Menntamál - 01.04.1962, Page 27
MENNTAMÁL
17
ÞORSTEINN SIGURÐSSON:
Ný kennslutæki.
Að beiðni ritstjóra
Menntamála mun ég gera
hér nokkra grein fyrir
þeim hjálpargögnum fyrir
barnaskóla, sem ég hef
unnið að á undanförnum
árum.
Skólakubbar.
Fyrst er þá að nefna
skólakubbana, en það eru
20 trékubbar í pappakassa,
18X14X3Í/4 cm að stærð,
ásamt talnaspjaldi, 3 lita-
spjöldum og 3 götuðum
leiðréttingaspjöldum. —
Hér er um að ræða mynztr-
uð1 kennslutæki, sem hag-
nýta má við kennslu í
lestri, stafsetningu, mál-
fræði, reikningi, átthaga-
fræði og lesgreinum.
Á kubbunum eru þrír fletir með rauðum, bláum og
grænum tölum. Gegnt rauðu tölunum er svarmyndin að-
eins ein, litmynd af drengjum í boltaleik. Á móti bláu
tölunum er um fjölmargar svarmyndir að velja, þ. e.
1) Orðið er hér notað í stað danska orðsins selvkonlrollerende.
Þorsleinn Sigurðsson.
2