Morgunblaðið - 07.11.2007, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2007 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● VERÐ hlutabréfa lækkaði í Kaup-
höllinni í gær. Úrvalsvísitala lækkaði
um 2,05% og stóð í 7.547 stigum
við lokun. Þar með hefur hún lækkað
um 4,6% á tveimur dögum og hefur
ekki verið lægri síðan í byrjun apríl.
Mest lækkaði verð hlutabréfa í 365,
um 3,6% og Exista, um 3,1%. Verð
hlutabréfa í Atlantic Petrolium
hækkaði hins vegar um 8,6% og verð
Össurar hækkaði um 1,5%. Mestu
viðskipti gærdagsins voru með hluta-
bréf í Glitni banka fyrir 5,1 milljarð
króna. Þar af voru tæplega 4 millj-
arðar króna í einum viðskiptum.
Hlutabréf lækka mikið
● VERÐBÓLGAN eykst um 0,4% milli
október og nóvember, sem þýðir að
ársverðbólga hækkar úr 4,5% í
4,9%, ef marka má nýja verðbólgu-
spá greiningardeildar Glitnis. Gert er
ráð fyrir að verðbólgan fari upp fyrir
5% í desember og haldist nokkuð
mikil fram eftir næsta ári.
Glitnir spáir jafnframt að stýrivextir
Seðlabankans haldast óbreyttir í
13,75% fram á mitt næsta ár en í júlí
hefjist vaxtalækkunarferli með 0,25
prósentustiga lækkun og verði stýri-
vextir komnir í 12,5% í lok ársins
2008 og 9,5% í lok árs 2009. Þetta
er mun hægara vaxtalækkunarferli
en Seðlabankinn spáir.
Þá telur Glitnir að gengisvísitala ís-
lensku krónunnar muni standa í 111
um næstu áramót, evran í 83 krón-
um og bandaríkjadollar í 58 krónum.
Krónan fari svo að veikjast undir
miðbik 2008 og í lok árs verði geng-
isvísitalan um 122, evran í 91 og
dollarinn 64 krónur. Loks verði hæg-
fara styrking krónu árið 2009.
Spá 5% verðbólgu
HAGNAÐUR Commerzbank eftir
skatta á þriðja ársfjórðungi nam 339
milljónum evra eða 29 milljörðum
króna og jókst um hátt í 60% frá
sama tímabili í fyrra, fyrst og fremst
vegna jákvæðrar skattfærslu. Bank-
inn afskrifaði 291 milljónir evra
vegna áhættusamra fasteignalána í
Bandaríkjunum en heildarverðmæti
slíkra lána hans nemur um 1,2 millj-
örðum evra.
Viss léttir
Afkoman var heldur undir vænt-
ingum sérfræðinga en viss léttis
gætti þó engu að síður á markaði,
ekki síst vegna margra vondra frétta
vestanhafs, og hækkaði gengi bréfa
Commerzbank verulega eftir að töl-
urnar höfðu verið birtar en hækkun
dagsins nam síðan 2,2%.
„Hagnaður Commerzbank var
minni en gert var ráð fyrir en það
sem mestu máli skiptir er að bankinn
var engu að síður rekinn með hagn-
aði,“ sagði Konrad Becker hjá
Merck Fink í samtali við Das Hand-
elsblatt.
Samhliða uppgjörinu tilkynnti
Commerzbank að Martin Blessing,
yfirmaður fyrirtækjaviðskipta,
myndi leysa Klaus-Peter Müller, að-
albankastjóra Commerzbank, af
hólmi á aðalfundi bankans í vor.
Bréf Commerz-
bank hækka
óvart, en tveimur þeirra, Ingólfi
Bender hjá Glitni og Ásgeiri Jóns-
syni hjá Kaupþingi, bar saman um að
hún hefði þó verið réttmæt. Benti Ás-
geir á að stjórnvöld sýndu ekki skiln-
ing á áhrifum eigin aðgerða, þau
ynnu ekki með peningamálastefnu
Seðlabankans.
