Fréttablaðið - 28.07.2009, Blaðsíða 30
22 28. júlí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. vanþóknun, 6. pot, 8. sauðagarnir,
9. fálm, 11. 2000, 12. rými, 14. flækja,
16. halló, 17. hópur, 18. máleining,
20. fyrir hönd, 21. titra.
LÓÐRÉTT
1. dægurlagatónlist, 3. tveir eins, 4.
skipafélag, 5. angan, 7. raddfæri, 10.
blekking, 13. sunna, 15. sjá eftir, 16.
hungurvesöld, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. svei, 6. ot, 8. vil, 9. pat,
11. mm, 12. pláss, 14. flóki, 16. hæ,
17. lið, 18. orð, 20. pr, 21. riða.
LÓÐRÉTT: 1. popp, 3. vv, 4. eimskip,
5. ilm, 7. talfæri, 10. tál, 13. sól, 15.
iðra, 16. hor, 19. ðð.
„Tvíhöfði samdi við mig á föstu-
dag og verður á Kananum í allan
vetur. Um leið sömdum við um að
Tvíhöfði lýsi HM 2010 í fótbolta –
þannig að á ákveðinn hátt eru þeir
þeir fyrstu sem eru ráðnir á íþrótta-
deild Kanans,“ segir Einar Bárðar-
son athafnamaður og skríkir – hlær
sínum einkennandi hlátri.
Fréttablaðið greindi frá því að
Kaninn, útvarpsstöð sem Einar er
að koma á fót, muni hefja útsend-
ingar í september. Einar er að
teikna upp dagskrá og fyrstu menn-
irnir sem hann mynstraði á Kanann
sinn eru þeir Sigurjón Kjartansson
og Jón Gnarr – tvíeykið sem mynd-
ar Tvíhöfða. Í nýjasta tölublaði Séð
og heyrt eru getgátur um hvaða
útvarpsmenn munu koma að málum
og nöfn á borð við Gulla Helga og
Axel Axelsson voru nefnd en Einar
segir: „Ekkert af þessum nöfnum
er ON.“
Sigurjón útskýrir að þáttur Tví-
höfða á Kananum verði vikulega
og á laugardögum. „Einar byrjar
á stóru nöfnunum,“ segir Sigurjón
en harðneitar að tjá sig um hversu
mikið þessi stóru nöfn kosta Einar.
Nýverið sendi Tvíhöfði frá sér
diskinn „Gubbað af gleði“ og í við-
tölum af því tilefni kom fram í máli
þeirra megn óánægja með stöðuna
í útvarpsmálum. Sigurjón sagði að
Ísland væri þannig að þar kæmi
ekki maður í manns stað og einkum
virtist Jóni áfram um að ráða brag-
arbót á því með því að sigla aftur
á öldur ljósvakans – meðan Sigur-
jón virtist tregari í taumi. „Já, að
vera daglega í útvarpinu … Ég er
ekki maður í það. En sem betur fer
hefur ekkert slíkt komið upp í þess-
um vangaveltum. Skemmtilegra er
að vera vikulega. Maður hefur þá
tíma til að sinna öðrum hugðar-
efnum.“ Að sögn Sigurjóns verður
þráðurinn tekinn upp þar sem frá
var horfið. „Við höfum átt svo mörg
„kombökk“ en það er þá alltaf eins
og við höfum hvergi farið.“
jakob@frettabladid.is
SIGURJÓN KJARTANSSON: EINAR BYRJAR Á STÓRU NÖFNUNUM
Tvíhöfði ræður sig á Kanann
AFTUR Á ÖLDUR LJÓSVAKANS Hlustendur mega búast við svipuðum efnistökum og
þeir þekkja af hálfu Tvíhöfða þegar hann fer í loftið í september. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Myndin er tilbúin og við vorum með forsýn-
ingu í London. Prufusýning fyrir útlendinga.
Þar var meðal annarra Rhys Ifans sem lék í
Notting Hill og fleiri myndum. Hann hélt ekki
vatni yfir frammistöðu vinar síns, Stefáns
Jónssonar leikara,“ segir Ingvar Þórðarson
kvikmyndaframleiðandi.
