Menntamál - 01.09.1926, Blaðsíða 12
122
.VI ENTAMÁL
hetjuheimi æskulýðsins. Hjer hafa hetjur vinnunnar, vísindanna, hug
sjónanna og mannúðaríinnar sigrað. Er þetta gott tímanna tákn. Agæt-
ustu sigrarnir hafa ekki verið unnir af herforingjum eða krýndum kon-
ungum á vígvellinum, heldur af friðarhetjunum í rannsóknarstofum,.
sjukrahúsum og á þjóðþingum.
Skólaskoðun á Akureyri og í Eyjafjarðarsýslu.
Á Akureyri voru skoðuð 177 börn, og fundust þessir kvillar:
Skemdar tennur höfðu ......................... SÓ,0 %
Bólgna hálseitla ............................. 22,0 —
Kirtilauka í koki .............................. 40 —
Kirtilauka í koki og bólgna hálseitla ......... 2,5 —
Lús eða nit í háni ............................ 0,5 —
Ýmsa aðra kvilla ............................... 40 —
Kvillalaus ................................... 29,0 —
f sýslunni voru skoðuð 214 börn með þessum árangri:
Skemdar tennur höfðu ......................... 53.7 %
Kirtilauka í koki ............................ 14,7 —
Bólgna hálseitla ............................. 14.0 —
Kirtilauka og bólgna hálseitla ................ S.6 -— §
Lús eða nit í hári ........................... 14,5 —
Aðra kvilla .................................. 16,8 —
Kvillalaus ................................... 23,3 —
Dýrtíðaruppbót
starfsmanna ríkisins verður, eins og kunnugt cr, 44% af föstum laun-
um. Hún er reiknuð eftir verðtag.i á rúgmjöli, hveiti, smjöri, nýmjólk.
kjöti, saltfiski, kaffi og sykri. Verð á vörum þessum hefir lækkað tölu-
vert vegna gengishækkunarinnar á siðasta ári, enda eru það alt út- eða
innflutningsvörur, að undanteknu smjöri og nýmjólk, sem þá líka hefir
staðið í stað. Framfærslukostnaður mun ekki hafa lækkað að sama
skapi, og er því við því að búast, að margur lágt launaður starfsinaður
líti með kviða fram á næsta ár. Samkvæmt útreikningum Hagstofunn-
ar þarf fimm manna fjölskylda, sem árið 1914 lifði á 1800 kr., miðað
við verðlag í október í haust 4453 kr. um árið til að komast af. Haust-
ið 1925 var tilsvarandi útgjaldafjárhæð 5088 kr. Er lækkunin því 12^4%
siðan í fyrrahaust, en dýrtíðaruppbótin lælíkar úr 66% niður i 44%.
Samgöngufræðsla.
1 sænskum barnaskólum er nú fyrirskipuð fræðsla um samgöngur
landsins og reglur, sem gilda fyrir vegfarendur; fræðslu þessa á að-