Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1992, Side 35
UREINUIANNAÐ
NOTA FISKKÖR FRÁ
SÆPLASTI
mikla áhættu fólgna í að senda svo
lítið skip til úthafsveiða þar sem hver
túr getur tekið upp í rnánuð. En
bræðurnir hafa búið skipið öllum
hugsanlegum tækjum og veiðarfær-
um sem völ er á og eru bjartsýnir á
að lilraunin takist.
NÝIR
HLÍFÐAR-
GALLAR
Þeir hjá fataverksmiðjunni Max eru
stöðugt að koma fram með ýmsar
nýjungar sem ekki síst henta sjó-
mönnum vel. Nú hefur Max hafíð
sölu á nýjurn hlífðargöllum þar sem
áhersla er lögð á að sameina gæði,
þægindi og hönnun.
Annars vegar er unt að ræða galla
með sniði sem nefnist 466 og er
sérhannaður fyrir fískimenn og aðra
sem vinna til sjós, en hentar líka vel á
mörgum öðrum vinnustöðum. Ytra
byrðið er vind- og vatnsþétt og allur
gallinn er vattfóðraður. Hann er
með áfastri hettu, hvítum endur-
skinsborða framan á öxlunum og á
bakinu, hliðarraufum og hliðarvös-
um sem lokast með rennilás. Breitt
speldi að framan hylur rennilásinn
og hindrar að vatn smjúgi inn.
Hins vegar er hlífðargalli nteð sniði
sem nefnist 180 og er nteð ytra byrði
úr næloni og styrktur á hnjám og
öxlum. Efri hluti gallans er loðfóðr-
aður en ermar og skálmar vattfóðr-
aðar til að auðvelda eðlilegar hreyf-
ingar auk þess sem gulir endurskins-
borðar eru á gallanunt. Max sér um
sölu á þessum göllum hérlendis en
þeir eru framleiddir í Noregi.
Frönsku bræðurnir með litla úthafs-
togarann, sem sagt er frá hér að
framan, segjast spara sent svarar eitt
hundrað þúsund krónurn á hvern
túr með því að nota fiskkör frá Sæ-
plasti hf. á Dalvík. Útgerðin hefur
keypt 60 460 lítra kör frá Sæplasti.
Sæplasti hefur gengið vel að mark-
aðssetja fiskkörin í Frakklandi og
hefur fyrirtækið þá sérstöðu meðal
erlendra keppinauta á þessu sviði að
Sæplastsmenn hafa náið samstarf við
útgerðarmenn og skipstjóra með
heimsóknum og viðtölum meðan
aðrir framleiðendur láta sér nægja að
senda bæklinga til útgerðarfyrirtækja
í Frakklandi.
Þess ntá geta að fyrir skömmu var
100.000. fiskkarið framleitt hjá Sæ-
plasti og var fulltrúum nokkurra
stærstu viðskiptavina þess boðið
norður af þessu tilefni.
Nýja Vestmannaeyjaf erjan Herjólf ur kom í
fyrsta sinn til heimahafnar á annan í hvíta-
sunnu. Skipið þykir hið glæsilegasta í alla
staði. Það tekur 480 farþega og 62 fólks-
bíla eða 39 fólksbíla og fimm vöruvagna.
Herjólfur var smíðaður í Flekkef jord í Nor-
egi og kostaði um 1200 milljónir króna.
Siglingatími milli Eyja og Þorlákshafnar
verður um tvær og hálf klukkustund. Skip-
stjóri er Jón Eyjólfsson en áhöfnin verður
um 16 manns.
35