Morgunblaðið - 28.05.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.05.2008, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Reykjanesbær | „Mér líst vel á. Þetta er uppáhalds vinkona mín og ég hlakka afar mikið til að sjá hana þarna,“ segir Herdís Egilsdóttir, kennari og rithöfundur. Skessan úr bókum hennar, Sigga og skess- an í fjallinu, fær samastað í helli í Keflavíkurbergi. Utarlega við Keflavíkina, rétt hjá smábátahöfninni, er hellir sem verður heimili skessunnar og ævintýraheimur fyrir gesti. Búin verður til önnur hvelfing með hleðslum og byggt yfir. Hugmyndir hjá skessunni „Við fórum í fjallið til skess- unnar og spurðum hana sjálfa hvernig við ættum að gera þetta,“ segir Þorleifur Eggertsson, einn félaganna úr listahópnum Norðan- báli sem vinnur að hönnun Skessu- hellisins fyrir Reykjanesbæ. Þor- leifur segir að skessan hafi lagt áherslu á að notaður yrði íslenskur efniviður, hleðslur og rekaviður og nefndi að hún hefði séð hús byggð við svona hella undir Eyjafjöllum fyrir 300 árum. Hugmyndin er að skessan sjálf verði í aðalhlutverki í Skessuhell- inum, væntanlega þó hálfsofandi í ruggustólnum. Og samkvæmt hug- myndum Herdísar sjálfrar er þessi skessa ljúf og vinur allra, tilbúin að nota stærð sína og krafta til að hjálpa smákrílunum. Skessan er um fimm metra há og lögð er áhersla á að öll húsgögn og munir hennar verði í réttum hlutföllum. Það getur því verið skemmtilegt fyrir börn og aðra gesti að setjast á tröllslega kollinn hennar eða máta sig í skóna – eða fletta bók með broti úr sögu henn- ar. Skessuhellirinn verður opinn fyrir gesti á ákveðnum tímum og utan þess tíma verður hellirinn upplýstur þannig að hægt verður að kíkja inn um gluggann og fylgj- ast með heimilislífinu. Þá er til at- hugunar að hafa bát hennar á sjón- um fyrir framan Skessuhellinn enda rær hún til fiskjar. Samfélagslegt verkefni Ævintýraheimurinn í Skessu- helli er ætlaður fyrir ferðafólk og ekki síður til fræðslu fyrir heima- fólk. Kostnaður er áætlaður 16 milljónir kr. Ásmundur Friðriks- son, verkefnastjóri hjá Reykja- nesbæ, segir að þetta sé sam- félagslegt verkefni sem margir muni koma að með vinnu og styrkjum. Nefnir hann að verk- takafyrirtæki sem er með náma- vinnslu á svæðinu hafi boðist til að annast grjóthleðsluna. Þá muni nemendur í vinnuskólanum annast lagningu göngustígs að hellinum og erlendir sjálfboðaliðar leggja hönd á plóginn. Áætlað er að vígja Skessuhellinn á Ljósanótt í haust, 6. september. Verður nokkur viðhöfn vegna þess. Þannig koma mörg tröll á hátíða- höldin, meðal annars hafa þrett- ándatröllin úr Vestmannaeyjum boðað komu sína og munu fara fyr- ir skrúðgöngu út í Skessuhellinn. Skessa flytur úr fjallinu í helli í Keflavíkurbergi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Tröllslegt Listamennirnir sýna Árna Sigfússyni bæjarstjóra líkan að Skessu- hellinum, Örn Alexandersson, Frosti Friðriksson og Þorleifur Eggertsson. Börnin geta sest á kollinn og mátað skó skessunnar Góðleg Skessan er engin smásmíði en vill nota stærð sína til að hjálpa börnunum, vinum sínum. Í HNOTSKURN »Herdís Egilsdóttir skapaðiskessuna fyrir meira en fjörutíu árum. Fyrstu bækur hennar um Siggu og skessuna í fjallinu komu þá út og hafa sög- urnar notið mikilla vinsælda. Þær eru orðnar fimmtán auk sjónvarpsþátta og leikrits. Garður | „Skóladagur í Garðinum“ er viðburður maímánaðar á 100 ára afmælisári Sveitarfélagsins Garðs. Skóladagurinn er næstkomandi laugardag, 31. maí. Þann dag munu skólarnir þrír, Leikskólinn Gefnarborg, Gerðaskóli og Tónlistarskóli Garðs, hafa sýn- ingu á verkum nemenda og vera með ýmsar aðrar uppákomur. Eru allir bæjarbúar og gestir velkomnir. Hápunktur dagsins verður þegar Grænfáninn verður dreginn að húni bæði í Gerðaskóla og Gefnarborg. Að svo skuli vera er lýsandi dæmi um góða samvinnu milli skólanna tveggja sem nær til margra þátta skólastarfsins. Nemendur Gerðaskóla munu í verkum sínum frá undangegnum þemadögum kynna lífið í bænum eins og það var fyrir 100 árum. Ekki er ólíklegt að mögum komi á óvart hvernig mannlífið var þá. Skóladagur haldinn í Garðinum Garður | Skólanefnd Sveitarfé- lagsins Garðs mælir með því að Pét- ur Brynjarsson verði ráðinn skóla- stjóri Gerðaskóla. Pétur var áður skólastjóri Grunnskóla Sandgerðis. Erna Sveinbjarnardóttir skólastjóri hefur