Morgunblaðið - 07.11.2007, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞETTA ER FLOTTUR
STAÐUR! VIÐ ÆTTUM AÐ
KOMA HINGAÐ OFTAR
GRETTIR, ERTU BÚINN
MEÐ KAFFIÐ ÞITT?
ERTU
AÐ
GRÍNAST?
FYRST ÉG ÞARF AÐ BORGA
500 kr. FYRIR BOLLANN ÞÁ ÆTLA
ÉG AÐ BORÐA STÓLINN LÍKA
EINU SINNI
Á DAG...
ÞANNIG
TEKST
ÞETTA...
ÉG VERÐ AÐ
STYRKJA EYRNA-
VÖÐVANA
SMÁTT OG SMÁTT...
FYRST LENTI ÉG Í
VANDRÆÐUM FYRIR AÐ
FYLGJAST EKKI MEÐ Í TÍMA
OG SKILA HRÆÐILEGU
SKORDÝRASAFNI... SEM
KENNARINN
GAF
MÉR „Ó“
FYRIR...
SÍÐAN LENTI ÉG Í
VANDRÆÐUM ÞEGAR ÉG
KOM SOLLU Í VANDRÆÐI ÞVÍ
ÞÁ VILDI HÚN
EKKI HJÁLPA
MÉR...
ÉG LENTI LÍKA Í VANDRÆÐUM
ÞEGAR ÉG SAGÐI MÖMMU
FRÁ ÖLLU SAMAN OG SVO
AFTUR ÞEGAR MAMMA
SAGÐI PABBA HVAÐ ÉG
GERÐI! ÞETTA HEFUR VERIÐ
HRÆÐILEGUR DAGUR!
ÆTLAR ÞÚ ÞÁ AÐ SKILA
RITGERÐINNI FYRIR MÁNU-
DAGINN Á RÉTTUM TÍMA?
HA?
NÚ?
MAMMA SEGIR AÐ Í HVERT EINASTA SKIPTI SEM HÚN
KEMUR Í HEIMSÓKN ÞÁ FINNUR ÞÚ UPP EINHVERJA
HEIMSKULEGA AFSÖKUN TIL AÐ KOMAST ÚT ÚR HÚSI!
BULL OG
VITLEYSA!
HAFIÐ MIG
AFSAKAÐAN...
ÉG ÞARF AÐ FARA
Á BALLETTÆFINGU...
GRÍMUR,
SJÁÐU ALLT
DRASLIÐ
EFTIR ÞIG!
ÉG VAR AÐ
ÆFA MIG AÐ
GERA MARGA
HLUTI Í EINU
HVERT FORELDRI
HEFUR UMSJÓN MEÐ SEX
KRÖKKUM...
ÞIÐ MEGIÐ FARA HVERT
SEM ER Í SAFNINU EN GÆTIÐ
ÞESS AÐ HAFA ALLTAF AUGA
MEÐ BÖRNUNUM
KRAKKAR...
SJÁIÐ ÞETTA!
ÞETTA VAR EKKERT MÁL... NÚNA
TEKUR ÁHÆTTULEIKARINN VIÐ
NEI! VALSLÖNGVAN VAR
SETT AF STAÐ!
M.J. Á EFTIR AÐ
KASTAST Á VEGGINN!
dagbók|velvakandi
Úðabrúsa-krot
„GRAFFITI“ eða úðabrúsa-krot á
veggi, skýli og hvaðeina er víða mik-
ið vandamál og mikill kostnaður að
mála yfir krotið sem sjaldnast dugar
lengi. Í gær voru sett ný lög í fylkinu
Oregon við vesturströnd Bandaríkj-
anna. Þeir tóku það ráð að banna
sölu úðabrúsa nema til þeirra sem
sýna skilríki og skrá söluna. Vissu-
lega eru ráðamenn málningarvöru-
verslana ekki allskostar ánægðir
með þessi höft en þó er almennur
skilningur á vandamálinu og ekkert
hefur dugað hingað til. Nú er bara
að sjá hvort þetta sé varanleg lausn
eða annar plástur á vandamálið.
Auðunn Sæberg Einarsson.
Algjör Sirkus
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 5. nóvem-
ber sl. fór dóttir mín í bæinn að
skemmta sér. Á skemmtistaðnum
Sirkus lenti hún í því að vera rænd,
ekki af öðrum gesti heldur af starfs-
manni á bar. Þannig var að hún
pantaði sér drykk sem kostaði 800
kr. hún rétti barþjóninum 5.000 kr.
sem var hennar eini peningur, eitt-
hvað átti barþjónninn erfitt með að
skipta þessu og spurði hana hvort
hún ætti ekki eitthvað smærra. Með
því að leita vel í veskinu sínu þá fann
hún 800 kr. í klinki sem hún afhenti
þjóninum. Hún spurði síðan þjóninn
hvort hún ætti ekki að fá 5.000 kr.
sínar til baka en þá sagði þjónninn
að hún væri búin að fá peninginn.
Dóttir mín varð mjög reið og sár.
Hún bauðst til að láta leita í veskinu
sínu, auk þess sem hún leitaði sjálf á
gólfinu í kringum sig. Þjónninn var
virkilega dónalegur og neitaði að
láta hana hafa peninginn. Vil ég bara
vara fólk við þessum stað, það getur
vel verið að það sé mikið um þetta og
að fólk sem í flestum tilfellum er
undir áhrifum áfengis áttar sig ekki
á því að verið sé að stela af því. Það
er voða erfitt að sanna þetta því það
eru bara orð á móti orði. En dóttir
mín sem er 24 ára hefur sjálf unnið
lengi sem barþjónn og hún sagðist
aldrei hafa kynnst svona þjónustu.
Þetta er kannski ekki mikill pen-
ingur en fyrir námsmann er þetta
töluvert.
Drífa.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ANSI hvasst var á landinu í gær og það fór ekki fram hjá þessari vel búnu
konu sem hjólaði um í miðbæ Reykjavíkur enda alkunna að hjólreiðar og
mikill vindur eiga ekki samleið.
Morgunblaðið/Ómar
Rok í Reykjavík
FRÉTTIR
FAGSÝNINGIN og ráðstefnan
Stóreldhúsið 2007 verður haldin á
Grand hótel Reykjavík fimmtu-
daginn 8. og föstudaginn 9.
nóvember.
Öll helstu fyrirtæki á þessu sviði
verða með sýningarbása þar sem
verða kynntar vörur og nýjungar.
Fyrirtækin munu sýna matvörur,
drykkjarvörur, tæki, búnað og
annað er tilheyrir stóreldhúsum.
Stóreldhúsið 2007 er ætlað
starfsfólki á veitingahúsum,
skólaeldhúsum, vinnustaðaeld-
húsum, stofnunum, sjúkrahúsum,
hótelum, skyndibitastöðum, í
framleiðslueldhúsum eða almennt
innan matvælaiðnaðarins. Almenn-
ingi er ekki boðið á Stóreldhúsið
2007 heldur eingöngu starfsfólki
frá ofangreindum vinnustöðum.
Stóreldhúsið 2007 býður einnig
upp á fyrirlestra- og kynningar-
dagskrá með fagfyrirlesurum.
Sýningin hefst kl. 12 og stendur til
u.þ.b. kl. 18.30 báða dagana.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Stóreldhúsið 2007
á Grand hóteli