Morgunblaðið - 07.11.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 304. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
VISTVÆN FÖT
„ÚTI Á LANDI“-PAKK OPNAR BÚÐINA
BORGARPAKK Á FRAKKASTÍG >> 18
FRÉTTASKÝRING
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
FYRSTA aflvél Kárahnjúkavirkjunar af
sex var gangsett með vatni úr Hálslóni á
mánudag. Landsvirkjun gerði í upphafi ráð
fyrir að álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði
fengi rafmagn af fyrstu vél 1. apríl sl.,
næsta vél yrði gangsett 1. júní og svo koll af
kolli og skeikar því upphaf raforkufram-
leiðslu virkjunarinnar sjö mánuðum. Álver-
ið hefur fengið 100MW af landsnetinu frá
því í apríl. Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins var í samningum Landsvirkj-
unar og Alcoa Fjarðaáls gert ráð fyrir að
full raforkuafhending af fimm vélum næðist
1. október en það tekst í lok þessa mánaðar
ef að líkum lætur, tveimur mánuðum síðar
en ætlað var. Sjötta vél virkjunarinnar
verður varaaflsvél og keyrð með vatni í jan-
úar á næsta ári.
Rúmlega fimm ár eru síðan undirbún-
ingur að Kárahnjúkavirkjun hófst og fram-
kvæmdir hafa nú staðið í fjögur og hálft ár.
Forsvarsmenn Landsvirkjunar hafa við-
urkennt að sá tími sem gefinn var til fram-
kvæmdarinnar hafi verið of knappur. Guð-
mundur Pétursson, yfirverkefnisstjóri
Landsvirkjunar með Kárahnjúkavirkjun,
sagði á mánudag að framkvæmdum hefði
seinkað um 6-7 mánuði í jarðgangagerð og
tekist hefði að vinna þá töf upp að talsverðu
leyti með breytingu á verkþáttum. Þá hefðu
viðbótartafir orðið í frágangi á aðrennsl-
isgöngunum vegna feikilegs vatnsflaums.
„Við höfum gert allt sem í okkar valdi
stendur, verklega og fjárhagslega, til að
halda áætlun og það hefur nánast tekist.
Við vitum þó núna að of stuttur tími var
áætlaður í þetta stóra verk, með þessari
miklu óvissu í jarðgangagerðinni,“ sagði
Guðmundur.
Ljóst er að tímaramminn helgaðist af
áætlunum Alcoa um byggingu álversins og
að Landsvirkjun og hönnuðir töldu að tak-
ast myndi að byggja virkjunina á fjórum ár-
um. Þar vegur ekki síst þungt að fram-
kvæma átti eins og kostur væri yfir
vetrartímann, sem er heldur óvenjulegt, og
áætlað að hægt yrði að gangsetja bæði
virkjunina og álverið í full afköst á lengri
tíma en nú er ráðgert. Tímarammi fram-
kvæmda af þessu tagi erlendis hefur auk
þess þrengst til muna síðari ár, m.a. vegna
fjármögnunarkostnaðar.
Þarfir Al-
coa réðu
verktíma
Framkvæmdatíminn
áætlaður of knappt
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Knappt Bygging Kárahnjúkavirkjunar
hefur verið kapphlaup við tímann.
„AUÐVITAÐ urðum við hrædd
en allir voru þó stilltir um borð,“
segir Jóna Kristín Sigurðar-
dóttir, farþegi í Fokker-flugvél
Flugfélags Íslands, sem nauð-
lenti vegna hreyfilbilunar á Eg-
ilsstaðaflugvelli í gærkvöld eftir
rúman hálftíma á lofti. „Flug-
stjórinn sagði að olíuþrýsting-
urinn hefði fallið, búið væri að
drepa á öðrum hreyflinum og
skoða ætti hvort snúið yrði við.
Við vorum beðin um að búa okk-
ur undir nauðlendingu á landi.
Þetta hljómaði eins og við vær-
um að fara að nauðlenda uppi á
öræfum.“ Skömmu síðar var þó
tilkynnt að vélinni yrði snúið aft-
ur til Egils-
staða og lent
þar. „Okkur
brá öllum
mikið. Maður
veit að Fokk-
er flýgur á
einum hreyfli
en spurningin
var hvort eitt-
hvað myndi
koma fyrir
hinn hreyfilinn. Flugstjórinn út-
skýrði fyrir okkur eftir lendingu,
sem var mjúk og fín, að engin
hætta hefði verið á ferðum. Þetta
fór sem betur fer vel og er ný
lífsreynsla.“ | 2
Viðbúin því versta
Jóna Kristín
Sigurðardóttir
Leikhúsin í landinu
Ógleymanleg
kvöldstund >> 37
X
E
IN
N
IX
0
7
11
0
02
La´ttu þig
Innrettingar
Dalvegi 10-14 • 200 Kópavogur
Sími 577 1170 • Fax 533 1127 • www.innx.is
dreyma
VERKAMENN unnu hörðum höndum í bleytunni þegar ljósmynd-
ara Morgunblaðsins bar að garði við Egilshöll í Grafarvogi í gær-
dag. Þar voru menn að reisa girðingu við nýjan gervigrasvöll sem
liggur norðan við höllina.
Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands verður áfram blautt í dag á
höfuðborgarsvæðinu en kólnar í kvöld. Búist er við stormi á Suð-
austurlandi í kvöld, slyddu og snjókomu um sunnan- og austanvert
landið en annars úrkomulitlu.
Girðing reist kringum gervigras
Morgunblaðið/Golli
Byggja í blautu
veðri við Egilshöll
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÉG á erfitt með að sjá að þessi
breyting standist lög,“ segir Tryggvi
Axelsson, forstjóri Neytendastofu,
um tilkynninguna sem Kaupþing
banki sendi Félagi fasteignasala
(FF) í gær en þar er upplýst að frá
og með 1. desember nk. verði yfir-
taka áhvílandi íbúðalána bankans við
eignaskipti aðeins heimiluð þannig
að vextir breytist í sömu vexti og
gilda á hverjum tíma á nýjum íbúða-
lánum.
„Ákvörðun bankans um að hafna
öllum skuldaraskiptum nema til
komi vaxtahækkun á lánum, verður
að eiga sér stoð í ákvæðum hins
staðlaða samnings sem lántakendur
á íbúðum undirrita og þinglýst er. Í
þeim samningum sem ég hef séð er
ekkert slíkt ákvæði að finna. Svona
samninga verður að skýra með hlið-
sjón af 36. gr. samningalaga,“ segir
Tryggvi. Bendir hann á að ekki sé
óhugsandi að í stöðluðum samning-
um Kaupþings finnist slík heimild,
en það þurfi eðlilega að skoða.
„Sé slík heimild ekki fyrir hendi er
erfitt að sjá á hvaða grundvelli svona
ákvörðun er reist,“ segir Tryggvi og
tekur fram að Neytendastofa muni
að sjálfsögðu, í ljósi þessara frétta,
kalla eftir skýringum frá Kaupþingi
og lögfræðilegum rökstuðningi fyrir
þessari ákvörðun.
Kaupþing reið ekki á vaðið
„Ég mun kalla eftir því hvort þessi
ákvörðun Kaupþings standist
ákvæði samningalaga,“ segir Björg-
vin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
og tekur fram að hann muni fela
Neytendastofu að skoða málið ofan í
kjölinn. Bendir Björgvin á að komi
það ekki fram í samningum bankans
við viðskiptavini að við skuldara-
skipti sé mögulegt að vextir hækki
sé óvíst að tilkynnt ákvörðun bank-
ans standist samningalög.
„Mér finnst þetta slæmar fréttir,
því þetta mun auðvitað hafa í för með
sér að sá sem er með lán frá Kaup-
þingi sem kaupandi vill ekki taka yfir
með hærri vöxtum verður að taka
uppgreiðslu lánsins á sig,“ segir
Ingibjörg Þórðardóttir, formaður
Félags fasteignasala, og bendir á að
uppgreiðslugjald sé nú 2%.
„Hins vegar er þetta ekkert nýtt.
Kaupþing er ekki að ríða á vaðið, því
t.d. bæði Frjálsi fjárfestingarbank-
inn og sparisjóðirnir, hafa síðan
vextir fóru að hækka aftur á síðustu
misserum ekki leyft nýjum skuldur-
um að halda gömlu vaxtakjörunum
við eignaskipti heldur hækkað vexti
á eldri lánum,“ segir Ingibjörg og
tekur fram að sennilega veki þetta
hins vegar fyrst athygli núna þar
sem Kaupþing sé einn af stóru bönk-
unum á húsnæðislánamarkaði.
Telja óvíst að
ákvörðunin
standist lög
Slæm tíðindi, segir formaður FF
Í HNOTSKURN
»Ársvextir af 1 milljón með4,15% vöxtum er 41.500
krónur á meðan ársvextir af 1
milljón með 6,4% vöxtum er
64.000 kr. án þess að tillit sé tek-
ið til vísitöluhækkana milli mán-
aða.
»Kaupþing hóf að veita ein-staklingum íbúðalán með
4,4% vöxtum sumarið 2004, en
þeir urðu lægstir 4,15%.
» Í dag lánar Kaupþing íbúða-lán með 6,4% vöxtum til
handa viðskiptavinum sínum, en
7,15% til annarra.