Að sögn Ingvars tókst prufusýning kvik-
myndarinnar Reykjavik Whale Watching
Massacre vel og leggst vel í útlendingana. En
einkum voru Ingvari minnisstæð viðbrögð
leikarans Rhys Ifans sem átti óvænt leið
hjá kvikmyndasalnum og var umfsvifalaust
„shanghæjaður“ í salinn. Ifans var samskóla
Stefáni Jónssyni leikara í London og tókst
með þeim ágætur vinskapur og munu þeir
hafa leigt saman á tímabili. „Hann bað fyrir
kæra kveðju til Stebba. Á íslensku án hreims
svohljóðandi: „Farðu í rassgat!“ Og svo skelli-
hló hann – elskar greinilega Stefán, sinn
gamla skólabróður, heitt,“ segir Ingvar.
Fréttablaðið greindi nýverið frá því að
nokkur fjöldi íslenskra kvikmynda er á leið
á hvíta tjaldið. Ingvar segir ljóst að RWWM
verði fyrst þeirra en frumsýning er áætluð
4. september. „Myndin kostaði 250 milljónir.
Við náðum því þótt gengið væri okkur óhag-
stætt.“ Íslenskar myndir njóta yfirleitt þess
að bíógestir eru forvitnir að sjá hvað land-
ar þeirra hafa upp á að bjóða. Ingvar segist
engar áhyggjur hafa af hugsanlegu offram-
boði. „Ekki endilega. Þetta eru gerólíkar
myndir sem eru væntanlegar. Og svo er það
þetta gamla sagan um að góð mynd hjálpar
en slæm slær á áhugann. Þegar Björk sló í
gegn jók það áhugann á íslenskri tónlist. Þetta
er bara spurning um gæðin. Okkar mynd er
sú fyrsta sinnar tegundar. Spennumynd með
hrollvekjuívafi. Túristar fara í hvalaskoðun
sem fer ekki vel.“ - jbg
Rhys Ifans elskar Stebba sinn Jóns heitt
INGVAR OG IFANS Leikarinn Rhys Ifans var viðstaddur
prufusýningu RWWM úti í London og var ánægður,
sérstaklega með frammistöðu síns gamla skólabróður
og vinar, Stefáns Jónssonar.
„Já, það getur sannarlega verið
erfitt að tilheyra ferðamálageiran-
um íslenska,“ segir Jónas Freydal
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Goecco Walks ferðaþjónustunnar
– sem meðal annars hefur brydd-
að upp á nýstárlegum og vel heppn-
uðum draugagöngum um Reykja-
vík.
Jónas brá sér til hinnar fögru
Flateyjar með fjölskyldu sinni á
dögunum – til fuglaskoðunar. En
fuglaskoðunin tók á sig aðra mynd
en Jónas hugði strax við komuna
til eyjarinnar. „Þegar við nálguð-
umst Flatey með ferjunni Baldri,
ásamt hópi erlendra túrista, kom
smátt og smátt í ljós að það var
nokkur atgangur á bryggjunni.
Þar voru menn að drepa lunda,
gera að honum og hentu hræjun-
um í höfnina. Þar flaut lundaham-
ur í stórum stíl og svo mikið fékk
þetta á ferðamennina að einhverj-
ir þeirra hreinlega brustu í grát.
Hvað skal segja annað en að ferða-
þjónusta á Íslandi er komin skelfi-
lega skammt á veg,“ segir Jónas
– og það tekur á hann að lýsa þess-
ari ömurlegu aðkomu því honum
er sannarlega vel við Flatey og
þá sem þar búa. Og tekur fram að
hann hafi ekkert á móti veiðum
svo fremi að þær séu innan skyn-
samlegra marka.
- jbg
Skælandi túristar í
fuglaskoðun í Flatey
SKÆLANDI TÚRISTI Svo mikið fengu
lundahræin í Flateyjarhöfn á þennan
unga ferðalang að hann brast í grát.
MYNDIR/JÓNAS
LUNDAHAMUR Í HÖFNINNI Hún var ekki
skemmtileg aðkoman en þegar ferða-
menn bar að garði voru heimamenn í
óðaönn að hamfletta lunda.