Björn Rúnar Guðmundsson hjá
Landsbankanum sagði að hækkunin
hefði ekki verið rétt við núverandi að-
stæður. Stýrivextirnir virkuðu ekki
þegar Seðlabankinn næði ekki fram
mikilvægri bindingu eða kjölfestu á
verðbólguvæntingar.
Arnór sagðist skilja það að ákvörð-
un bankans hefði komið á óvart en
ekki hefði verið hægt að gefa út ótví-
ræðari merki um óvissu varðandi
verðbólguna. Nýjar upplýsingar
hefðu borist um þróun hagkerfisins
sem hlutu að setja mark sitt á
ákvörðun Seðlabankans, m.a. vax-
andi hagvöxtur og verðbólga.
„Innrás í opinber fyr-
irtæki kölluð útrás“
Seðlabankastjóri gagnrýndi útrásaráform orkufyrirtækja
Morgunblaðið/Golli
Greinendur Þátttakendur í pallborðsumræðum voru f.v. Arnór Sig-
hvatsson, Ásgeir Jónsson, Ingólfur Bender og Björn Rúnar Guðmundsson.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
ÞÓ að Davíð Oddsson seðlabanka-
stjóri hafi ekki nefnt orkufyrirtækin
eða REI-málið svonefnda beint á
nafn, í ræðu sinni á morgunfundi Við-
skiptaráðs í gær, mátti lesa út úr orð-
um hans harða gagnrýni á útrásar-
áform orkufyrirtækjanna.
Honum var tíðrætt um útrásina og
sagði það orð hafa fengið á sig „goð-
sagnakennda helgimynd“. Útrás
væri ekki annað en venjuleg fjárfest-
ing erlendis. Hún hefði að vissu leyti
skilað töluverðu í aðra hönd og menn
nýtt sér greiðan aðgang að ódýru
lánsfé. Hin hliðin á útrásinni væri þó
sú að Ísland væri að verða „óþægi-
lega“ skuldsett erlendis.
„Útrásarorðið er slíkt töframerki
að jafnvel þegar menn virðast gera
innrás í opinber fyrirtæki almenn-
ings, þá er innrásin kölluð útrás. Og
fyrirtæki sem hafa þá frumskyldu, að
lögum og samkvæmt efni máls, fyrst
og fremst að veita almenningi þjón-
ustu við hinu lægsta verði, eru í nafni
útrásar skyndilega farin að taka þátt
í áhættu erlendis, án þess að skyn-
samleg umræða um þau atriði hafi
farið fram í landinu áður. Í öllum
þessum efnum þurfa menn að fara að
með gát,“ sagði Davíð.
Lítið gat til að loftið leki út
Hann sagði að útrásaráformum
þyrfti að setja skynsamleg mörk.
„Sá óhófsandi sem að nokkru hefur
heltekið okkur má ekki ráða ferðinni
til framtíðar. Við vitum að víða er
uppgangur okkar lofti blandaður. Við
því er ekkert að segja og það er eðli-
legt að þættir eins og óefnislegar
eignir séu fyrirferðarmiklar á upp-
gangstímum þegar vel gengur, en
þegar á móti blæs og harðnar á dal,
þarf aðeins lítið gat til að loftið leki úr
slíkum eignum. Þar er því einnig að-
gæslu þörf,“ sagði Davíð.
Seðlabankastjóri vék í upphafi
ræðu sinnar að nýlegri stýrivaxta-
hækkun bankans. Hún virtist hafa
komið mörgum á óvart en banka-
stjórnin hefði gefið fjölmörg viðvör-
unarmerki síðustu mánuði um að svo
kynni einmitt að fara. Rækilega hefði
verið undirstrikað að verðlagshorfur
til skemmri tíma væru lakari en áður.
Ef bankinn hefði ekki aðhafst neitt
nú hefði með réttu mátt saka hann
um sinnuleysi eða jafnvel kjarkleysi.
Davíð sagði að við hefðum ekki efni
á að tapa baráttunni við verðbólguna.
