Verklýðsblaðið - 06.12.1930, Síða 1

Verklýðsblaðið - 06.12.1930, Síða 1
VERKLYÐSBIAÐIÐ ÚT<3EFANDi:JAFNA®ARMANNAFJEIA<il©„SI>ARTA*‘ jf I. árg. Reykjavík 6. desember 1930 19. tbl. Avarp til íslenskrar alþýðu fr!á Kommúnístaflokkí Islands Dagana 29. nóvember til 3. desember var haldið í Reykjavík stofnþing Kommúnistaflokks íslands. Fulltrúar voru frá flestum deildum flokks- ins, sem nú eru 8, víðsvegar um landið. Með stofnun Kommúnistaflokks hefir ísleiizk- ur verkalýður stígið örlagaríkasta og djarfasta sporið. — Einhver merkustu tímamótin í sögu verkalýðshreyfingar hyers lands hafa jafnan verið, þegar verkalýðurinn hefir skapað sér kommúnistiska forustu í skipulagsbundnum flokki. öxin er þegar reidd að rótum trjánna. Tím- inn er þegar kominn fyrir íslenzka alþýðu, að vígbúast til úrslitahríðar gegn auðvaldinu. Á sjötta hlutanum af yfirborði jarðarinnar rís hið volduga ríki jafnaðarstefnunnar og ógnar hin- um hrörnandi auðvaldsheimi með yfirburðum sinum. Nýlenduþjóðiraar rísa gegn kúgurum »ínum og fylgja dæmi stéttabræðranna í Ráð- st j órnarrík j unum. 1 Kína hafa tugir miljóna dregið hinn rauða fána við hún og stofnað ráðstjórnarvöld. Til þess að kæfa jafnaðarstefnuna í fæðing- unni, til þess að bæla niður voldugustu menn- ingaröflin, sem veraldarsagan þekkir, til þess að brjóta niður til grunna einhver hin stórkost- legustu mannaverk, sem ráðist hefir verið í og sögur fara af, hervæðist nú allur auðvaldsheim- urinn. Nú er það full sannað að stórveldin hafa verið staðráðin í því, að ráðast á Ráðstjómar- ríkin á næsta vori, með öllum sínum blóðhund- um. Til þess hafa öll múgmorðin í Finnlandi, Póllandi, Indlandi og víðar verið framin. Til þess hefir „jafnaðarmaðurinn“ MacDonald, flokksbróðir Jóns Baldvinssonar, Héðins Valdi- marssonar og Ólafs Friðrikssonar og allra þess- ara herra, látið fara með báli og brandi um hér- öðin á landamærum Indlands og Ráðstjórnar- ríkjanna, látið gjöreyða heilum þorpum o.s.frv. Fremstu mennimir í öllu þessu glæpsamlega athæfi eru foringjar II. Internationale, alþjóða- sambandsins, sem Alþýðuflokkurinn er í og hef- ir fé sitt frá. Foringjar Alþýðuflokksins eru samábyrgir öllu þessu athæfi. Á íslandi ei’ auðvaldið komið inn á síðasta þróunarskeið sitt, skeið hringa- og fjármála- auðvaldsins, skeið hins hnignandi, deyjandi auð- valdsskipulags. Erlent i'isaauðmagn leggur und- ir sig landið í æ ríkara mæli, tengist blóðbönd- um við íslenzkt auðmag-n og gerir íslenzka borg- arastétt sér háða. í bandalagi við erlent hringa- og fjármála- auðvald og stjómir stórveldanna fjandskapast íslenzk borgarastétt við verkamenn og fátæka bændur, svíkur í sjálfstæðismálunum, daðrar við danska stórveldastefnu og konungsvald, selur landið og auðlindir þess — sem allt á að vera eign hinna vinnandi stétta — erlendu auð- magni — allt í þeim tilgangi, að auðga sjálfa sig og stéttabræður sína í öðrum löndum á kostn að íslenzkra verkamanna og bænda. Verkamenn og bændur þræla liðlangan daginn, frá morgni tií kvölds, við fiskveiðar, eyrarvinnu, landbún- að, iðnað o. s. frv., fyrir smánarlaun, við ill- an aðbúnað og stopula atvimiu, en auðmanna- stéttin gæðir sér á /ávöxtum strits þeirra, rak- ar saman miljónagróða og flytur á hverju ári út úr landinu miljónir króna í mynd vaxta af erlendum lánum og annars gróða erlendum auð- mönnum til handa, sem marinn er undan nögl- um íslenzkrar alþýðu. Auk þess veltir auð- mannastéttin drepþungum skattabyrðum á herð ar vinnustéttanna, en er sjálf með sínum gíf- urlegu tekjum skattfrjáls að kalla, borið saman við það, sem hvílir á alþýðu manna. Um allt þetta eru sósialdemokratar Alþýðu- flokksins samábyrgir og meðsekir. Þeir styðja Framsóknarstjórnina, sem ötullegast hefir gengið fram í því, að beita ríkisvaldinu í bar- áttu auðvaldsins gegn verkalýðnum. Að laun- um hefir auðvaldið trúað þeim fyrir hinum á- bvrgðarmestu stöðum. Eitthvert bezta táknið um samvinnuna milli borgaraflokkanna allra, íhaldsmanna, framsóknarmanna og sósialdemo- karta, er hin sameiginlega stjórn þeirra á Út- vegsbankanum. Þar með hafa sósialdemokrat- ar gerst samábyrgir um auðvaldsrekstur út- gerðarinnar, og tekið að sér innheimtuna á blóð- sköttum erlends fjármálaauðmagns. Samtímis eru sósíaldemókratar beinir erindrekar