Spegillinn


Spegillinn - 01.05.1937, Síða 6

Spegillinn - 01.05.1937, Síða 6
SPEGILLINN XII. 9. Leiðari vor. þu. oeitir w évf þárt það Jltnr 6elnrúl-fynr koSr\\y\ji<xrr\c\r. f «3 ekk‘ fet fyij en é_S *2S bvAújn ílÍ fá k^up'tcT rni4f ■fysv* m <xt >•. Vjer höfum nú um rúmlega ellefu ára skeið verið að botnvelta því fyrir hvarmatýrum sálar vorrar, hvort það gæti ekki verið grín að taka upp siðu og háttu annara pólitískra blaða, hvað það snertir að hafa ,,leiðara“ í blaði voru, enda þótt náttúrlega blaðið í heild sinni megi heita leiðai'i þjóðar- innar. Að vísu veit nú enginn kjaftur, hvað ,,leiðari“ í blaði er, nema þeir sjeu kallaðir svo af því hvað þeir eru leiðinlegir, samt ætlum vjer að láta til leiðast að prófa að hafa einu sinni leiðara í blaði voru, enda þótt fyrir- mynd vor — Lögbirtingur — hafi þá að vísu aldrei. En það er altaf ómaks- ins vert að reyna einn og athuga svo áhrif hans og verkanir á þjóð vora og stjórnmálaviðhorfið, eins og þeir kalla það „þessir helstu“. Stjórn vor hefir nú gert sjer lítið fyrir og rifið Alþingi í tuskur þær, sem það er samansett af — eða með öðrum orðum leyst það upp í sín svo- kölluðu atóm. Þarf ekki að taka það fram, að þarna erum vjer alveg sam- mála stjórninni, eins og reyndar í öllu, sem hún gerir. Þinglaus stjórn er ein- föld — eða einvöld — og er ekki nema mátulegt, að Thorsarar og Magnús dósent og aðrir þvílíkir geti ekki rif- ið kjafti út úr hverjum skilding, sem hún krækir í handa oss fylgismönnum sínum, eða öðru, sem hún gerir. Það er ekki svo mikið, að sjálfur fjármála- ráðherrann megi að vítalausu borða einn lunch (sem ekki kostar ríkið neitt nema kannske einhverjar smá-konses- sjónir), án þess að þessir beinhákallar þurfi að hvessa klærnar og ýfa kamb- inn. Þegar nú þar við bætist, að Hjeð- inn, þessi gamla húðarmeri, og Sig- urður saltari (móts. dósent, sem mun þýða niðursuðumaður) byrja líka að skegla sig, ja, hvurn sjálfan átti þá Islands garð um sagnfræðilegan þjóð- ernisrembing, ályktar fundurinn, að allur slíkur rembingur, sem fyrir kann að finnast, sje Arnóri að kenna“. Þessi tillaga var samþykt í einu hljóði. Sagnfræðingur vor. stjórnin þá annað að gera en rífa þingið og rífa þar með sjálfa sig út úr öllu saman. Það er líka alveg óttalegt að hugsa sjer þessa tannhvössu skíðishvali koma í einni torfu og veitast að jafn saklausum svetapípum og ráðherrar vorir eru og hafa alla tíð verið. Átti kannske að láta Pjetur drepa Iier- mann í mjólkurmálinu með því að segja hann ljúga, og kanski fá Strandamenn til að trúa því, eða átti að láta Ólaf Thórs draga verksmiðju- leyfið eins og hverja aðra eiturtönn út úr Haraldi, og kanski ríkisera því í viðbót, að snuðið hrykki ofan í Eystein. Snuð kosta minst 25 aura og það í er- lendri valútu, og það er meira en vjer þolum, eins og greiðslujöfnuðurinn stendur, og stendur hann þó með besta móti nú, einmitt fyrir tilverknað sama Eysteins. Vjer segjum nei og aftur nei! Það átti að rífa svona lagað þing í hengla! Og enda þótt vjer sjeum eitthvert mesta lýðræðis og þingræðisblað hjer á landi — eins og reyndar öll blöð önnur — þá verðum vjer þó að horfa með öfugugga og ótta fram til íhund- farandi kosningar. SPEGILLINN hef- ir Joar miklu að tapa — tveim skemti- legustu þingmönnum þjóðarinnar, og nú kemur til kasta kjósenda að slá skjaldborg utan um þá, til að standast breiðfylkingu íhaldsins. sem það er farið að tala um upp á síðkastið, ew breðifylking heitir á erlendu máli og líka á latínu phalangsx, eins og þeir líka hafa samstundis sjeð í Alþýðu- blaðinu og Þjóðviljanum, fyrverandi og bráðum tilvonandi samherjum vor- um. En því kallar íhaldið þetta breið- fylkingu, að það er að gera sig breitt með því að bæta utan á sig Bænda- flokknum, að undanteknum Jóni í Dal, sem mun eiga fá að dumpa drottni sínum, einn sjer og dáinn. Vjer erura því eiginlega alveg sammála Her- manni um það, að ekkert ætti að verar til, sem heitir íhundfarandi kosningar, því þær eru upplagðar með að setja- alt í hundana. Þingræðinu væri áreið- anlega fyrir bestu, að ekki væri neitt þing . . . Til þess að vera ekki minni en VÞG, viljum vjer geta þess svona rjett til gamans, að vjer höfum frjett það eftir dönskum blöðum, að Hermann hafi beðist lausnar frá því að keýra í gullvagninum með kónginum á 25 ára ríkisstjórnarafmæli hans, af því hann verði að tala við Strandamenn á sama tíma. Þetta minnir oss á söguna um prestinn, en sú saga er þannig, að prestur einn var á leið til að sakra- menta sjúkling og sá þá álft á leiðinpi, sem var í sárum og því í dauðafæri. Klerkur hleypur heim til sín, sækir byssu, drepur álftina, en ljet áður svo um mælt, að álftin geti komist burtu, 74

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.