Stúdentablaðið - 15.12.1994, Side 2
Fjárlagavi nnan
Háskólinn er enn
inni í myndinni
í haust hafa fjármál eða öllu
heldur ijármálavandræði Há-
skóla Islands verið áberandi í
fjölmiðlaumræðu og stjóm-
málum. Háskólamenn, bæði
stúdentar og kennarar, hafa
verið samstíga í því að draga at-
hygli almennings og stjómvalda
að fjársvelti Háskólans og
skorað á stjómvöld að gera þar
á bragarbót. Háskólaráð
ályktaði varðandi íjármál HÍ og
spurði þeirrar spumingar hvort
stefna stjómvalda væri að gera
Háskóla íslands að annars
flokks háskóla og stúdentar
sendu þingmönnum ein sextán
þúsund póstkort. Viðbrögð
þingheims hafa undan-
tekningalítið verið jákvæð.
Menntamálaráðherra
vill hækkun
Á fundi sem stúdentar og
Háskólakennarar héldu með
menntamálaráðherra í Háskóla-
bíói í haust, kom fram vilji
ráðherra til að auka fjárveitingu
til Háskólans. í því felst viss
viðurkenning á fjárhagsvand-
ræðum stofnunarinnar. Um leið
benti Ólafur G. Einarsson á að
honum væri þröngt stakkur
skorinn í fjárlögum. Þegar
fjárlög voru lögð fyrir Alþingi
nú í haust var niðurstaðan
neikvæð. í frumvarpinu er gert
ráð fyrir óbreyttum fjárveit-
ingum til Háskólans. Síðan þá
hefur verið unnið að því
hörðum höndum að fá hækkaða
fjárveitingu og virðast menn
vera famir að sjá í land í þeim
efnum.
Háskólinn er enn inni í
myndinni
Nú er tveimur umræðum
lokið í fjárlaganefnd Alþingis
um fjárlagafrumvarpið. Stefnt
er að því að ljúka þriðju og
síðustu umræðu nú á næstu
dögum og í öllu falli fyrir jól.
Nú þegar hafa þingmenn gert
Olafur G. Einarsson
menntamálaráðherra
í þungum þönkum
n o k k r a r
breytingar á
frumvarpinu
og skv. dag-
blaðaviðtölum
sem tekin
hafa verið
nefndarmenn,
em málefni
Háskólans
enn í farvatn-
inu. Beiðni Háskólans um
hækkaðar fjárveitingar hljóðaði
upp á tæpar 200 milljónir og
myndi sú hækkun skipta
sköpum fyrir allt starf HI á
næsta ári. Þessu virðast
þingmenn nú sýna skilning í
auknum mæli og vonir standa
til að þeir muni sýna viljann í
verki á næstu dögum. Háskóla-
nemar og allt Háskólafólk
fýlgist grannt með gangi mála.
Hönnunarkeppni
verkfræðinema
Stúdentaleikhúsið
Skemmtilegt tilþrif á 1. des.
Stúdentaleikhúsið lofar góðu þetta starfsár. Eins og allir vita sem lesa Stúdentablaðið er í gangi leik-
ritunarsamkeppni og vérða úrslit í henni kynnt fljótlega eftir áramót. Allmörg verk hafa borist svo valið
verður dómnefndinni vafalítið erfitt. En leikritunarsamkeppnin er ekki efni þessarar fréttar, enda skilar-
frestur úti. Stúdentaleikhúsið þjófstartaði nú á dögunum og gaf heppnum stúdentum nasasjón af því sem
þau hafa verið að gera í vetur og því sem er í vændum. Á 1. des. síðastliðinn var flutt brot úr nafnlausu
verki eftir Hallgrím Helga Helgason á hátíðardagskrá stúdenta í Háskólabíói. Skemmst er frá því að
segja að flutningurinn og verkið vöktu mikla lukku meðal áhorfenda, enda drepfyndinn texti á ferðinni
og vel með hann farið. Þetta sýningarbrot gefur okkur hinum tilefni til tilhlökkunar og ekki síður til
eggjunaroróa til leikara og allra hlutaðeigandi: „Áfram á sömu braut!“
Hewlett Packard
tölva í boði
Þann 27. janúar næstkomandi
stendur félag vélaverkfræðinema
fyfir sinni árlegu hönnunarkeppni.
Sú keppni er Háskólanemum og
raunar landsmönnum öllum að
góðu kunnug en síðasta keppni
var sýnd í Ríkissjónvarpinu. Og
nú hefst senn leikurinn að nýju og
enn en glæsileg Hewlett Pacard
tölva í boði. Þrautin í ár felst í
stuttu máli í því að láta vissa vél
keyra 6 m braut þar sem farið er
yfír ýmsar hindranir. Á leiðinni
skal tekin upp appelsína og á
leiðarenda á maskínan að koma
appelsínunni yfir hindrun.
