Ljósvakinn - 01.11.1926, Blaðsíða 28

Ljósvakinn - 01.11.1926, Blaðsíða 28
Er þér helgust ósk, að Kristur eigi dvöl í hjartans rann? Er þér trúin afi að lifa að eins fvrir kærleikann? Ertu laus við alla vantrú, ágirnd, hroka, deilumál? Er þín stefna upp til himins? andsvar gefðu hreint, mín sál! Hvert snýr hugur þinn í þrautum þennan gegnum táradal? Er þín þrá að eiga fjársjóð uppi’ í björtum himnasal? Upp í Ijósið húms úr heimi, hugsun ávalt stefni þín. Líttu æ í þrautum þangað, þar sem unaðssólin skín. Viltu leggja’ í Herrans hendur hvað sem fellur þér í skaut, unaðsleið hvort áttu’ að ganga eða sára þyrnibraut? Viltu hafa’ í hjarta þínu Herrans nafn og boðorð skráð? Er þér gleði að þau verði aldrei þaðan burtu máð? Er mitt hjarta inni Drottins, akur hreinn og gróinn hans? Læt ég bjart í breytni minni blakta merki kærleikans? Berst frá mér til bræðra minna birta, sem ei verður leynt? Get ég nú mætt Guði mínum? Gefðu, sál mín, andsvar hreint!

x

Ljósvakinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.