Hún mætti ekki festast í sessi á ný og
við yrðum að taka slaginn, hversu
óþægilegur og jafnvel kostnaðarsam-
ur sem hann kynni að reynast til
skemmri tíma.
Honum varð einnig tíðrætt um
óróann á fjármálamörkuðum, sem
margir hefðu eflaust vonað að gengi
hratt yfir. Svo væri ekki og allar líkur
væru á að næstu mánuðir gætu orðið
erfiðir, öll kurl væru fjarri því komin
til grafar. Nú væri um það rætt að
aðeins hefði verið gerð grein fyrir ríf-
lega 20 milljarða dollara afskriftum
af undirmálslánunum í Bandaríkjun-
um en að afskriftarþörfin yrði á end-
anum 250-300 milljarðar dollara.
Hækkunin kom á óvart
Að erindi Davíðs loknu fóru fram
pallborðsumræður með þátttöku for-
stöðumanna greiningardeilda bank-
anna og Arnórs Sighvatssonar, aðal-
hagfræðings Seðlabankans. Banka-
mönnunum bar saman um að
vaxtahækkunin hefði komið þeim á
Í HNOTSKURN
»Yfirskrift morgunfundarViðskiptaráðs í gær var
„Hvenær lækka vextir?“.
»Davíð Oddsson sagði aðef allir legðust á eitt
gætu vextir lækkað fyrr og
hraðar en ella. Seðlabank-
anum þætti vænt um að fá
stuðning við að halda verð-
bólgu í skefjum.
»Forstöðumenn greining-ardeilda sögðu vaxta-
hækkun Seðlabanka hafa
komið á óvart en tveir
þeirra, Ásgeir og Ingólfur,
sögðu hana þó hafa verið
réttmæta og löngu tíma-
bæra.
Vextir Davíð Oddsson sagði Seðla-
bankann hafa orðið að bregðast við.
KAUPÞING banki heldur í dag ráð-
stefnuna Breaking the Ice – Think-
ing beyond Iceland í fjármálahöf-
uðborg heimsins, London. Þar
verður fjallað um íslenska hluta-
bréfamarkaðinn og fjárfestum auð-
veldað að skilja eðli hans og hitta
helstu stjórnendur íslenskra stór-
fyrirtækja. Meðal þeirra er flytja
erindi á ráðstefnunni verða þeir
Þórður Friðjónsson, forstjóri OMX
á Íslandi, Sigurjón Þ. Árnason,
bankastjóri Landsbankans, og
Ágúst Guðmundsson, forstjóri
Bakkavarar. Meðal annarra fyr-
irtækja sem eiga fulltrúa á ráð-
stefnunni má nefna Glitni, FL
Group, Existu, Alfesca og Össur.
Ísland kynnt
í London
DAVÍÐ Oddsson sagði á fundi Við-
skiptaráðs í gær að ýmsir aðilar á
markaði, bæði hér og erlendis, hefðu
viljað þreyja þriðja ársfjórðunginn í
þeirri von að sá fjórði myndi bæta úr
því sem aflaga hefði farið. Því hefðu
menn forðast að færa allt til bókar á
þeim þriðja sem æskilegt hefði verið
að gera.
„Ekki er verið að halda því fram
að á markaði um víða veröld séu
menn í stórum stíl að brjóta lög eða
góða viðskiptahætti, en það má vera
að víða séu reglurnar teygðar tölu-
vert, þótt innan löglegra og jafnvel
siðlegra marka sé,“ sagði Davíð og
bætti við að þannig væru menn að
meta eignir til fjár sem væru óselj-
anlegar um þessar mundir. Það væri
vandmeðfarið að ákveða markaðs-
virði á meðan markaðurinn væri
tregur og fast að því lokaður. „Allar
þessar aðstæður auka tortryggni og
grafa undan trausti, en í rauninni
virðist vandamálið sem nú ríkir ekki
síst vera vaxandi vantraust fremur
en vaxandi skortur á fé.“
Reglurnar
teygðar
töluvert
! "#$%
&''(
#$'
(
"$
!$ $!!
