Skinfaxi - 01.04.1953, Síða 2
SKINFAXI
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Aðalfiinduf*
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands,
verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykja-
vík, laugardaginn 6. júní 1953 og hefst kl. 1,30 e. h.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmd-
um á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yf-
irstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur
fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga
til 31. desember 1952 og efnahagsreikning með at-
hugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar
og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um
skiptingu ársai'ðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað
þeirra sem úr ganga samkvæmt samþykktum
félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer,
og eins varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem
upp kunna að vera borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöf-
um og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í
Reykjavík, dagana 2.—4. júní næstk. Menn geta fengið
eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðal-
skrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný
umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrif-
stofu félagsins i hendur til skrásetningar, ef unnt er 10
dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en 26. maí 1953.
Reykjavík, 28. janúar 1953.
STJÓRNIN.