Samvinnan - 01.05.1963, Síða 11
DAGBLAÐ
Kringum mánaðamótin febrúar-
marz kom í bókabúðir skáldsaga eft-
ir ungan höfund, Baldur Oskarsson,
blaðamann hjá Tímanum. Ber hún
heitið Dagblað og fjallar, eins og
nafnið bendir til, um líf og starf
blaðamanns við dagblað í Reykjavík.
—- Er höfundur gjörkunnugur þeim
vettvangi, enda fer honum dável úr
hendi að vinna úr þeim efnivið, sem
þar er boðið upp á.
Sagan er skrifuð í harðsoðnum stíl
og áhrifin frá Hemingway og þó eink-
um Indriða G. Þorsteinssyni eru
mjög auðsæ. Þó hefur höfundi tekist
að móta sér ákveðin sérkenni í máli
og stíl. Tekst honum sumsstaðar að
skapa allsterk áhrif, ekki sízt í fyrsta
hluta sögunnar og þó einkum í loka-
þættinum. Má fullyrða, að með þess-
ari sögu hafi Baldur trvggt sér sæti
framarlega á bekk meðal íslenzkra rit-
höfunda af yngri kynslóðinm.
Dagblað er önnur bók Baldurs,
hin fyrri var Hitabylgja, smásagna-
safn er kom út 1960. Þá hefur Bald-
ur skrifað margt greina í blöð, eink-
um í Tímann, og fengist \ið ljóða-
þýðingar, meðal annars úr spænsku
eftir García Lorca. — Hin nyja bók
er 125 blaðsíður að stærð, í meðal-
stóru broti og gefin út af Bókaútgáf-
unni Fróða. Prentunina hefur Prent-
smiðja Jóns Helgasonar annast.
dþ.
Kjartan Sæmundsson
Fæddur: 6. apríl 1911 Dáinn: 24. apríl 1963
Á síðasta degi nýliðins vetrar,
sem mörgum varð þungbær um það
lauk, hné óvænt og skyndilega í
valinn einn geðþekkasti starfs- og
trúnaðarmaður íslenskra sam-
vinnusamtaka, Kjartan Sæmunds-
son, kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Reykjavíkur og nágrennis. Hafði
hann komið úr verzlunarferð frá
útlöndum þá um morguninn, geng-
ið þegar til vinnu sinnar glaður og
hress, að því er virtist og var síð-
degis á leið til skrifstofu sinnar, er
hann féll niður og var þegar ör-
endur.
Kjartan var Norðlendingur,
fæddur í Ólafsfirði 6. apríl 1911.
Foreldrar hans voru hjónin Magnea
Magnúsdóttir og Sæmundur Steins-
son verkstjóri. Innan við 10 ára
aldur flutti hann til Akureyrar með
foreldrum sínum og unglingspilt-
ur aðeins 16 ára að aldri réðist hann
til KEA og varð þar fljótlega deild-
arstjóri. Ávann hann sér þegar
traust og vinsældir allra. Þegar svo
skyggnzt var um eftir æskilegum
manni til vandasamra starfa fyrir
SÍS erlendis 1942, atvikaðist það
einhvern veginn svo, að einmitt
Kjartan Sæmundsson varð fyrir
valinu. Vann hann þá næstu 4 árin
vestur í Ameríku við vöruinnkaup
fyrir landsmenn. Eftir heimkom-
una varð Kjartan deildarstjóri í
Búsáhaldadeild SÍS árum saman,
seinna fulltrúi framkvæmdastjóra
Innflutningsdeildar og verzlunar-
stjóri í SÍS Austurstræti, unz hann
tók við kaupfélagsstjórn í KRON
1. október 1957. Þann dag átti
Kjartan réttra 30 ára afmæli sem
starfsmaður samvinnusamtakanna
í landinu. Síðan eru liðin 5y2 ár.
Þannig helgaði þessi mæti maður
samvinnuhugsjóninni dýrmæta
starfsævi sína óslitið.
Það var þráfaldlega ekki heiglum
hent að standa í sporum Kjartans,
hvorki að afköstum né vanda. Ekki
sízt mun hafa reynt á starfsþrek
hans og hæfni eftir að hann hafði
tekið við þeim mikla vanda, sem
forsjá KRON lagði honum á herðar.
En Kjartan lagði sig allan fram og
var vakinn og sofinn í örðugu hlut-
verki sínu. Var samvizkusemi hans
og dugnaður með einsdæmum.
Skeði þá hvort tveggja, að hagur
og gengi félagsins batnaði frá ári
til árs og vinsældir kaupfélags-
stjórans uxu, en gengið mun þá
hafa á persónuleg verðmæti hans
sjálfs: heilsu og þrótt, þótt þessum
árvaka hugsjónamanni yrði það
ekki sýnilegur fjötur um fót. Hann
var seint og snemma borinn uppi af
brennandi áhuga fyrir samvinnu-
félagslegum framförum til lífsbóta
fyrir almenning.
Kjartan Sæmundsson var hinn
hugljúfasti maður í allri umgengni,
drenglundaður, góðviljaður, lítillát-
ur og manna prúðastur. Það fór
þess vegna ekki hjá því, að vin-
sældir hans yrðu miklar og varan-
legar. Hann var einn af þeim mönn-
um, sem með mannkostum sínum
og lífsviðhorfum fegra og bæta lífið
svo langt sem áhrif þeirra ná.
Kvæntur var Kjartan Ástu
Bjarnadóttur Benediktssonar frá
Húsavík, hinni ágætustu konu.
Eignuðust þau fjórar dætur, sem
enn eru í bernsku. Heimilisfaðir var
Kjartan hinn ágætasti eins og að
líkum lætur um slíkan mannkosta-
mann.
Mætti ég mæla við vin minn,
Kjartan, veit ég ekki nema ég segði
með Matthíasi:
Gott er að eiga góða frændur,
betra sjálfum sér braut að ryðja —
bezt er að lifa sem lifðir þú,
hógvær og prúður heiðursmaður.
Skarð Kjartans Sæmundssonar í
forystusveit íslenzkra samvinnu-
manna stendur ennþá ófyllt og
opið. Baldvin Þ. Kristjánsson.
SAMVINNAN 11