$ $!
!$!!
$ !!$!!
!$!!
$
$!!
$!!
$ $!!
$!!
!"!!#
!"$!#
%"&'#
&"$(#
)")*#
)"((#
)"&$#
)"*)#
!"(!#
)"(+#
!"&*#
!"($#
%"$&#
!")*#
'"$$#
&"!*#
!"$'#
)"&$#
&"*&#
)"$'#
!")&#
7
. 8(
! 9 2&,&
!:
"
8
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
0
. 8(
-
-
-
-
-
;
!
( . .
)*
+ ",+
(&
<&83#
=
.0<&83#
5> (
3#
+<&83#
< ( 2
3#
7#5 8
#4
!
?@
<&83#
"
81 !2
3#
+
2
3#
(
-=
//#23#
9
A 3#
B3#
. * % /$
3#
#
@
3#
(
( @C
(&
C
5 =
!
<&83#
D&A
=
?@
@<&83#
*
3#
EF3
3#
CGHE
9A!! !
(0 3#
I (0 3#
) 0! % 1
J
(A J&
7=<
3#
7
8
3#
H*K H*K !!
%$
%!$
L
L
H*K 5=K
%$
%$
L
L
;&MN&
E
O
%!$
%$
L
L
; K
%!$
%!$
L
L
H*K6
H*K0
&$
%$
L
L
♦♦♦
♦♦♦
KAUPÞING í Svíþjóð hefur tekið
slaginn í vaxtastríði sænsku bank-
anna á innlánamarkaði. Kaupþing
býður nú 4,5% vexti á innlánum sem
eru hærri en 10 þúsund sænskar
krónur, jafnvirði 92 þúsunda ís-
lenskra króna, og eru það hæstu
innlánsvextir á sænska mark-
aðnum. Með 6 mánaða bindingu
hækka vextirnir í 4,55% og með 12
mánaða bindingu eru 4,6% vextir.
Kaupþing
í vaxtastríð
BLUE Mountain, dótturfélag
Nevada Geothermal Power, hefur
samið við Glitni um 20 milljóna doll-
ara fjármögnun, jafnvirði 1,2 millj-
arða króna, vegna byggingar 35 MW
jarðorkuvirkjunnar í Nevada. Um er
að ræða brúarlán sem verður greitt
að fullu á öðrum ársfjórðungi næsta
árs, þegar byggingarleyfi hafa feng-
ist fyrir framkvæmdinni. Þá hefur
Glitnir skuldbundið sig til að fjár-
magna helming 100 milljóna dollara
byggingarláns. Árni Magnússon,
framkvæmdastjóri orkusviðs Glitnis,
segist í tilkynningu fagna því að
bankinn geti átt þátt í að styðja Blue
Mountain í uppbyggingunni, og
hlakkar til að vinna með Morgan
Stanley að byggingarláninu.
Fjármagna
virkjun
♦♦♦
● SKULDATRYGGINGARÁLAG bank-
anna hefur hækkað talsvert frá
júníbyrjun, segir í Vegvísi Lands-
bankans.
Álagið var þá
24 punktar hjá
Glitni, 25 punkt-
ar hjá Kaupþingi
og 18 punktar
hjá Landsbank-
anum. Við upp-
haf lausa-
fjárvandans í
ágúst kom mikil hreyfing á álagið
og hækkaði það hjá öllum bönkum.
„Það kemur á óvart að uppgjör ís-
lensku bankanna hafi ekki leitt til
lækkunar á álaginu. Þvert á móti
hefur álagið hækkað síðustu daga,
um 10 punkta hjá Glitni og Lands-
bankanum en nærri 30 punkta hjá
Kaupþingi. Þetta er mun meiri
hækkun en meðalhækkun erlendra
banka,“ segir í Vegvísi en á mánu-
dag var álag Kaupþings í sögulegu
hámarki, í 207,5 punktum.
Skuldatryggingarálag
enn að hækka