„Ég hef engar græjur eða iPod
í vinnunni, bara útvarp. Ef það
er kveikt á því er það alltaf stillt
á Rás 1 eða Rás 2, oftast 2. Það
eru einfaldlega einu útvarps-
stöðvarnar sem vit er í.“
Ástbjörg Rut Jónsdóttir, sviðslistakona
og táknmálstúlkur, vinnur í sumarstarfi
hjá ÍTR.
Héraðsdómur sýknaði á dögun-
um íslenska ríkið af kröfu Hrafns
Gunnlaugssonar um skaðabætur
vegna meiðsla sem
hann hlaut í árás
sem hann mátti sæta
fyrir nokkrum árum á
Gíbraltar – en þá réðst
á hann gengi mótor-
hjólamanna þannig
að Hrafn stórslas-
aðist. „Svokallaðir
pönks,“ sagði Hrafn
á sínum tíma í samtali við blaðið.
Málið þykir snúið, varðar milli-
ríkjasamninga og svo sérstætt að
Hrafn hlaut gjafsókn í því. Þrátt fyrir
dóminn eru Hrafn og lögmaður
hans, Óðinn Elíasson, hvergi nærri
af baki dottnir og hafa tekið um
það ákvörðun að áfrýja málinu til
Hæstaréttar.
Á laugardag var sagt frá því hér í
blaðinu að Norðmenn bókstaflega
flykkjast til Jónínu
Ben í detox-með-
ferð. Þeirra á meðal
Aste Hunnes Sem,
Idol-stjarna í Noregi,
sem lofar og prísar
meðferðina í
hástert. Hins vegar
var missagt að
Ásta hefði sigrað
Idolið í Noregi árið
2007, svo var ekki
þótt vissulega hafi hún verið meðal
keppenda.
Daníel Ágúst Haraldsson hefur
jafnan mörg járn í eldinum í
tónlistarsköpun sinni. Auk þess að
spila með Ný dönskum og Esju er
hann ekki hættur að gera tónlist í
eigin nafni. Eins og flestir muna gaf
Daníel út fyrstu sólóplötu sína árið
2005, Swallowed a Star,
og nú virðist ætla að
verða framhald þar á.
Að minnsta kosti fréttist
af söngvaranum með
Bjarna úr Mínus við
upptökur í Vest-
mannaeyjum um
helgina. - jbg, hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Opið virka daga kl. 8:00 til 17:00
www.velaland.is
VESTURLANDSVEGUR
VAGNHÖFÐI
VÉLALAND
HÚSGAGNA-
HÖLLIN
TANGARHÖFÐI
BÍlDSHÖFÐI
H
Ö
FÐ
A
B
A
K
K
I
REYKJAVÍK
Vélaland - VAGNHÖFÐA 21
Sími 577-4500
Vélaland sérhæfir sig í tímareimum.
Komdu í Vélaland og fáðu ráðgjöf um skiptingu
á tímareim. Vélaland skiptir fljótt og vel um
tímareimina fyrir þig, á föstu verði.
Fáðu ráðgjöf um tímareimaskipti
Er tímareimin komin á tíma?
Fast verð hjá Vélalandi
Skoðaðu fast verð hjá Vélalandi. Hringdu
núna í síma 577-4500 og pantaðu tíma.
Verðdæmi um tímareimaskipti:
Nissan Patrol 2,8 dísil Árgerð 1992-2000
Heildarverð, varahlutur og vinna: 49.088 kr.
Toyota Land Cruiser 90 3,0TD Árgerð 1997-2002
Heildarverð, varahlutur og vinna: 36.925 kr.
Toyota Corolla 1,6 bensín Árgerð 1997-2001
Heildarverð, varahlutur og vinna: 35.987 kr.
VW Golf 1,6AEE bensín Árgerð 1997-2006
Heildarverð, varahlutur og vinna: 46.774 kr.
Ford Focus 1,6 bensín Árgerð 1998-2005
Heildarverð, varahlutur og vinna: 38.948 kr.
Sjáðu hvar við erum. Hringdu núna í síma
577-4500 og pantaðu tíma.