Skinfaxi - 01.04.1935, Síða 2
SKINFAXI
Frá sambandsstj órn.
Reikningur sambands U. M. F. í.
fyrir áriS1934 átti samkvæmt sambandslögum að birtast í
þessu hefti Skinfaxa. Þetta gat ekki orðið, vegna þess, að
fyrverandi sambandsgjaldkeri hefir enn ekki skilað gjald-
keraplöggunum i hendur viðtakanda, þrátt fyrir það, að 1%
ár er liðið frá sambandsþingi. Núverandi sambandsstjórn get-
ur því eigi gert yfirlit yfir raunverulegan hag sambandsins.
Sambandsmerki U. M. F. í.
fást hjá sambandsstjórn. Stjórnir félaganna geta fengið
þau í umboðssölu.
Ungmennasamhand Borgarfjarðar hefir gefið út fjölritað-
ar leiðbeiningar um skrásetningu og röðun bóka í bóka-
söfnum. U. M. F., sem vilja fá þær, geta sent pantanir til
Þorgils Guðmundssonar i Reykholti eða Björns Jónssonar
á Ölvaldsstöðum um Borgarnes.
íþróttabækur.
„líennslubók í leikfhni" og „Leikir fyrir heimili og skóla“
eru bækur, sem allir kennarar þurfa að eiga. Ennfremur
iþrótta- og ungmennafélög.
Fást hjá bóksölum og undirrituðum.
Aðalsteinn Hallsson,
fimleikakennari,
Laugaveg 19, Rvik.
SKINFAXI kemur út í tveimur heftum á ári, 10 ark-
ir árgangurinn. Fyrir ungmennafélaga er verð ritsins falið
i skatti þeim (kr. 1,00 á ári), er félögin greiða U.M.F.Í. —
Fyrir utanfélagsmenn kostar ritið kr. 3,00 á ári. Greiðist í
ársbyrjun.
Ritstjórn og afgreiðsla Skinfaxa:
Nýja barnaskólanum, Reykjavík.
Sími 4868. Pósthólf 406.