Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1913, Page 3
Formáli.
Þessi 5. útgáfa Bæjarskrár Rvíkur er mannfleiri miklu en hinar fyrri
útgáfur. í hana eru nú teknir allir karlar og konur, sem hór í bæ voru
1. des. 1912, 18 ára eöa eldri, alls um 8500. En í fyrri bæjarskrám
hafa skráðir verið 2000 (1905), 3400 (1909) og 4500 (1912).
Aftur hefir þetta sinni verið slept heimilaskrá eftir götum og eins
félagaskrá og stofnana, með því að eigi ríður svo mjög á að fá þær ár-
lega, en mundi hafa hleypt fram kostnaðinum að miklum mun.
Sérstök talsímaskrá fyrir Reykjavík er sett aftan við nafnaskrána
og henni raðað á íslenzku, þ. e. eftir skírnarnöfnum, nema þar sem um
ættarnöfn er að tefla. Svo almenn óánægja hefir risið út af föðurnafna-
skrá landssímans, að víst mun mörgum bæjarbúa vænt þykja um þenna
viðauka við bæjarskrána.
Óhugsandi er að svo fjölmenn nafnaskrá og heimila só villulaus, og
þætti mór vænt um, að þeir, er villur finna eða ónákvæmni, geri mór við-
vart, svo leiðrótta megi í næstu útgáfu.
Bæjarskráin hefir þetta sinni komið talsvert seinna út en til var
ætlast — vegna óviðráðanlegra anna í prentsmiðjunni. En eftirleiðis mun
sóð um, að hún komi út upp úr nyári.
Eg vænti þess, að Bæjarskráin, með öllum þeim mannsöfnuði, sem
nú er í henni, verði eigi oft spurð til ónýtis um það, hvar hún eða liann
eigi heima — og er þá aðalmarkmiðinu með henni náð.
Reykjavík 27. febrúar 1913.
Óíafur Björnsson.