Ægir - 01.01.1927, Síða 3
Æ G I R
Hf. Eimskipafélag Islands.
Aðalfundur.
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags Islands verður
haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins í Reykjavík laugar-
daginn 25. júní 1927 og hefst kl. 1 e. h.
Dagskrá:
1. Stjórn. félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á
liðnu starfsári og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári
og ástæðum fyrir henni og leggur fram til úrskurðar end-
urskoðaða rekstrarreikninga til 31. desember 1926 og efna-
hagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum
stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiftingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins í stað þeirra,
sem úr ganga samkvæmt félagslögunum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer, og eins
varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.
l3eir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundiimm verða aflientir hluthöfum og
umboðsmönnum liluthafa í skrifstofu félagsins í Reykfavík dag-
ana 22. og 23. fúní nœstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sœkja fundinn í aðalskrifstofu fclagsins í
Reykjavík.
Reykjavík, 17. janúar 1927.
Stjórnin.