Spegillinn


Spegillinn - 13.07.1945, Blaðsíða 6

Spegillinn - 13.07.1945, Blaðsíða 6
SPEGILLIKN XX. 13. .......................................................mmiimmmmmm.. tytndmoloíuin, Aðalum boðsmaður fvrir Island: ólafur Einarsson vélfræðingur. Sínn 4340. Pappirsvörur Ritföng Bókhaldsbæk ur Verzlunin Bje rn Kristjánsson Pappirtdclld liltækið bentlir í þá átt, að máttarvöldum höfuðstaðarins (Reykjavíkuríhaldinu) sé al- vara að fara að byggja ráðhúsið margumtal- aða í drullunni í Tjarnarendanum, öllum skattgreiðendum til hinnar mestu armæðu og borginni til eilífrar hneisu og skuldabyrðar. Reiknast hinum gætnari mönnum svo til, að heilt ráðhús við bílastöðina Hreyfil við Kalk- ofnsveg muni kosta snöggt um minna en kjallari í Tjörninni. Eina bótin er sú, að lítil hætta mun vera á bráðum framkvæmdum í málinu, og er það þá ekki í fyrsta sinn sem seinlætið forðar oss frá skömminni, enda ekki nema sanngjarnt, að við höfum ekki óblandaða skömm af því. Nýlega er út kominn í blöðum samningur 1 íkisstjórnar og bæjarstjórnar Reykjavíkur um jarðboranir — hið forkostulegasta plagg. Því miður verður ekki hægt að birta hann hér í blaðinu, en ég hef borið hann undir ýmsa gáfuðustu menn þjóðarinnar, en þeir hafa bara hrist sín gáfuðu höfuð, enda hefur slíkt venjulega minnsta ábyrgð, sé það gert á réttan hátt. Þó er ekki útséð um, að hann muni kannske fá inni í næsta jólablaði, en með skýringum og öllu ^aman kemst hann ekki fyrir í neinu venjulegu blaði. Af venjulegum fréttum má helzt nefna hina góðkunnu fréttamynd Óskars Gíslasonar, sem þeir hafa verið að skamma undanfarið, m. a. á þeim grundvelli, að íþróttamennirnir gangi aftur á bak. Sannast að segja finnst mér þetta )>að skásta í myndiilili, og mun eiga að vera táknrænt fyrir verkanir hinna nýju íþróttalaga, sem menn hafa hreyft sig eftir síðustu árin. Aðaljóni Prestastefnan héfUr samþykkt áskorun um að reisa dómkirfcju í Skálholti oj? virðist sem minna. muni ekki duga til að kristna Jörund. Það ber vott um gleðilegan stórhuf>' klerkastéttarinnar og' brjóstheil- indi að g'era svona samþykktir, meðan Hallgrímur er húsnæðisiaus og Laugarneskirkja virðist ætla áð endurtaka sögu i’jóðleikhússihá. 118

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.