Ritsafn Lögrjettu - 01.01.1915, Side 44

Ritsafn Lögrjettu - 01.01.1915, Side 44
43 ina er úrslitaatriöiS þaö, aö hver blettur af fullræktuöu landi hjer gef- ur af sjer eins vissa og eins verð- mæta uppskeru eins og jafnstór blett- ur annarsstaöar, ef samgöngutækin leyfa mönnum aö hagnýta uppsker- una á hentugasta hátt og koma af- urðunum á hentugasta markaöinn. Þessa staöhæfingu byggi jeg á sam- anburði við uppskeru í Danmörku, Noregi og Canada, eftir opinberum skýrslum þeirra landa, og skal jeg ekki fara lengra út í þaö efni nema tilefni gefist. í mínum augum er þaö hreinasta fjarstæöa, aö þetta land sje of vont handa siðuðum mönnum. En sje þessari fjarstæöu slept, þá held jeg aö ekki sje unt að koma meö iieina skynsamlega ástæöu gegn fyrir- ætluninni um járnbrautarlagningar. En ])aö er eðlilegt aö skoöanirnar geti crðið skiftar um hitt, hve hratt skuli halda aö takmarkinu, hve miklu skuli hætta í einu, þar sem vitanlega einn- ig aörar framkvæmdir kalla aö. * * * Meira hef jeg ekki um þetta að segja að sinni. Eins og menn vita, liefur tillögu um aö leggja járnbraut frá Reykjavík austur á Suöurláglend- iö verið hreyft öðru hvoru nú síð- ustu árin. Þaö er ekkert óeðlilegt, þótt menn hafi þurft nokkurn tima til þess að átta sig á svo stóru nýmæli, enda hefur ekkert orðið úr framkvæmdum enn þá. Margir góðir menn liafa tekiö tillögunni hlýlega, þeir er þó eiga heima í fjarlægð viö svæði það, sem getur liaft bein not þessarar brautar, sjerstaklega þeir, sem eitthvaö hafa þekt til þess hve samgönguskorturinn stendur í vegi fyrir framförum Suöur- láglendisins. En mjer hefur ekki fundist að þessir menn, sem vilja líta sanngjarnlega á þarfir Sunnlendinga aö því er járnbrautir snertir, gera sjer nægilega ljóst, aö þessi braut er aö eins byrjun, að hún er aö eins fyrsta sporið í áttina til þess að koma sam- göngutækjum landsins í heild sinni i jafnfullkomið liorf, eins og sam- göngutækjum annara landa. Og af því aö mönnum hefur ekki alment verið þetta nógu ljóst, þá hafa of margir litið svo á, sem hjer væri um mál aö ræöa, er aö eins varöaði einn landshluta. Enda jeg svo mál mitt meö þeirri ósk, að okkur gefist sem fyrst þrek og þor til þess aö stíga þetta fyrsta spor, því að: „Þaö er svo bágt að standa í stað.“

x

Ritsafn Lögrjettu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritsafn Lögrjettu
https://timarit.is/publication/534

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.