Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1992, Side 11
REYNSLA EÐA REIKNIFORMULUR
inn í ljós árangurinn af ræktuninni, en
allur fjöldi norskra fræðimanna er á
þeirri skoðun að þessi fiskgengd nú
standi ekki í neinu sambandi við frið-
un né verndun og viðurkenna að
kenningarnar þurfi að endurskoða frá
grunni.
Sú skoðun á sér raunar þó nokkra
fylgismenn innan stofnunarinnar við
Skúlagötuna, en hvort sem menn trúa
því eða ekki, þá leggja þeir ekki í, at-
vinnuöryggis síns vegna, að koma op-
inberlega fram með skoðun sem er í
andstöðu við þá sem æðstu menn
stofnunarinnar hafa ákveðið að halda
til streitu.
Sjaldgæf forréttindi
Ótrúleg sýndarmennska hefur
komið fram í störfum Hafró ogsjávar-
útvegsráðherra að undanförnu. Haf-
ró sendi alþjóða hafrannsóknaráðinu
niðurstöður úr mælingum sínum hér
við land, vel vitandi að þar eru notaðar
sömu reikniformúlur við að reikna út
ráðgjöftna. Þetta virðist gert til þess að
gera starfsmenn ráðsins að vondu
köllunum í augum Islendinga, því að
sjálf kom svo Hafró nokkrum dögum
VEIST ÞÚ
að krafan í dag er að allar vogir
og mælitæki sem notuð eru við viðskipti
skulu vera löggilt?
Er vogin þín löggilt?
Er mælirinn þinn löggiltur?
Gættu að því!
Nákvæmni, þekking, gæði
LÖGGILDINGARSTOFAN
The lcelandic Bureau of Legal Metrology
SÍÐUMÚLA13 - PÓSTHÓLF 8114 - fS-128 REYKJAVÍK SÍMI 91-681122
11