Leiðbeiningar eru auglýstar kyrfilega á öllum
veggjum skólans svo áhugasamir geta Iagt
höfuðið í bleyti yfir jólin. Að sögn Guðmundar
Inga Haukssonar formanns félags
verkffæðinema er ekki búist við því að nokkur
leysi þrautina að þessu sinni, en gefin verða stig
fyrir það hve vélin kemst langt. Vonandi láta
Huldumaður í
Lagadeild?
Hver er eiginlega
þessi Birgir P.
Stefánsson?
{ síðasta tölublaði Stúdenta-
blaðsins er lærð grein eftir
Birgir nokkum Pé Stefánsson
um ráðstefnu á vegum Laga-
deildar. Greinin er nostursam-
lega unnin, vel frágengin og
beinskeytt og á Birgir P. Stef-
ánsson hrós skilið fyrir vel
unnin störf í þágu stúdenta. En
ekki er allt með öllu gott og
víða er pottur brotinn. Þegar
Stúdentablaðið reyndi að hafa
uppi á Birgi Pé, þá reyndist
þaó þrautin þyngri. í Laga-
deild er nefnilega engin Birgir
Pé, hvað þá í Háskólanum!
Það er því stór spuming hver
þessi maður eiginlega er sem
skrifar af þekkingu og mann-
viti unt innri mál Lagadeildar.
Birgir Tjörvi Pétursson rit-
stjómarmaður Stúdentablaðs-
ins og nemandi í Lagadeild
hefur leitað að nafna sínum Pé
Stefánssyni en ekki orðið á-
gengt. „Þetta er hið undarleg-
asta mál. Þessi maður veður
inn í Stúdentablaðið og skrifar
heila síöu um kennslumálaráð-
stefnu og gufar svo hreiniega
upp. Þetta er náttúmlega óþol-
andi að svona geti gerst,
greinarhöfundar Stúdenta-
blaðsins verða að “existera”
það er lágmarkskrafa" sagði
Birgir Tjörvi um Birgi Pé. „Eg
ætla að halda áfrain að leita að
þessum mannhundi, ég gefsl
ekki upp fýrr en í fulla hnef-
anna“ sagði Birgir Té
að lokum.
hugvitsmenn í Háskólanum þessi eggjunarorð
Guðmundar verða til þess að leysa þessa þraut
eins og að drekka vatn, hljóta þar með titilinn
„þrautakóngur Háskólans“ og taka tölvuna með
sér heim. Þátttökuskilyrði og nánari auglýsingar
munu birtast í Stúdentablaðinu eftir áramót.
Hvers vegna
Frá Frakklandi á Hótel Island. Ha? reka viðskiptafræðinemar alltaf Stúdentakjallarann?
Frakkland hefur löngum
verið n.k. draumaland í hugum
íslenskra námsmanna. En
draumamir í Frakklandi verða
stundum að víkja fýrir
veruleikanum á íslandi, því
íslenskur vemleiki getur verið
býsna lokkandi á stundum og
það meira segja í skammdeginu
og jólaösinni. Nú standa fýrir
dyrum ekki bara eitt heldur tvö
jólaböll í Háskólanum, á Hótel
íslandi og í Perlunni og er
tvísýnt hvort dansiballið vinni
kapphlaupið um hylli
Háskólastúdenta. Lengi framan
af virtist Perlan hafa
yfírhöndina en nú virðist Hótel
ísland heldur betur vera farið að
sækja í sig veðrið. Skv. síðustu
fregnum hafa m.a. 30 íslenskir
stúdentar sem stunda nám í
Montpelliér í Frakklandi boðað
koma sína til landsins, gagngert
til þess að fara á Hótel ísland á
jólaballið og fagna komu jóla
og lokum prófa. Þeir verða þar
eflaust í góðum hópi því þetta
kvöld munu háskólastúdentar
hreinlega hertaka Reykjavík á
einn eða annan hátt enda full
ástæða til. Það er jólafrí í lofti.
Ýmsir hafa velt vöngum yfir því hvers vcgna viðskiptifræðinemar reka Stúdentakjallarann ár eflir
ár og njóta hagnaðar þess reksturs. Heyrst hefur að ýmsar aðrar deildir, s.s. verkfræðinemar og
stjómmálafræðinemar hafi einnig sýnt áhuga á þessum rekstri. Bernhard Petersen er framkvæmda-
stjóri Félagsstofnunar Stúdenta og hann svarar spumingunni: „Á sínum tíma var reksturinn boðinn út
í almennu útboði. Nokkur tilboð bámst og aðeins eitt frá deildarfélögum, frá félagi viðskiptafræði-
nema. Önnur tilboð bárust frá áhugasömum úti í bæ en við gengum að tilboði viðskiptafræðinema,
enda hagstætt. Síðan þá hefur ekkert annað deildarfélag sýnt rekslrinum áhuga og á meðan svo er, þá
sé ég því ekkert til fyrirstöðu að samningur FS og Mágusar veröi áfram í gildi. Ef hins vegar menn
hafa fullan hug á að bjóóa í þennan rekstur, þá er í sjálfu sér ekkert lögmál að viðskiptafræðinemar
reki Stúdentakjallarann og þá yrði þaó mál skoðað."