Ægir - 15.08.1977, Qupperneq 12
Sigurður RE 4 fyrsta íslenska skipið
sem fær Simrad CD myndtölvu
við torfuna, sem ætlunin er að skoða eða kasta
í byrjun júnímánaðar sl.
var lokið við að setja niður í
m/s Sigurð RE 4 fullkomn-
asta fiskleitartæki, sem sett
hefur verið í íslenskt fiski-
skip, en það er CD-mynd-
tölvan frá Simrad.
Það var á sjávarútvegs-
sýningunni „Norfishing“ í
Þrándheimi 1974, sem norsku
Simrad verksmiðjumar
sýndu í fyrsta sinn, mynd-
tölvu Simrad CD, sem strax
vakti gífurlega athygli, og þá
þegar sögðu menn að mynd-
tölvan yrði veiðitæki níunda
áratugsins. Tölvan hafði aldrei áður verið not-
uð við fiskileit og var því eftirvænting manna
mikil að sjá tölvuna í notkun um borð í fiski-
skipi.
Nú þrem árum eftir að myndtölvan var
kynnt er hægt að fullyrða með vissu að tækið
hefur staðist allar prófanir með prýði. Sim-
rad CD hefur verið þrautreynd um borð í
rannsóknarskipum, togurum og nótaskipum.
Hefur tækið reynst það vel, að eftirspum eft-
ir því eykst sífellt.
CD myndtölvan samanstendur af tölvu,
myndskjá og stjórnborði og er viðbótartæki
við „sónartæki" af gerðunum Simrad SU, ST
og SQ sem þegar eru í mörgum fiskiskipum.
Kostirnir við myndtölvuna eru fyrst og
fremst, að nú koma upplýsingar „sónarsins“
fram á algjörlega nýjan hátt, sem þýðir að
nokkuð auðveldara er að fá algjört yfirlit um
það sem gerist undir yfirborði sjávarins. Skip-
stjórinn fær með hjálp tölvunnar mikið fyrr
og betri upplýsingar um stöðu skipsins miðað
262 — Æ GIR
á. Þá getur hann fylgst með nótinni í kösturn
frá einni sekúndu til annarrar, með því einu
að horfa á myndskjáinn, og því engin hætta
á að menn taki rangar ákvELrðanir lengur.
Auk þess fást einnig með hjálp tölvunnai
þýðingarmiklar upplýsingar, um hve djup
torfan heldur sig, þykkt hennar og allar
minnstu hreyfingar þ.e.a.s. í hvaða átt torfan
fer, hraði hennar o.fl. Allar þessar upplýs>n°'
ar er hægt að lesa beint af myndskjánum-
Þá er hægt að velja um 3 svið á myndtölv-
unni, auk þess sem hægt er að sigla í 8 km
radíus út fyrir leitarsvið sónarsins, en það er
allt að 4000 m, og halda síðan beint á þá torfu
sem skoðuð var, með því að nota minni töly-
unnar ef ekki finnst nein betri torfa. Einmg
sést hvernig torfan lítur raunverulega út þegav
nótinni hefur verið kastað.
Eins og fyrr segir er myndatölvan nU
búin að vera í noktun frá árinu 1974, og
þar til nú hefur ekkert íslenskt fiski'
J