heims- hringanna, sem sogið hafa sig fasta á líkama ís- lenzkrar alþýðu. I fullu sami'æmi við þessa algerðu samábyrgð sósíaldemókrata með auðvaldinu og ríki þess, þverbrjóta þeir sína eigin stefnuskrá og hjálpa hinum borgaraflokkunum til að hækka enn meir hinar óbærilegu tollabyrðar, sem hvila á verka- lýð og bændum. Og svo kemur þúsundárahátíðin, þessi alls- herjar vígsluathöfn stéttasamvinnunnar, þar sem höfðingjar íhaldsflokksins, Framsóknar- flokksins og Alþýðuflokksins sitja til borðs með fulltrúum finnsku og ítölsku fasistaböðlanna og sverjast í fóstbræðralag. ‘ í fullu samræmi við hina nýju stefnu sína, stefnu samvinnunnar við auðvaldið, fylltu sósí- aldemókratar mæli synda sinna með því að ganga til beins klofnings á alþýðusamtökunum, á þingi Alþýðusambandsins, því sem nú er um gárð gengið. Á þingi þessu samþykktu þeir: 3 . Að gera kommúnista réttlausa í öllum verklýðs- félögum innan Alþýðusambandsins, sem auð- vitað myndi, ef framfylgt væri, þýða sama sem brottrekstur allra félaga, sem kjósa kommún- ista í trúnaðarstöður, þar á meðal allra verka- lýðsfélaga í Norðlengingafjórðungi og í Vest- mannaeyjum. 2. Að stofna við hlið verklýðs- sambandanna í fjórðungunum ný sambönd, með þeim fáu félögum, sem eru innan Alþýðuflokks- ins. I þessum nýju samböndum ætla sósíaldemó- kratar að tryggja sér yfirráðin. Þannig á að sundra samtökunum, sem verkalýðurinn hef- ir myndað með sér i fjórðungunum. 3. Að banna jafnaðarmannafélögunUm að hafa kom- múnista innan vébanda sinna. Þetta merkir, að flest jafnaðarmannafélög á landinu, að undan- teknu „Jafnaðarmannafél. íslands“ í Reykjavík, sem er einkafélag sósíaldemókrata, verður að uppleysa og tvístra gjörsamlega, ef fyrirskip- unum sósíaldemókrata væri hlýtt. 4. Að reka ✓jafnaðarmannafjel. Vestmannaeyja úr Alþýðu- sambandinu, en taka í þess stað inn í samband- ið, félag verklýðssvikaranna og verkfallsbrjót- anna í Eyjum: „Jafnaðarmannafél. Þórs- hamar“. Þegar sósíaldemókratar höfðu framið allt þetta, lögðu fulltrúar kommúnista fram yfir- lýsingu þá, sem birt er hér í blaðinu. Kommúnistaflokkur íslands mun gera allt, sem hann megnar, til að verja samtakaheild ísl. alþýðu gegn yfirgangi og sundrunai’tilraunum sósíaldemókrata. Kommúnistar munu vinna að því af alefli, að verkalýðsfélögin standi kyr í Alþýðusambandi fslands, hvaða sundrunar- tilraunir, sem á kunna að dynja. Þeir munu og vinna að því að verkalýðsfélög þau, sem standa utan Alþýðusambandsins gangi inn í það. Ekki vegna þess að Alþýðusambandið, eins og því er nú stjórnað, geti orðið þeim-nokkur styrkur í stéttabaráttunni, heldur vegna hins, að það ríð- ur á því, að verkalýðurinn standi allur samein- aður, hverju sem fram vindur. Sameinaður verður verkalýðurinn að hrinda af sér yfirráð- um sósíaldemókrata. Jafnframt mun Kommun- istaflokkur íslands í samvinnu við róttæk verkalýðsfélög um land allt, halda áfram, enn ctullegar en áður, baráttu sinni fyrir því, að allur verkalýður á íslandi sameinist í eitt alls- herjar verklýðssamband á grundvelli stétta- baráttunnar. Samtakaheildin má undir engum kringum- stæðum rofna. Baráttan gegn sósíaldemókröt- um, er um leið barátta gegn sundrun íslenzkr- ar alþýðu. Þessvegna hefir stofnþing kommún- istaflokks fslands samþykkt eftirfarandi til- lögu: „Kommúnistaflokkur íslands mun að svo miklu leyti sem kostur er, starfa, sem heild inn- an Alþýðusambands íslands og hvetur deildir sínar til að sækja um upptöku í sambandið". Vinnandi menn og konur til sjávar og sveita! Hörð atvinnukreppa er fyrir dyrum. Með hverri vikunni, sem líður flækjast íslenzkir at- vinnuvegir fastar í net heimskreppunnar. Það merkir atvinnuleysi og neyð fyrir verkalýðinn. Það, merkir nýja sókn af hendi atvinnurekenda til að lækka hin smánarlegu verkalaun og þyngja drápsklyfjar tollanna. Þessvegna þurfa hinar vinnandi stéttir að búast til gagnsóknar á grundvelli baráttustefnuskrár Kommúnista- flokksins, sem fylgir þessu blaði. Þessvegna þurfa vinnustéttirnar að skipuleggja sókn sína og skapa sér forustu. Gerið kommúnistaflokk- inh að flokki hins vinnandi fjölda til sjávar og sveita! Verkamenn og fátækir bændur! Sameinist um baráttustefnuskrá Kommún- istaflokks íslands!

x

Verklýðsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.