega
blési á móti. Davíð Svansson var frá-
bær í markinu og í raun synd að
hans stóra framlag til leiks Aftureld-
ingar skilaði ekki meiri árangri en
raun varð á. Hann varði 12 skot í
fyrri hálfleik og hélt Aftureldingar-
liðinu á floti. Í síðari hálfleik átti
þessi stórefnilegi markvörður ekki
síðri leik og var langbesti leikmaður
síns liðs.
Fram náði mest fimm marka for-
skoti í fyrri hálfleik en tókst illa að
hrista Mosfellinga af sér sem lán-
aðist alltaf að minnka muninn niður í
tvö mörk hvað eftir annað.
Aftureldingu tókst aðeins að
skora eitt mark á fyrstu tíu mínútum
síðari hálfleiks og Framarar voru
klaufar á sama tíma að ná ekki meira
en sex marka forskoti. Varnarleikur
þeirra gekk frábærlega með Jón
Þorbjörn Jóhannsson sem kjölfestu
og tókst sem fyrr að halda hægri
„vængnum“ á sókn Aftureldingar í
heljargreipum svo að hann komst
ekkert áleiðis. Undir lokin reyndu
Mosfellingar að breyta um varnar-
leik og hraða sóknarleik sínum með
það fyrir augum að minnka muninn.
Það tókst ekki og Framliðið náði
átta marka forskoti sem reyndar
minnkaði niður í sjö mörk áður en
yfir lauk.
Leiki Framliðið áfram svo góða
vörn sem því tókst að þessu sinni er
ljóst að það verður erfitt við að eiga,
ekki síst ef Björgvin Páll heldur sínu
striki í markinu. Jón Þorbjörn er
gríðarlegur liðsstyrkur fyrir Fram-
liðið og ásamt Einari Inga Hrafns-
syni og Andra Berg Haraldssyni
mynda þeir mjög sterkt varnar-
þríeyki. Meiri yfirvegunar er hins
vegar þörf á tíðum í sóknarleiknum.
Akkillesarhæll Mosfellinga í þess-
um leik var sóknarleikurinn þar sem
Einar Örn Guðmundsson var í raun
eini leikmaðurinn sem hafði eitthvað
í vörn Fram að gera. Aðrir réðu lítt
við hlutverk sitt. Varnarleikur Aft-
ureldingar var hins vegar lengst af
góður ásamt markvörslunni en áður
er getið um stórleik Davíð sem
stefnir hraðbyri að því að verða einn
besti markvörður deildarinnar.
Undirritaður sagði við upphaf
leiktíðar að framundan væri langur
og erfiður vetur hjá Aftureldingu.
Vera kann að höfundur þeirrar full-
yrðingar verði að draga orð sín til
baka áður en svo langt um líður.
Vorum lengi í gang
„Seinni hálfleikurinn var fínn af
okkar hálfu eftir að við áttum í meira
strögli í fyrri hálfleik,“ sagði Björg-
vin Páll, markvörður Fram í leikslok
og var að vonum ánægður með sig-
urinn. „Við vorum alltof lengi í gang
en í síðari hálfleik small vörnin sam-
an. Þá þurfti ég ekki einu sinni að
hafa fyrir því að verja skot frá Aftur-
eldingu því vörnin sá um það fyrir
mig. Í síðari hálfleik kom getumun-
urinn á liðunum í ljós. Við ætlum að
halda okkur í efri hlutanum í deild-
inni og til þess verðum við að leika
eins og við gerðum í síðari hálfleik,
það er alveg ljóst,“ sagði Björgvin
Páll Gústavsson, markvörður Fram.
Sóknarleikurinn fór með okkur
„Sóknarleikurinn fór gjörsamlega
með þetta hjá okkur. Í honum lá
munurinn á liðunum,“ sagði Bjarki
Sigurðsson, þjálfari Aftureldingar,
sem lét sér nægja að stýra liðinu frá
hliðarlínunni, kom ekkert inn á völl-
inn sem leikmaður. „Nýting okkar á
dauðafærum var alveg skelfilega lé-
leg og við skutum Björgvini örugg-
lega inn í landsliðið.
Varnarleikurinn var hins vegar
fínn hjá okkur en því miður þá gerð-
um við alltof mikið af tæknilegum
mistökum í leiknum.
Við sýndum það og sönnuðum að
þessu sinni að þrátt fyrir tapið þá
eigum við fullt erindi í þessa deild og
ég tel að þegar okkur tekst að bæta
sóknarleikinn þá verðum við illvið-
ráðanlegir,“ sagði Bjarki ennfremur.
Morgunblaðið/Golli
Markahæstur Jóhann Gunnar Einarsson sækir að marki Aftureldingar og fær óblíðar viðtökur. Jóhann Gunnar átti erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik en
sótti sig mjög í þeim síðari og skoraði þá sjö af tíu mörkum sínum. Með sigrinum á Aftureldingu skaust Framliðið í efsta sæti deildarinnar.
Sterk vörn Fram braut
Aftureldingu á bak aftur
FRAM komst í efsta sæti úrvals-
deildar karla í handknattleik, N1-
deildarinnar með öruggum sigri á
Aftureldingu í upphafsleik 5. um-
ferðar á heimavelli í gærkvöldi,
28:21. Sterkur varnarleikur lagði
grunninn að öruggum sigri Fram
sem var e.t.v. of stór miðað við þró-
un leiksins en á endasprettinum
tóku leikmenn Aftureldingar áhættu
til þess að minnka muninn. Hún
gekk ekki upp og þess í stað juku
leikmenn Fram muninn og voru loks
sjö mörkum yfir þegar flautað var til
leiksloka. Fram var þremur mörk-
um yfir í hálfleik, 15:12.
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is