Morgunblaðið - 30.01.2008, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2008 17
LANDIÐ
Ljósmynd/UMFÍ
Flott án fíknar Hópur framhaldsskólanema skemmti sér vel án áfengis í
helgarferð á Laugum í Sælingsdal. Byrjað er að undirbúa nýja ferð.
Dalir | „Það mundi gera mig glaðan.
Það væri minna um eiturlyf, þjófn-
aði og nauðganir, mundi ég telja,“
sagði einn þátttakenda í helgarferð
að Laugum í Sælingsdal, forvarn-
arverkefni sem Ungmennafélag Ís-
lands stýrir, „Flott án fíknar“, á
dögunum. Í lok námskeiðsins voru
krakkarnir spurðir að því hvað það
myndi gera fyrir þá og samfélagið ef
enginn undir tvítugu notaði áfengi.
Öllum framhaldsskólanemum sem
sniðganga tóbak og áfengi stóð til
boða að koma í ferðina. Þátttak-
endur voru tuttugu og voru þeir frá
Fjölbrautaskólanum á Akranesi,
Framhaldsskólanum að Laugum og
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ en
þar hafa nemendur stofnað með sér
bindindisfélag. Ferðin gekk í alla
staði vel og skemmtu ungmennin sér
út í æsar.
Guðrún Snorradóttir verkefn-
isstjóri og Jörgen Nilsson, leiðbein-
andi á Laugum, skipulögðu helgina
þar sem farið var í leiki, hópefli, um-
ræður og verkefnavinnu.
Yrði minna vesen
Í lok ferðarinnar svöruðu þátttak-
endur nokkrum spurningum um
helgina og álit þeirra á hvernig væri
best að fá ungmenni til að sniðganga
áfengi. Það kom fram í svörum
þeirra að félagsstarfsemi eins og
BFFG (Bindindisfélag Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ) og „Flott án
fíknar“ væri góður vettvangur og
eins ef hægt væri að fá einingu í
framhaldsskólunum til að starfa í
slíku félagi.
Einnig var spurt: Hvað mundi það
gera fyrir þig og samfélagið ef eng-
inn yngri en 20 ára notaði áfengi.
Hér eru dæmi um svör: „Ég held að
það mundi verða allt miklu rólegra
og fólk mundi geta skemmt sér á
löglegan hátt, það mundi líka vera
minna vesen.“
„Kannski yrði hægt að minnka
það að ungt fólk sé að fara í með-
ferðir í hrönnum og meiri peningur
sem hægt væri að setja í aðra hluti á
sviði heilbrigðisþjónustu, annað en
SÁÁ sem er auðvitað að gera góða
hluti.“
„Það yrði mun léttara að hittast
og það mundi vera minna um ólæti
um allt.“
Það er markmið UMFÍ að fá nem-
endur í framhaldsskólum landsins til
samstarfs við verkefnið en fram að
þessu hafa nemendur í grunnskólum
verið virkir í starfinu. Til stendur að
fara í fleiri ferðir og hafa Þing-
eyingar lýst yfir áhuga á að bjóða
næst heim. Þau ungmenni sem hafa
áhuga geta skráð sig á póstlista hjá
Ungmennafélagi Íslands á netfangið
flottanfiknar@flottanfiknar.is og fá
þá send tilboð um næstu ferð og ann-
að sem er á dagskrá.
Léttara að hittast án áfengis
Í HNOTSKURN
»Helsta markmið verkefnisins„Flott án fíknar“ er að vinna
að því að fólk virði áfengis- og
tóbakslögin.
»Tuttugu framhaldsskóla-nemar tóku þátt í helgarferð
að Laugum í Sælingsdal.
Flottir þátttakendur
án fíknar í helgar-
ferð á Laugum Eftir Hafþór Hreiðarsson
Húsavík | Nokkur frjáls félagasam-
tök í Þingeyjarsýslum tóku höndum
saman og söfnuðu fé fyrir nýjum
húsgögnum á öldrunardeild Heil-
brigðisstofnunar Þingeyinga. Fyrir
það og fleiri gjafir var þakkað á að-
alfundi styrktarfélags stofnunarinn-
ar.
Á aðalfund Styrktarfélags Heil-
brigðisstofnunar Þingeyinga var
boðið fulltrúum þeirra félaga og
fyrirtækja sem og einstaklingum
sem styrktu félagið með einum eða
öðrum hætti á liðnu ári.
Meðal verkefna á liðnu ári sem
vert er að geta er að kvenfélög á
svæði stofnunarinnar ásamt Lions-
klúbbi Húsavíkur, Soroptimista-
klúbbi Húsavíkur og nágrennis og
Sparisjóði Þingeyinga tóku höndum
saman með styrktarfélaginu og
söfnuðu fyrir nýjum húsgögnum á
öldrunardeild sjúkrahússins.
