Eimreiðin - 01.01.1974, Side 6
eimreiðin
DAVID HOLDEN
Allende
og goðsagnasmiðirnir
PÓLITÍSKT RAUNSÆI OG BYLTINGARÓSKHYGGJA
Þótt það virðist bera volt um kaldlyndi að komast svo að
orði, þegar menn muna enn svo greinilega blóðsútliellingarnar
í sambandi við valdaránið i Chile, og hershöfðingjarnir, sem
það frömdu, eiga óþægilega miklu gengi að fagna, er það samt
staðreynd, að Salvador Allende dó maður heppinn. Honum
hafði mistekizt í lifanda lífi. Bæði stjórnarslefna hans og land
voru í rústum löngu áður en komið var að endalokunum. í
dauðanum lirósaði liann hins vegar meiri sigri en hann hafði
látið sig dreyma um. Hann var samstundis tekinn i helgra
manna tölu sem nýjasti vinstripíslarvottur hins vestræna heims
og varð á einni nóttu máttugasta stjórnmálaátrúnaðargoðið,
siðan fornvinur hans, Che Guevara, leið.
Söfnuðurinn var vitanlega að nokkru leyli farinn að búa
sig undir upplyftingu lians að honum látnum. Þau þrjú ár,
sem Allende var við völd, var „tilraunin í Chile“ og „leið Chil-
es til sósíalismans“ eflirlætisumræðuefni vinstri manna i Ev-
rópu, þar sem menn liöfðu komizt á þá skoðun, af þvi hvað
þeir töldu Chile svipa mikið til ítalíu eða Frakldands, að Ev-
rópa kynni að feta í fótspor Suður-Ameriku í stað hins gagn-
stæða. Margir, sem höfðu hug á að gerast byltingarmenn i Ev-