Æskan - 05.10.1897, Side 3
ÆSKAN.
Barnablað með myndum. Gefið út af Stór-Stúku íslands.
I. árg.
Reykjavík, 5. október 1897.
1. tbl.
SKAN er fyrsta barna-
blaðið, sem gefið er út á
íslandi. t öðruni löndum
eru víða gefin út mörg
barnablöð og liafa þau
öll mjög mikla útbreiðslu;
vjer vonumst því til, að
þetta litla blað verði öll-
um börnum kærkominn
gestur og verði vel tekið,
ufærðir um það, að börnin
á íslandi eru eins fróðleiksfús og annars-
staðar.
Af því að þetta blað er ekki gefið út til
þess að græða á því eða liafa það fyrir at-
vmnuveg, eius og hin blöðin, þá getum vjer
haft það svona ódýrt; auðvitað samt með því
móti, að nokkuð margir kaupi það.
Vjer vitum það vel, að mörg börn eru svo
fátæk, að þau geta ekki keypt það, sem dýrt
er oða foreldrar þeirra handa þeim og það er
emkum þess vegna, að vjer höfum blaðið
svona ódýrt, til þess að sem flest af fátæk-
mn börnum geti keypt það. Vjer vonumst til,
að börnuuum þyki gaman að þvi, að fá allt af
eitthvað nýtt og skemmtilegt til að lesa; þau
hafa sjaldan gagn af því, sem er í hinum
blöðunum, það er vanalega of þungt og ein-
ungis fyrir fullorðna fólkið; en þetta á að
verða handa þeim í staðinn.
kf kaupendur verða svo margir, að blaðið
heri sig vel eða meira en Jiað, þá verður það
ávinningur fyrir kaupendurna sjálfa, því þá
stækkar það eða kemur optar út, án þess þó
að það verði dýrara. Myndirnar verða valdar
svo góðar, sem hægt verður, þegar til kemur,
og vjer vitum, að börnunum þykir allt af gam-
an að faUegum myndum. Ef kaupendur verða
margir, þá kemur mynd í hverju blaði, en
annars í öðruhvoru.
I livert skipti, sem þið fáið „Æskuna11 eig-
ið þið að lesa hana með athygli og ef þið
skiljið ekki eittlivað, þá skuluð þið fá skýr-
ingu á því hjá íúllorðna fólkinu, t. d. foreldr-
um ykkar. Ef }>að er eitt barn, sem kaupir
„Æskuna“, en fleiri börn eru á heimilinu, þá
eigið þið að lofa þeim að lesa hana líka eða
lesa hana fyrir Jiau, en helzt eigið þið þó að
kaupa hana öll i fjelagi og um fram allt að
koma ykkur vel saman um hana; ef þið eruð
t. d. fjögur og eigið sina fimmtán aurana
hvert, þá getið þið ekki varið þeim betur
fyrir nokkurn lilut annan en að kaupa „Æslt-
una“.
Þegar gátur koma í „Æskunui11, þá eigið
þið að hugsa um ]>ær sjálf, sitt í hverju lagi,
og reyna að ráða þær, áu Jiess að láta full-
orðua fólkið hjálpa ykkur; svo skuluð þið
skrifa upp hjá ykkur ráðningar þær, er ykkur
detta í hug, geyma þær þangað til næsta
blað kemur og bera þá samau til þess að
vita hvort þið hafið ráðið rjett.
Eit.t er Jiað, sem þið skuluð taka vel eptir
og Jnið er rjettritunin á blaðinu. Vjer ætlum
að reyna að hafa hana sem bezta, til þess að
þið getið óhrædd tekið eptir allt, sem þið sjáið
þar skrifað. Gætið þið t. d. vel að, hvar skrií-