Jón Helgi Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar
Þingeyinga, segir þetta ekki í
fyrsta skipti sem félagasamtök á
starfssvæði heilbrigðisstofnunarinn-
ar komi henni til aðstoðar. Segja
mætti að saga heilbrigðisstofnunar-
innar og saga frjálsra félagasam-
taka í Þingeyjarsýslu sé samofin.
Friðrika Baldvinsdóttir, formað-
ur Krabbameinsfélags Suður-Þing-
eyjarsýslu, afhenti fyrir hönd fé-
lagsins Svölu Hermannsdóttur,
formanni styrktarfélagsins, eina
milljón króna sem ætluð er til
kaupa á nýjum tækjum til maga-
speglunar.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Gjafir Fulltrúar félaga sem studdu kaup á húsgögnum fyrir öldrunardeild
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga hittust á aðalfundi styrktarfélagsins.
Saga stofnunar og
félaga er samofin
Sandgerði | Bátur sökk í Sand-
gerðishöfn í fyrrakvöld. Möstrin
ein standa upp úr auk þess sem
báturinn skildi eftir sig olíubrák.
Una SU, sem er 35 ára gamall
eikarbátur og liðlega 20 brúttó-
tonn að stærð, hefur legið bundin
við bryggju í Sandgerðishöfn í
nokkur ár. Báturinn er kvótalaus.
Hann var gerður út frá Sandgerði
frá árinu 1994 í tæpan áratug en
hefur síðan legið óhreyfður við
bryggju. Una er skráð í eigu út-
gerðar í Neskaupstað. Báturinn er
einn af mörgum svokölluðum
óreiðubátum í höfninni og hafn-
arsvæðinu.
Ekki er vitað um ástæður þess
að báturinn sökk. Hafnarvörður
segir að hafnarstarfsmenn hafi
þurft að dæla reglulega upp úr
honum. Það hafi síðast verið gert
síðastliðinn miðvikudag. Þegar
þeir komu til vinnu í gærmorgun
var báturinn sokkinn. Við athugun
á eftirlitsmyndavélum kom í ljós
að báturinn hefur sokkið um
klukkan átta í fyrrakvöld og að
það hefur tekið um það bil klukku-
stund.
Una verður væntanlega hífð upp
úr höfninni í dag og komið fyrir til
bráðabirgða á hafnarsvæðinu.
Una hífð
úr höfn-
inni í dag
Sokkinn Aðeins möstrin á Unu
standa upp úr sjónum í höfninni.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Reykjanesbær | Bæjarráð Reykja-
nesbæjar hefur samþykkt að lækka
álagningarprósentu fasteigna-
skatts á árinu. Tilgangurinn er að
vega upp á móti hækkun fast-
eignamats þannig að fasteigna-
skattur húseigenda verði óbreyttur
í krónutölu á milli ára.
Fasteignamat íbúðarhúsnæðis
hækkaði almennt um 12% um ára-
mót, samkvæmt ákvörðun yfirfast-
eignamatsnefndar. Áður höfðu
sveitarfélögin gengið frá fjárhags-
áætlun fyrir árið 2008. Nokkrar
sveitarstjórnir hafa ákveðið að
lækka álagningarprósentu fast-
eignagjalda til að vega upp þessa
hækkun matsins, þar á meðal
Grindavík og Hafnarfjörður.
Bæjarráð Reykjanesbæjar sam-
þykkti samhljóða tillögu um lækk-
un fasteignaskattsins á fundi í lok
síðustu viku. Samþykkt var að
lækka álagningarhlutfall fast-
eignaskatts úr 0,30% í 0,268%.
Breytingin á að hafa í för með sér
að fasteignaskattur hjá íbúum
Reykjanesbæjar verður óbreyttur í
krónutölu á milli áranna 2007 og
2008.
Fasteignaskattur íbúða
lækkar í Reykjanesbæ
SUÐURNES
- gæði í gegn
Kópavogur, Smið juveg i 68-70, s ími 544 5000 • Njarðv ík , Fit jabraut 12, sími 421 1399 • Sel foss, Gagnhe ið i 2 , s ími 482 2722
Continental eru ein öruggustu dekk sem þú færð,
enda eru gæði og öryggi einkunnarorð Continental.
• Ótrúlega gott grip á snjó og ís.
• Frábærir eiginleikar við akstur í bleytu og krapa.
• Ósamhverft mynstur sem vinnur vel saman með
ABS bremsukerfi og ESP stöðugleikakerfi bílsins.
• Sigurvegari dekkjaprófana á Norðurlöndum sl. ár.
„Með tveggja sekúndna betri tíma en önnur
dekk á brautinni er ContiVikingContact 3 í
sérklassa. Hemlun og grip voru einnig framúr-
skarandi.”
Í fyrsta sæti í dekkjaprófunum MOTOR sl. 5 ár.
„Í snjó er þetta dekk betra en flest nagladekk.
Á ís eru eiginleikar þess einnig framúrskarandi.”
ContiVikingContact 3
Í fyrsta sæti fi mm ár í röð.*
og
* Í árlegum dekkjaprófunum sem haldin eru af Test World í Norður Finnlandi