Menntamál - 01.04.1962, Page 61
menntamál
51
þó hægfara og jafnan innan nokkuð þröngra takmarka.
Þær ákvarðast mest af því, hvert vinnulag maðurinn
temur sér, og einbeitingu hans við verkefni, en skapgerð
hans og geðheilbrigði ræður mestu um þetta. Mönnum
hefur lengi verið ljóst, að geðrænar truflanir hamla
greindarþroska og nothæfni hæfileika. Margt bendir til,
að sérstaklega gott tilfinningalegt jafnvægi geti örvað
þroska hæfileika og aukið notagildi þeirra. Sérstaklega
góð geðheilsa getur þá átt þátt í hækkun greindarvísi-
tölu, þegar slíkt kemur í ljós við mælingar.
Umrædd tilraun gefur auðvitað ekki svör við spurn-
ingum sem þessum. Hún sýnir aðeins, að stöðugleiki
greindarvísitölu er hjá flestum mikill, þótt árin líði, og
breytingar þær, sem verða, eru innan all þröngra tak-
marka, en geta þó orðið nokkrar hjá mjög litlum hundr-
aðshluta prófaðra.
Kristinn Björnsson.