Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1973, Page 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1973, Page 1
Um aldamótin kvað Hannes Hafstein: Só ég í anda knör og vagna knúða krafti, sem vannst úr fossa þinna skrúða; stritandi vélar, starfsmenn glaða og prúða, stjórnfrjálsa þjóð með verzlun eigin búða. Hanncs Hafstein. Þjóðdáðin snjalla, Islendinga orkan, áfram upp hallann! Skin á tindum er. Áfram, svo mjallhvít, helköld hafisstorkan hopi að kalla og gljúpni fyrir þér. Jakob Thorarensen skáld isafold, 14. júlí 1915 Sem lútandi gestur á leigðri gnoð ei lengur vill Frónbúinn standa. Hann sjálfur vill ráða‘ yfir súð og voð og siglingu milli landa. Og íslenzkur fáni á efstu skal stöng af íslending dreginn, við frónskan söng, þá sýna erlendum svæðum vort sækonungsblóð i æðum. Hanncs S. Blöndal, skáld isafold, 2. apríl 1913 Það er bjart yfir Eimskipafélaginu f dag. Það er bjart yfir þjóð vorri, því að þetta félag er runnið af samúð allrar þjóðarinnar. Þjóðin hefir ekki aðeins lagt fé í fyrirtækið, hún hefir lagt það, sem meira er, hún hefir lagt vonir sfnar I það. Þetta fyrirtæki sýnir fremur öllu öðru, hvað vér getum áorkað miklu, er vér stöndum allir fast saman. Auknar samgöngur eru lykillinn að framtið vorri. Sigurður Eggerz, ráðherra Islands, 16. april 1915. H.F. EIMSKIPAFELAG ISLANDS Brautryðjandi íslenzkra samgöngumála. Siglingar eru nauðsyn Hlutverk Eimskipafélagsins hefur frá upphafi verlð fyrst og fremst að bæta samgöngur. Eimskipafélagið er félag allra landsmanna, hluthafar eru um 11 þúsund. Vöxtur félagsins og viðgangur er þáttur í bættum iífskjörum þjóðarinnar.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.