Menntamál - 01.09.1926, Side 7
MENTAMÁL
ii;
MaSur verSur a'ð tortryggja sjálfan sig, og ætti jafnan aö
hafa einhverja þá bók til lestrar, sem frekast er fordæmd af
leiðtogum flokks hans, ef það m-ætti hjálpa sem gagneitur.
Það myndi og gott, að ganga í hóp ungra manna, sem enn
hafa opinn hug, ef um nokkuð frelsi er enn að ræða með ung-
lingum. Æskulýðurinn er skam-msýnn orðinn, andlega og lik-
amlega, svo að hann sjer eigi gegn um vírgirðingu,
Ef til vill eiga skólarnir sökina —-----.
Gestur Gestsson þýddi.
(Neue Bahnen XXXVI. 3. s. 81-2).
Myndasýningar í skólum.
Eitt af þeim málum, sem rætt var á síðasta kennaraþingi,
var skugga- og kvikmyndasýningar i skólum, i sambandi við
kenslu.
Voru allir á eitt sáttir um það, að mjög væri mikilsvert og
til framfara, ef takast mætti að útvega góðar og hentugar
sýnivjelar, til notkunar við kenslu. Nokkrir kennarar höfðu
keypt vjelar til skóla sinna, en voru mjög óánægðir með þær;
höfðu þær reynst að miklu eöa öllu leyti ónothæfar. Var þvx
kosin þriggja manna nefnd, til þess að sjá um og annast kaup
á skugga- og kvikmyndávjelum, til notkunar við kenslu, fyr-
ir þá kennara, er þess kunna að óska, og kaupa þær tegundir
einar er þektar eru og reyndar að gæðum. í nefndina voru
kosnir; Sigurður Jónsson, skólastjóri, Rvík, Gisli Jónasson,
kennari, Rvík, og Guðjón Guðjónsson, kennari, Rvík.
Margir kennarar hafa nú þegar pantað vjelar fyrir milli-
göngu nefndarinnar, og eru það einkum „Pathé Baby“ kvik-
myndavjelar. iFer hjer á eftir lausleg kostnaðaráætlun unx
]>essar vjelar og það, sénx nauðsynlega þarf að fylgja þeim.
Verðið er í ísl. kr. miðað við núverandi gengi.