verið ráðin í nýtt starf hjá sveitarfélaginu frá 1. ágúst næst- komandi. Verður hún skóla-, menn- ingar- og jafnréttisfulltrúi. Skólanefnd mælti í umsögn sinni með að Pétur tæki 5 einingar á ári í námi í skólastjórnun og vinni verk- efnin með Gerðaskóla í huga. Pétur Brynj- arsson verði skólastjóri ♦♦♦ SUÐURNES HVANNDALSBRÆÐRUM hefur fjölgað úr þremur í fimm og von er á geisladiski frá hljómsveitinni inn- an fárra daga. „Þetta er lang-, lang-, langbesti diskurinn okkar – enda erum við komnir með tvo hljóðfæraleikara og nú heyrast alls kyns hljómar sem við höfum aldrei kunnað að búa til,“ sagði Rögnvald- ur „gáfaði“ í léttum dúr þegar blaðamaður hitti þrjá „bræðr- anna“. Hljómsveitin verður með tvenna útgáfutónleika á Græna hattinum á Akureyri á fimmtudags- og föstu- dagskvöld og síðan í Iðnó í Reykja- vík föstudaginn 13. júní. Rokk, grín og glens hafa verið aðalsmerki Hvanndalsbræðra. Þeir segja það að mestu óbreytt, text- arnir gætu enn stuðað en lögin séu þó útsett öðruvísi en áður og mús- íkin enn rokkaðri. Og mun meira er vandað til verka en áður. „Við eyddum meiri tíma í að taka þenn- an disk upp en alla hina þrjá til samans,“ sagði gítarleikarinn, söngvarinn og textasmiðurinn Rögnvaldur og trommarinn og söngfuglinn Valur bætti við: „Það fór lengri tíma í að taka upp eitt gítarsóló núna heldur en að taka upp allan fyrsta diskinn okkar!“ Valmar Valduri Väljaots er ann- ar nýju meðlimanna. Hinn er Pétur Hallgrímsson (Hvanndal) sem leik- ur á rafgítar, mandólín og fleira. Valmar (Hvanndal) leikur á harm- onikku og fiðlu. Hann er klassískt menntaður í músík, stjórnar Karla- kór Akureyrar – Geysi og auk þess organisti í kirkju. Verkefnið nú er því öðruvísi en hann fæst við venju- lega og Valmar hefur gaman af. „Það er mjög gaman að koma inn í þennan hóp. Eins og að fá hlutverk í leikriti. Loksins, eftir 40 ára til- veru, er ég kominn í bílskúrsband!“ Auk diskanna þriggja sem nefnd- ir voru hefur komið út einn safn- diskur. „Við vorum hvattir til þess að gefa þá gömlu út aftur en nennt- um því ekki og því var ágætt að Sena vildi gefa út safndisk með skástu lögunum …“ sagði Rögn- valdur. Félagarnir gefa nýja disk- inn út sjálfir eins og þá þrjá fyrstu, en þeir voru ekki í boði í versl- unum. „Við gáfum þá út í 500 ein- tökum hvern og seldum á tónleik- um. Það gekk vel en nýi diskurinn verður seldur á bensínstöðvum N1 og líklega víðar. Nú gefum við loks- ins út disk með strikamerki …“ sagði Rögnvaldur. Tónleikarnir á Græna hattinum hefjast hvorir tveggja kl. 21.30 en húsið verður opnað klukkutíma fyrr. Komnir með tvo hljóðfæraleikara! Fjörugir Hvanndalsbræðrum hefur fjölgað úr þremur í fimm. SIGRÚN Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, tók í gær fyrstu skóflustunguna að Naustaskóla, grunnskóla sem rís í nýjasta hverfi bæjarins, Nausta- hverfi. Sólin skein í Eyjafirði í gær og fólk brosti því breitt við athöfnina; bæði vegna veðursins og þess að hafist var handa við nýja skólann. Það er SS Byggir sem sér um byggingu fyrsta áfanga skólans og var tækifærið notað í gær og skrifað undir samning þar að lútandi að viðstöddum leikskóla- börnunum af Naustatjörn og fólki úr hverfinu. Vinna við verkið hefst strax. Þessi fyrsti áfangi skól- ans á að vera tilbúinn eftir rúmlega eitt ár, 1. ágúst 2009 og kennsla hefst um haustið. Innangengt verður úr skólanum í leikskólann Naustatjörn og það var vel við hæfi að krakkarnir þaðan tækju þátt í athöfninni í gær; þegar Sigrún Björk stakk skóflunni í svörðinn mundaði hinn fríði vinnuflokkur af leikskólanum plast- skóflur sínar og gerði slíkt hið sama. Við hönnun Naustaskóla var stuðst við aðferð sem þróuð var í Bandaríkjunum og brúkuð hefur verið und- anfarin ár í nokkrum skólum, skv. upplýsingum frá bænum. Farið var í hugarflugsvinnu með það að mark- miði að tengja saman, í eina heild, skipulag skólastarfs- ins, hönnun byggingar og þátttöku grenndarsamfélags- ins í starfi nemenda. Leitað var eftir samstarfi við Tónlistarskólann, íþrótta- og tómstundadeild bæjarins, Íþróttabandalag Akureyrar, Akureyrarkirkju, leik- skóladeild, Amtsbókasafnið, Samtök atvinnulífsins, grunnskólakennara, foreldra og grunnskólabörn. Skóflustunga í sól og blíðu Bæjarstjóri og leikskólabörn hófust handa við Naustaskóla Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.