Morgunblaðið - 09.05.2008, Síða 1
föstudagur 9. 5. 2008
íþróttir mbl.isíþróttir
Besta skíðakona landsins neyðist til að hætta >> 3
LAKERS OG KOBE Í STUÐI
LAKERS LAGÐI UTAH ÖÐRU SINNI OG HEFUR UNNIÐ
ALLA SEX LEIKI SÍNA Í ÚRSLITAKEPPNINNI >> 4
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Friðrik hefur glímt við veikindi frá
því s.l. haust en hann fór í hjartaað-
gerð í október vegna óreglulegs
hjartsláttar og rúmlega viku síðar lék
hann með liðinu í sigurleik gegn Snæ-
fell.
„Ég er búinn að fara í tvær hjarta-
þræðingar á átta mánaða tímabili og
ég geri því ekki ráð fyrir að æfa mikið
í sumar eða búa mig undir nýtt tíma-
bil. Í ágúst fer ég í ítarlega skoðun
hjá læknunum sem sjá um mín mál.
Eftir þær rannsóknir mun ég taka
ákvörðun um framhaldið.“ Friðrik fór
á dögunum til Noregs í þeim tilgangi
að horfa á bróður sinn leika hand-
bolta með Elverum í úrslitum um
norska meistaratitilinn.
„Jú, það er víst þekkt í Vestmanna-
eyjum að við Sigurður Ari Stefánsson
eru bræður. Ég fór með föður okkar
til Noregs á úrslitaleikinn. Ég hélt að
þetta væri svona deildabikarkeppni í
lok leiktíðar eða eitthvað slíkt. Þetta
var víst aðeins meira en það. Þeir
komu gríðarlega á óvart í úrslita-
leiknum með því að sigra Drammen.
Það var ekki leiðinlegt að sjá þann
„örvhenta“ skora 8 mörk,“ sagði
Friðrik og bætti því við að það hefðu
ekki verið not fyrir regnjakkann sem
hann tók með til Bergen. „Það var sól
og blíða.“
Þetta er aðeins í annað sinn sem
Elverum verður meistari í sögu fé-
lagsins en liðið varð meistari árið
1995. Elverum hafnaði í fimmta sæti í
deildarkeppninni og sló út Runar í
tveimur leikjum í úrslitakeppninni.
Undanúrslitin og úrslitin voru spil-
uð í Bergen á föstudag og laugardag í
síðustu viku. Elverum sigraði Hauga-
sund í undanúrslitum og skellti svo
deildar- og bikarmeisturum Dram-
men í úrslitunum, 33:31.
Það er mikið óvissuástand í her-
búðum Njarðvíkinga og segir Friðrik
að hann viti lítið um hvað sé að gerast
hjá félaginu. „Ég hef lítið fylgst með
því hvað er í gangi hjá mínu liði. Teit-
ur Örlygsson verður ekki áfram þjálf-
ari, Brenton Birmingham er farinn í
Grindavík og Guðmundur Jónsson í
Þór á Akureyri. Ég hef heyrt að ein-
hverjir leikmenn séu að hugsa sinn
gang en það eru bara sögusagnir.
Stjórn félagsins mun taka ákvörðun
um hver verður þjálfari á næstunni
og þá munu leikmannamálin skýr-
ast,“ sagði Friðrik Stefánsson.
„Spila bara
á gítarinn“
Reuters
Spenna Phil Mickelson hefur titil að verja á Players-meistaramótinu í golfi sem hófst í gær á TPC Sawgrass-vell-
inum í Flórída. Mickelson lék fyrsta hringinn á 2 höggum undir pari og er hann á meðal efstu manna á mótinu. »2
„Ég er ekkert að velta því fyrir mér
hvort ég spili körfubolta á næsta
tímabili eða ekki. Ég fór í hjarta-
þræðingu eftir deildarkeppnina og
er í raun bara að jafna mig eftir
það. Körfuboltinn er ekki ofarlega
á dagskrá þessa dagana. Ég spila
bara á gítarinn í frístundum og er
aðeins farinn að fikta við golfið,“
sagði Friðrik Erlendur Stefánsson
landsliðsmaður í körfubolta og leik-
maður Njarðvíkinga.
Njarðvíkingurinn Friðrik Stefánsson
fór í tvær hjartaaðgerðir á 8 mánuðum
BIRGIR Leifur Haf-
þórsson, atvinnukylf-
ingur úr GKG, gæti
þurft að draga sig al-
farið úr keppni á
þessu tímabili á Evr-
ópumótaröðinni í golfi
vegna meiðsla. Birgir
gat ekki hafi leik á
Opna ítalska meist-
aramótinu sem hófst í
gær. Dr. Roger Haw-
kes, sem er læknir Evrópu-
mótaraðarinnar, hefur ráð-
lagt Birgi að taka
sér frí í allt að fjóra
mánuði vegna
meiðsla í mjóbaki,
hálsi og öxl. Í frétta-
tilkynningu sem
Birgir sendi frá sér
segir m.a. að ef hann
verði frá í fjóra mán-
uði eigi hann mögu-
leika á að sækja um
læknisvottorð og þar
með myndi Birgir halda
keppnisrétti sínum á Evrópu-
mótaröðinni þegar keppnis-
tímabilið 2008-2009 hefst í
nóvember.
Þetta er annað mótið á
þessu tímabili þar sem Birgir
þarf að draga sig úr keppni
vegna meiðsla. Á þessu tíma-
bili hefur Birgir tekið þátt á 6
mótum og komist í gegnum
niðurskurðinn á 3 þeirra.
Hann er í 252. sæti peninga-
listans en 115. efstu í lok tíma-
bilsins halda keppnisrétti sín-
um.
Birgir gæti verið frá
keppni í fjóra mánuði
Birgir Leifur
Hafþórsson
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
,,ÉG reikna ekki með að spila
meira með á þessu tímabili og
það er tvísýnt að ég geti verið
á móti Wales í lok mánaðar-
ins,“ sagði Eiður Smári Guð-
johnsen, leikmaður Barce-
lona, við Morgunblaðið í gær
en Eiður varð að hætta leik
eftir aðeins 23 mínútur gegn
Real Madrid í fyrrakvöld
vegna meiðsla á rist.,,Læknar
liðsins skoðuðu mig í gær og
þeir sögðu mér að hvílast sem
mest næstu dagana. Ég er bú-
inn að finna fyrir þessum
meiðslum frá því fyrir jól en
nú kom að þeim tímapunkti að
ég gat ekki meira,“ sagði Eið-
ur en tvær umferðir eru eftir
af deildarkeppninni.
Til tíðinda dró hjá Börsung-
um í gærkvöld þegar Joan La-
porta forseti félagsins til-
kynnti að Josep Guardiola
tæki við liðinu í sumar af
Frank Rijkaard. ,,Ég var nú
bara frétta af þessu en ég get
ekki sagt að þetta komi mér á
óvart. Ég veit ekkert hvar ég
stend gagnvart honum. Sum
blöð hér úti segja að Barce-
lona ætli að selja mig en önn-
ur segja ekki. Þetta kemur
bara í ljós en ef ég fer héðan
þá er ekkert sjálfgefið að ég
fari aftur til Englands. Ég
ætla að bara að reyna njóta
þess að spila fótbolta þau ár
sem ég á eftir.“
Eiður Smári: Tímabilið
líklega búið hjá mér